Fréttablaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Í SÍÐUSTU LÍNUNNI
OKKAR, SEM KOM ÚT
RÉTT FYRIR JÓL VORUM VIÐ
UPP Á BELTI, PEYSUR, BOLI OG
SVO VORUM VIÐ AÐ BÆTA VIÐ
HÚFUM. HUGMYNDIN AÐ NÝJU
LÍNUNNI VAR AÐ GERA FÖT SEM
HENTA ÖLLUM.
Viktor
1 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Fyrir börn frá 3 ára og uppúr!
– S.J. Fréttablaðið
– DV
Barnasýning ársins 2015 !
Miðasala á tix.is
og í Tjarnarbíó
Allra síðustu sýningar!
LAU . 01 . FEB kl . 13 00
LAU . 29 . FEB kl . 13 00
LAU . 14 . mar kl . 13 00 Þau Jónína Þórdís Karls-dóttir og Viktor Karl Einarsson eru ungir frumkvöðlar sem reka fyrirtækið BÖKK. Fyrst um sinn framleiddi það
belti en nýlega bættust peysur og
bolir við. Nú fyrir helgi tilkynntu
þau svo línu af húfum, en hún er
unnin í samstarfi við Rúrik Gísla-
son fótboltamann, sem er nýjasta
viðbótin í eigendahópinn.
Minna á flugvélabelti
„Bökk byrjaði sem verkefni í Verzló
í frumkvöðlafræðiáfanga. Í áfang-
anum áttu nemendur að búa til
sín eigin fyrirtæki ásamt öllu
því sem því fylgir, þá kviknaði
hugmyndin að BÖKK. Við
ákváðum að búa til nýstárleg
hátískubelti en beltin eru
svolítið öðruvísi og fram-
andi. Sylgjan á beltunum
er svipuð þeirri og sjá
má á f lugvélabelt-
um og efnið sem við
notuðum í ólar belt-
anna er sams konar
efni og notað er í
h e f ð b u n d n a r
s æ t i s b e l t a -
ólar. Fyrsta línan
okkar gekk vonum
framar og seldist upp
á innan við tveimur
sólarhringum,“ segir
Jónína Þórdís.
BÖKK tók síðan
þátt í frumkvöðla-
f r æ ð i k e p p n i
Junior Achieve-
ments, en 120
ö n nu r f y r i r -
tæki tóku þátt í
henni. Þetta ár
var keppnin sérstaklega stór, þar
sem tveir árgangar voru á útskrift-
arárinu sínu sem tóku þátt í þessum
áfanga, sökum styttingu mennta-
skólanna. BÖKK stóð að lokum
uppi sem sigurvegari keppninnar.
,,Við fórum í kjölfarið til Serbíu
í Evrópukeppni. Eftir keppnina
fórum við að huga að framtíðinni
og Viktor Karl Einarsson kom inn
í fyrirtækið sem eigandi og frábær
starfskraftur. Í sameiningu fórum
við að vinna að nýrri línu. BÖKK
hefur nú alls gefið út fjórar línur en
við vorum ákaf lega lánsöm að fá
nýjan eiganda inn í fyrirtækið fyrir
síðustu línu, fótboltamanninn
Rúrik Gíslason,“ segir Jónína
Klassískt tískumerki
,,Í síðustu línunni okkar,
sem kom út rétt fyrir jól
buðum við upp á belti,
peysur, boli og svo
vorum við að bæta
v ið húf um. Hug-
myndin að nýju lín-
unni var að gera föt
sem henta öllum.
Ok k u r f a n n st
vanta á markað-
i n n k la s sísk t
íslenskt tísku-
merki,“ segir Viktor.
Þau segjast hafa
unnið þrjú saman að
línunni frá því í júní.
Þau hafi viljað taka sér
góðan tíma í hönnun-
ina og val á efnum.
, ,Öl l B ÖK K
línan er unisex,
s e m m e r k i r
að hún hentar
bæ ði körlu m
sem konum. Það
er einstaklega gott að fá Rúrik inn
í teymið þar sem, eins og f lestir
Íslendingar vita, hann hefur mjög
gott auga fyrir tísku og nýjustu
straumunum. Hann passar upp á
hvert einasta smáatriði og á stóran
þátt í hönnun línunnar,“ segir Vikt-
or.
Húfurnar rokseljast
,,Rúrik leist mjög vel á það sem við
vorum að gera og þetta var í anda
þess sem hann fílar. Ég fór til Þýska-
lands að hitta hann, en við erum
frændur. Við gáfum honum bol sem
honum leist svo ótrúlega vel á. Eitt
leiddi af öðru og ekki leið á löngu
þar til við vorum byrjuð að huga að
næstu línu, en Rúrik passar mjög vel
inn í teymið,” segir Viktor.
,,Salan á línunni gengur alveg
ótrúlega vel. Við höfum vart undan.
Sérstaklega eftir að Rúrik opinber-
aði samstarfið, hann á náttúrulega
svo marga aðdáendur,“ segir Jónína
hlæjandi.
Nýju húfurnar og aðrar vörur frá
BÖKK er hægt að nálgast á bokk.is.
steingerdur@frettabladid.is
Ungir frumkvöðlar í
samstarf við Rúrik
Jónína og Viktor hafa rekið fyrirtekið BÖKK undanfarið en
nýverið bættist fótboltakappinn Rúrík Gíslason í eigendahópinn.
Nú fyrir helgi bættust við húfur í línu BÖKK sem hafa rokið út.
Þau Jónína og Viktor segja sölu á nýjustu línunni hafa gengið vonum framar. MYND/DAGBJÖRT KRISTÍN
Rúrík í fötum frá BÖKK, en hann
bættist nýlega í eigendahópinn og
tekur þátt í hönnuninni með Jónínu
og Viktori. MYND/JÓNÍNA ÞÓRDÍS