Fréttablaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 12
Innréttingar & tæki er fjöl-skyldufyrirtæki sem er starfrækt við Ármúla 31 og hefur verið rekið um langt skeið eða frá árinu 1945. „Amma mín stofnaði það sem heildverslun en 1993 var því breytt í verslun af foreldrum mínum,“ segir Íris Jensen eigandi en þau Grétar Þór Grétarsson, eiginmaður hennar, tóku við rekstrinum árið 2014. „Við ákváðum að slá til og höfum staðið vaktina síðan,“ segir hún létt í bragði. Innréttingar & tæki eru best þekkt fyrir mikið úrval af baðinn- réttingum, blöndunartækjum, hreinlætistækjum og sturtuklef- um þar sem gæði og góð hönnun eru í fyrirrúmi en spennandi nýjungar streyma nú í verslunina. „Við erum nýlega byrjuð með umhverfisvænar plötur með mosa sem eru frábærar til hljóð- einangrunar og henta vel fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Mosaplöturnar eru afar fallegar og til mikillar prýði. Þær eru úr náttúrulegum mosa, laufum og umhverfisvænum efnum sem ekki þarf að hugsa mikið um. Mosa- plöturnar eru frá ítalska hönnun- arfyrirtækinu Benetti Home. Þær má setja upp sem stóran eða lítinn gróðurvegg eða klippa til og búa til listaverk eða lógó fyrirtækja, allt eftir því sem hver og einn vill,“ segir Íris. Plöturnar eru búnar til úr léttu áli og á þær er settur mosi, sem er sérstaklega ræktaður í þeim tilgangi. Íris segir mosaplöturnar hafa vakið mikla athygli og þær séu vinsælar víða um heim. „Plöturnar eru vistvænar og það þarf lítið sem ekkert að hugsa um þær. Mosinn heldur sér vel og það þarf aðeins að úða efni á hann á nokkurra mánaða fresti ef rakinn er lítill. Einfaldara getur það ekki verið. Það er hægt að sjá risastóran vegg úr mosaplötunum við upplýsingaborðið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en hann kemur mjög vel út. Mosaplöturnar eru líka eftirsóttar til að skreyta hótel og veitingastaði en þær setja mjög skemmtilegan svip á umhverfið,“ segir Íris. Mosaplöturnar fást í mismun- andi stærðum og segir Íris hægt að velja um ljósan eða dökkan mosa, mosa blandaðan laufum eða bara mosa. „Það er líka bæði hægt að hafa mosann mjúkan eða harðan, allt eftir smekk hvers og eins,“ upplýsir hún og ítrekar að um náttúrulegt efni sé að ræða. „Plöturnar eru frábærar til að dempa hljóð t.d. í húsum þar sem hátt er til lofts eða stór og opin rými. Mosinn skapar líka notalega stemningu,“ segir Íris. Umhverfisvænt salerni Íris segir að Innréttingar & tæki leggi mikið upp úr því að bjóða viðskiptavinum umhverfisvænar vörur eftir því sem kostur er. „Hjá okkur fæst umhverfisvænt salerni frá spænska fyrirtækinu Gala. Þar er búið að sameina salernis- skálina og skolskálina í eitt tæki. Þetta salerni er útbúið fjarstýringu og það er hægt að fá bæði skol og blástur sem minnkar verulega eða algjörlega notkun á salernispappír. Þessi salerni eru mjög vinsæl í löndum þar sem ekki má setja salernispappír í klósettið. Þetta er virkilega falleg hönnun sem kemur vel út á baðherbergi,“ segir Íris. Bleikt eða blátt „Það nýjasta í hreinlætistækjum eru salerni og handlaugar í fal- legum litum en þau hafa verið svakalega vinsæl hjá okkur. Við bíðum núna spennt eftir að fá salerni og handlaugar í bleiku sem eru að koma í hús, en á þessu ári verður litaúrvalið sérstaklega skemmtilegt. Hreinlætistækin sem fást hjá Innréttingum & tækjum eru að mestu frá Globo, sem er ítalskt fyrirtæki. Fólk á öllum aldri hefur mikinn áhuga á því að breyta til að fá hreinlætistæki í skemmtilegum lit,“ segir Íris en hreinlætistækin frá Globo eru ein- staklega smekkleg og stílhrein. „Ef fólk vill lífga upp á baðherbergin hjá sér eru hreinlætistækin frá Globo algjörlega málið,“ segir Íris að lokum. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Mosaplöturnar eru frábærar til að dempa hljóð t.d. í húsum þar sem hátt er til lofts eða stór og opin rými. Umhverfisvænt salerni með sjálfvirkum búnaði. Hægt er að fá margvíslegar úrfærslur á mosaplötunum. Hægt er að klæða heilu veggina með mosaplötum. Framhald af forsíðu ➛ Plöturnar eru vistvænar og það þarf lítið sem ekkert að hugsa um þær. Mosinn heldur sér vel og það þarf aðeins að úða efni á hann á nokkurra mán- aða fresti ef rakinn er lítill. Falleg hreinlætistæki í flottum litum lífga upp á baðherbergið. Þessi tæki eru frá ítalska framleiðandanum Globo sem er þekktur fyrir fagra hönnun. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . JA N ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.