Fréttablaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 6
TAÍVAN Forseti Taívans og lýðveldis- sinninn Tsai Ing-wen, var endur- kjörin með 57 prósentum atkvæða í kosningum sem fóru fram á laugar- dag. Helsti keppinautur hennar, Han Kuo-yu, hlaut 39 prósent atkvæða. Þriðji frambjóðandinn, James Soong, fékk um fjögur prósent. Um 19 milljónir voru á kjörskrá í Taívan. Ágreiningur þeirra Tsai og Han í kosningabaráttunni snerist um samskiptin við Kína. Allt frá því að kínverska borgarastríðinu lauk árið 1949 hefur Kína aldrei viðurkennt sjálfstæði eyríkisins Taívans. Tsai forseti vill halda samskiptum við Kína óbreyttum og tryggja ákveðna fjarlægð en Han vill efla samskiptin við meginlandið. Það bæti efnahag Taívans. Í kosningabaráttunni sagði Tsai að Kína verði að láta af hótunum í garð Taívans. Lýðræðislega kjörin ríkisstjórn landsins muni ekki bug- ast vegna slíkra hótana. Xi Jin ping, forseti Kína, hefur ekki ekki viljað útiloka að gripið verði til vopna til að ná Taívan undir sitt vald. Í aðdraganda kosninganna sigldu Kínverjar herskipum um Taívan- sund, sem er milli meginlandsins og Taív ans. Þessi ógn ásamt óeirðum í Hong Kong þar sem stjórnvöldum í Kína hefur verið mótmælt, virðist hafa lagt Tsai lið. – ds Tsai segir að lýðræðis- lega kjörin ríkisstjórn Taívan muni ekki bugast vegna hótana Kína. Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800 Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok. Approved and OK New proof please DATE: SIGNATURE: /Ingenjörsgatan 7-9 Box 814, 251 08 Helsingborg Tel. vx. 042-24 73 00 info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se 14 0 280 Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina RAUÐMAGIER FARINNAÐ KOMA HROGN & LIFUR ÍRAN Nokkur fjöldi fólks, einkum háskólastúdentar, söfnuðust saman í gær við tvo háskóla í Teheran, til að tjá reiði sína vegna árásar á farþega- þotuna og viðbragða stjórnvalda við þeim hörmungaratburði. Mót- mælendur segja æðstu ráðamenn landsins beita lygum og blekk- ingum. Áætlað er að um helmingur þeirra sem fórust með vélinni hafi verið Íranir, f lestir þeirra háskóla- stúdentar. Minningarsamkomur um hin látnu voru haldnar við háskólana Amir Kabir og Sharif í Teheran. Þær þróuðust síðan út í mótmælafundi. Í nóvembermánuði voru mót- mæli víða um landið. Þeim var beint gegn stjórnvöldum og versnandi efnahag. Mannréttindasamtökin Amnesty International segja að þá hafi 208 mótmælendur farist, mörg þúsund manna hafi særst og allt að 7.000 mótmælendur verið hand- teknir. Margt bendir til þess að íranska ríkisstjórnin hafi á síðustu vikum misreiknað sig á þrjá vegu og skilið æðstaklerk Írans, Ayatollah Ali Khamenei, í mun veikari stöðu. Í fyrsta lagi voru mótmæli þau sem voru við hið víggirta sendiráð Bandaríkjanna í Bagdad, höfuð- borg Íraks, á síðasta degi ársins. Þar réðst æstur múgur að sendi- ráðinu og krafðist „Dauða yfir Ameríku“. Mótmælin eru talin hafa verið skipulögð að undirlagi Írans. Bandaríkjaforseti Donald Trump lýsti ábyrgðinni á hendur Íran. Þremur dögum síðar misstu Íran- ir einn af valdamesta hershöfðingja landsins þegar Bandaríkin drápu Qasem Soleimani í drónaárás. Íran lofaði þá „öflugum hefndum“ eftir drónaárásina. Það var gert með eldflaugarás Írana á íraska herflugs- töð norður af Bagdad þar sem herlið Bandaríkjahers hefur haft aðsetur. Talið er að fjórir íraskir hermenn hafi slasast og enginn Bandaríkja- maður. Trump forseti sagði þá að Íran virtist ætla að draga úr spenn- unni milli landanna. Um helgina viðurkenndi Íransher síðan að hafa grandað úkraínskri farþegaþotu við Teheran með 176 manns innanborðs. Herinn segir þetta hafa verið óviljaverk sem rekja megi til mannlegra mistaka. Undirliggjandi er síðan afar bág- borinn efnahagur Írans, þrátt fyrir mikinn olíuútflutning, meðal ann- ars vegna mikilla þvingunarað- gerða Bandaríkjanna. Efnahagslífið batnaði mjög þegar Íran gerðist aðili að kjarnorkusamningi árið 2015. En í kjölfar þess að Bandaríkin sögðu sig frá samkomulaginu árið 2018 og settu aftur á þvingunaraðgerðir hefur efnahagur landsins orðið æ verri. Landsframleiðsla Írans dróst saman um 4,8 prósent árið 2018. Enn dró úr efnahag landsins á síðasta ári, en þá er áætlað að landsframleiðsla hafi verið nei- kvæð um 9,5 prósent, samkvæmt upplýsingum Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Fyrir árið 2020 reiknar sjóðurinn með að íranska hagkerfið muni ná meiri stöðugleika. Eftir að þessi spá sjóðsins var birt í október hefur stjórnmála- og öryggisástand landsins versnað mjög og enn herða Bandaríkin á þvingunaraðgerðum sínum. david@frettabladid.is  Fjölmenn mótmæli í Íran um helgina Fjölmenn mótmæli fóru fram í Íran um helgina þar sem krafist er afsagnir æðstu embættismanna. Þar var mótmælt eftir minning- arathöfn um þá 176 sem dóu þegar Íransher grandaði úkraínskri farþegaþotu. Íransher hefur viðurkennt að hafa grandað vélinni. Minningarsamkomur um þá sem létust þegar Íransher grandaði úkraínskri farþegaþotu voru haldnar við háskólana Amir Kabir og Sharif í Teheran. Margir íranskir háskólanemar voru meðal þeirra er dóu. Fjölmennar minningarathafnirnar þróuðust síðan út í mótmælafundi. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Fyrsta íranska kona til að vinna Ólympíuverð- laun flýr land og fordæmis klerkastjórnina Kimia Alizadeh, fyrsta og eina íranska konan til að vinna Ólymp- íuverðlaun, tilkynnti á Instagram um helgina að hún hafi ákveðið að yfirgefa heimaland sitt til frambúðar. Að sögn BBC hefur hún fordæmt írönsku stjórnina á samfélagsmiðlum fyrir „spillingu og lygar“. Hin 21 ára Kimia Alizadeh, vann til bronsverðlauna í taekwondo á Sumarólympíuleikunum 2016 í Ríó. Þá sagðist hún ætla alltaf að vera „dóttir Írans“. Nú segir hún hins vegar komið nóg. Í færslum á samfélagsmiðlum segir hún að yfirvöld í Íslamska lýðveldinu hafi notað velgengni hennar í áróðursskyni. Hún segist hafa klæðst öllu því og sagt allt það sem írönsk yfirvöld hafi skipað henni. „Ég endurtók það sem þeir skipuðu. Ekkert okkar skiptir máli fyrir yfirvöld, við erum bara verk- færi þeirra,“ segir hún. Alizadeh lýsir sér sem „einni af milljónum kúgaðra kvenna í Íran“. Tsai Ing-ven forseti Taívans vinnur stórsigur og snuprar Kínastjórn Forseti Taívans Tsai Ing-wen, fagnaði stórsigri með stuðningsmönnum sínum um helgina. NORDICPHOTOS/GETTY 1 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.