Fréttablaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 13.12.2002, Blaðsíða 8
13. desember 2002 FÖSTUDAGUR © 2 00 2 TO P S H O P W W W .T O P S H O P .C O .U K ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O P 19 61 9 1 2/ 20 02 Tilbo›i› gildir alla helgina Opi› til 22.00 alla daga fram a› jólum 25 % afsláttur af öllum peysum - dömu & herra SMÁRALIND | LÆKJARGÖTU KAUPMANNAHÖFN, AP Ákafar og nánast örvæntingarfullar samn- ingaviðræður hafa staðið yfir síð- ustu daga til þess að ná samkomu- lagi um að stofna sambandsríki Grikkja og Tyrkja á Kýpur. Evr- ópusambandið stendur fast á því að náist ekki samkomulag verði eingöngu gríska hluta eyjunnar boðin aðild. Eyjan klofnaði í tvennt árið 1974 þegar tyrkneski herinn gerði innrás eftir að grískir uppreisnar- menn gerðu stjórnarbyltingu á Kýpur. Tyrkland er enn með 40 þúsund manna her á tyrkneska hluta eyjunnar. Tveggja daga leiðtogafundi Evrópusambandsins í Kaup- mannahöfn lýkur í dag. Á fundin- um verða teknar endanlegar ákvarðanir um það hvaða ríkjum verður boðin aðild árið 2004. Kýpur er eitt þeirra tíu ríkja sem hafa fengið vilyrði um aðild. Hin eru fyrrverandi austantjalds- ríkin Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Tékkland, Ungverjaland, Slóvakía og Slóvenía ásamt Mið- jarðarhafseyjunni Möltu. Embættismenn segja að sára- litlu muni að samkomulag um sambandsríki á Kýpur komist í höfn. ■ Litlu munar að Kýpurdeilan leysist í dag: Örvænting á síðustu stundu COSTAS SIMITIS Forsætisráðherra Grikklands ræðir við fréttamenn í Kaupmannahöfn. Abdullah Gul, forsætisráðherra Tyrklands, og Racep Tayyip Erdogan, leiðtoga stjórnarflokksins í Tyrklandi, voru sömuleiðis staddir í Kaupmannahöfn í tilefni af leiðtogafundi Evrópusambandsins. AP /M YN D VIÐSKIPTI Þegar hluthafi eignast meira en helming atkvæðisréttar í almenningshlutafélagi hér á landi ber honum skylda til að bjóðast til að kaupa aðra hluthafa út úr fyrirtækinu. Í yfirliti Búnaðar- bankans um hluta- bréf er bent á að ákveðnir hópar hafi að undanförnu tryggt sér yfirráð yfir skráðum félög- um með því að skrá eignarhald á mis- munandi lögaðila. Búnaðarbankinn nefnir nokkur félög sem þetta á við um. Þau eru: Jarð- boranir, SR mjöl, Skeljungur, Tryggingamiðstöðin og Þormóður rammi-Sæberg. Greiningardeild Búnaðarbankans segir að núgild- andi reglur verndi ekki í raun rétt minnihluta við slíkar aðstæður. „Lögin eru þannig að til að ná fram breytingum á samþykktum félags þarf samþykki 3/4 hluta hluthafa. Ef menn eiga 1/3 eru þeir komnir með neitunarvald við ákveðnar aðstæður og geta staðið í vegi fyrir breytingum,“ segir Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu- maður greiningardeildar Búnað- arbankans. Hún segir það skipta máli í þessu sambandi að almenn- ingshlutafélög hafi aðgang að sparnaði almennings á markaði. „Við setjum þetta ekki fram vegna þess að við teljum eitthvað óeðlilegt hafa verið í gangi. Við teljum hins vegar rétt að hafa þetta í huga, sérstaklega á jafn litlum markaði og hér. Þetta getur haft slæm áhrif, sérstaklega ef viðskipti með félög detta niður, sem er raunveruleg hætta í slík- um tilvikum.“ Reglur um yfirtökuskyldu eru breytilegar eftir löndum. Í Nor- egi og Svíþjóð er miðað við 40%, í Danmörku er miðað við þriðj- ung og 30% í Bretlandi. Fyrir Al- þingi liggur nú frumvarp um verðbréfaviðskipti. Búnaðar- bankinn hefur lagt til í umsögn sinni um frumvarpið að skoðaðir verði kostir og gallar þess að færa þessi mörk neðar en nú er. Mikil velta hefur verið það sem af er ári í Kauphöllinni. Stór hluti þeirrar veltu hefur verið vegna sameiningar, hagræðingar og valdafjárfestinga. Margir hafa áhyggjur af að þegar þess- ari uppstokkun ljúki minnki við- skipti með bréf þessara félaga. Verðmyndun geti orðið óskilvirk og áhrif minnihluta lítil og ótrygg. haflidi@frettabladid.is Minnihlutaréttur ekki tryggður Yfirtökuskylda myndast í almenningshlutafélögum þegar atkvæðarétt- ur fer yfir 50%. Í nágrannalöndunum er hlutfallið lægra. Þetta háa hlut- fall kann að skerða rétt þeirra sem eiga smærri hlut í hlutafélögum. EDDA RÓS KARLSDÓTTIR Forstöðumaður greiningardeildar Búnaðarbankans telur ástæðu til að hafa rétt minni- hlutaeigenda í huga í lagasetningu um verðbréfaviðskipti. Ef menn eiga 1/3 eru þeir komnir með neitunarvald við ákveðnar aðstæður og geta staðið í vegi fyrir breytingum. LAUNAMUNUR Kynjabundinn launa- munur hjá opinberum starfsmönn- um á Íslandi er mun minni en áður var skýrt frá. Stuðst var við könnun sem Rannsóknastofa í kvennafræð- um framkvæmdi. Könnunin var hluti af Evrópusambandsverkefni. Kynnt var að kynjabundinn launa- munur væri 39% í opinberum störf- um á Íslandi en 6% til 21% í saman- burðarlöndunum. Í ljós hefur komið að rangt var reiknað. Auk þess var viðmiðunarmánuðurinn, nóvember 2000, óheppilegur vegna kennara- verkfalls. Við endurútreikninga kom í ljós að launamunur hjá hinu opinbera er nær því sem gerist í samanburðarlöndunum en talið var eða um 24%. Launabilið hjá hinu opinbera er því ekki meira, heldur ívið minna en á almenna markaðnum. Rannsókna- stofa í kvennafræðum og Kjara- rannsóknanefnd opinberra starfs- manna sendu frá sér leiðréttingu vegna þessa og harma mistökin. ■ Kynjabundin launamunur: Skekkja í útreikningum LAUNAMUNUR KYNJANNA - LEIÐRÉTTAR TÖLUR Almennur Opinberi markaður geirinn Austurríki 19% 14% Danmörk 16% 7% Grikkland 23% - Ísland 27% 24% Noregur 24% 12% Bretland 27% 21% OPINBERIR STARFSMENN Kynjabundinn launamunur er 24%. Þorláksmessuskatan í Rúgbrauðsgerðinni Borgartúni 6. Þorláksmessuveislan er frá 11-16. Í boði eru þrjár tegundir skata: amlóði / miðsterk / fullsterk Einnig er í boði: Saltfiskur / plokkfiskur / síld Verð: 2.600,- s. 561 64444 - borgaris@itn.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.