Fréttablaðið - 02.01.2003, Page 32

Fréttablaðið - 02.01.2003, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Of feitur Bakþankar Sigurjóns M. Egilssonar Ekkert frekar um áramót en áöðrum tímum hef ég fundið þörf á að taka mig á þar sem helst er þörfin. Miðað við alla staðla og sennilega alla skynsemi má segja að ég sé um tuttugu og fimm kílóum of þungur. Og hef verið það svo til síð- an ég hætti að reykja fyrir tæpum fimm árum. Meðvitaður um að mín bíður að léttast hef ég reynt ítrekað að taka á vandanum. Ég hef keypt mánaðarkort og árskort og talað mig inn á nauðsyn þess að hefjast handa nú þegar. LÍKAMSRÆKT er ein leiðin. Ég hef reynt hana. Léttist strax um eitt kíló og svo annað og annað. Fór að reikna og sá að ég yrði glæsilegur á hálfu ári. Svo fór ég að skrópa. Gat ekki séð af tæpum tveimur klukku- stundum á dag. Komst líka að því að það væri ekki fínt að vera rennsveittur og örþreyttur í illa lyktandi húsi þegar mín biðu önnur verkefni. Verst var að vera búinn að kaupa árskort og endast ekki í mán- uð. Taldi sjálfum mér trú um að ég myndi byrja aftur í næstu viku. Síð- an eru liðin nokkur ár. HITTI GAMLAN kunningja sem til margra ára hafði verið feitari en ég. Hann var allt annar. Ég spurði hvað hefði komið fyrir. Skýringin var einföld, megrunarduft og töfrapillur. Árangurinn var augljós. Þrjátíu kíló farin. Hann var sölu- maður fyrir duftið. Ég keypti fyrir glás af peningum. Ég hrærði duftið, blandaði mér töfrate og gleypti pill- urnar en ekkert gerðist. Leitaði skýringa og eftir að hafa hlustað á hinn fyrrum feita mann sá ég hvað var að. Hann hafði ekki gert neitt annað í heilt ár en blanda sér te, gleypa pillur og drekka rennandi duft. Ég gat ekki hætt að vinna svo ég tók aftur að borða kjötfars og fleira gómsætt. NÚ ER ÉG að elta annan félaga. Borða sérstakt morgunkorn blandað í súrmjólk á morgnana og helst ekki annað fyrr en á kvöldin. Léttist ekk- ert en er sísvangur. Ég var ráðþrota. Fann þó lausnina um daginn. Þurfti á fund og mín megin við borðið sátu fimm aðrir karlar á svipuðu reki og ég. Allir áttum við eitt sameiginlegt, bumbur. Kannski var mín stærst, ég veit það ekki, en komst samt að því að mikill meirihluti karla á miðjum aldri er með bumbu, því ekki ég? Skipti eflaust um skoðun og kaupi gagnslítið árskort einhvern daginn. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.