Fréttablaðið - 24.01.2020, Page 8
Sóttvarnalæknir hér á
landi hefur gefið út ráðlegg-
ingar vegna ferðalaga
Íslendinga til útlanda,
sérstaklega til Kína.
Hjólað í gegnum eyðilegginguna
MJANMAR Alþjóðadómstóllinn í
Haag í Hollandi hefur fyrirskipað
Mjanmar að grípa þegar í stað til
allra nauðsynlegra ráðstafana til
að stöðva þjóðarmorð og illa með-
ferð á Róhingja múslimum sem eru
í minnihluta í landinu.
Stjórnvöld í Gambíu sækja dóms-
mál gegn Mjanmar vegna þjóðar-
morðs á Róhingjum fyrir hönd
samtaka múslimaríkja.
Herinn í Mjanmar, sem lét til
skarar skríða gegn Róhingjum í
Rakhine-héraði haustið 2016, hefur
verið sakaður um f jöldamorð,
skipulagðar nauðganir og önnur
of beldisverk. Talið er að herinn
hafi drepið þúsundir Róhingja-
karla, kvenna og barna, og neytt
um 730.000 þeirra úr landi. Flestir
Róhingjanna f lúðu til Bangladess
og dvelja nú þar í f lóttamanna-
búðum.
Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjan-
mar og handhafi friðarverðlauna
Nóbels, mætti fyrir Alþjóðadóm-
stólinn í desember síðastliðnum til
að svara fyrir alvarlegar ásakanir
um þjóðarmorð. Þar hélt hún uppi
vörnum fyrir herinn og sagði ásak-
anir Gambíumanna bæði rangar og
í skötulíki.
Eftir að dómstóllinn birti kröfur
sínar í gær hefur Suu Kyi, viður-
kennt að stríðsglæpir kynnu að
hafa verið framdir gegn Róhingjum
í ættlandi hennar, en vísar enn á
bug ásökunum um þjóðarmorð.
Dómstóllinn k refst þess að
mjanmörsk yfirvöld skili skýrslu
um stöðu og þróun mála eftir fjóra
mánuði og síðan á hálfs árs fresti.
Koma verði í veg fyrir dráp á Róh-
ingjum og allt of beldi í garð þeirra.
Krafa Alþjóðadómstólsins er
bindandi og ekki hægt að áfrýja
ákvörðuninni. Hins vegar mun
dómurinn engar leiðir hafa til eftir-
fylgni. Búist er við að málið verði til
umfjöllunar dómstólsins í nokkur
ár. – ds
Alþjóðadómstóllinn krefst verndar Róhingja
Hundruð þúsunda Róhingja hafa
flúið ofsóknir Mjanmar til Bangla-
dess. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
RÚSSLAND Dúman, neðri deild rúss-
neska þingsins, samþykkti í gær ein-
róma frumvarp um þær breytingar
á stjórnarskrá landsins sem Vlad-
ímír Pútín forseti lagði fram og taka
eiga gildi eftir að kjörtímabili hans
lýkur árið 2044.
Atkvæðagreiðsla deildarinnar í
gær var sú fyrsta af þremur. Næst
verður gengið til atkvæða 11.
febrúar.
Athygli vekur að ekki er liðin vika
frá því að Pútín kynnti hugmyndir
að stjórnarskrárbreytingum. Hann
segir að þeim sé ætlað að styrkja
lýðræðið í landinu og færa þinginu
aukin völd. Ákvæði verða sett inn
um að forseti geti eingöngu setið
samanlagt í tvö kjörtímabil.
Sérstök nefnd sem Pútín skip-
aði hefur, ásamt þingmönnum,
lagt til ýmsar viðbætur við frum-
varpsdrögin sem samþykkt voru í
morgun.
Pútín, sem er 67 ára, hefur stýrt
Rússneska sambandsríkinu í meira
en 20 ár.
AP-fréttastofan segir gagnrýn-
endur telja að með stjórnarskrár-
breytingunum vilji Pútín tryggja
sér áframhaldandi áhrif. Þannig
segir rússneski auðmaðurinn Mik-
hail Khodorkovskíj, sem sat í 10 ár
fangelsi fyrir að ögra Pútín og býr
nú í Bretlandi, að forsetinn sé með
þessu að tryggja sér alger völd. Þau
völd munu nú færast meira í skugga
bakherbergja. Khodorkovskíj telur
að Pútín gæti mögulega verið að
undirbúa kosningar í ljósi almennr-
ar óánægju vegna efnahagsvanda
landsins. – ds
Neðri deildin
samþykkir
tillögur Pútíns
Frá rússneska þinginu í gær sem
samþykkti einróma stjórnarskrár-
breytingar Pútíns. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
HEILBRIGÐISMÁL Á þriðja tug eru
látnir af völdum kórónaveirunnar
sem geisar nú í borginni Wuhan í
Kína. Hátt í sjö hundruð manns hafa
smitast. Ferðir til og frá Wuhan, sem
og nágrannaborginni Huanggang,
eru nú bannaðar, samanlagt búa
þar um 18 milljónir manna. Þá hefur
öllum skrautsýningum og meiri
háttar hátíðarhöldum í tilefni kín-
versku áramótanna um næstu helgi
verið aflýst í höfuðborginni Peking.
Eftir að veirunnar varð fyrst vart
sendu kínversk yfirvöld viðvörun til
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar. Bönd hafa borist að markaði
með afurðir villtra dýra.
Stemningin í Wuhan er eftir atvik-
um. Viðmælandi BBC í borginni lýsti
andrúmsloftinu „líkt og um heims-
endi væri að ræða“. Hillur stórmark-
aða séu nánast tómar og þeir sem eru
utandyra hafi grímu fyrir vitum.
Síðustu daga hafa tilfelli verið
staðfest í Sjanghæ, Shenzhen og
Peking. Búið er að staðfesta eitt til-
felli í Bandaríkjunum. Grunur er
um að veiran hafi borist til annarra
landa, þar á meðal Taílands og Skot-
lands. Allir sem hafa látist voru með
undirliggjandi sjúkdóma.
Enginn grunur er um að veiran
hafi borist til Íslands, en sóttvarna-
læknir fylgist vel með stöðunni.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
hefur gefið út ráðleggingar vegna
ferðalaga Íslendinga til útlanda, sér-
staklega til Kína. Bent er á að gæta
vel að almennu hreinlæti, sérstak-
lega handþvotti. Forðast skuli náið
samneyti við einstaklinga sem eru
með almenn kvefeinkenni.
Þá er ráðlagt að forðast náið sam-
neyti við villt dýr eða dýr á almenn-
um mörkuðum. Nota skuli klút fyrir
vitin við hnerra þegar um kvefein-
kenni er að ræða og þvo hendur
reglulega. Þá eru þeir sem leita á spít-
ala eða heilsugæslu hérlendis beðnir
um að láta heilbrigðisstarfsmenn
vita hafi þeir verið í Kína nýlega.
Ekki er þó ástæða til að takmarka
ferðalög til og frá Kína.
Sóttvarnastofnun Evrópusam-
bandsins telur líklegt að veiran geti
borist til Evrópu, sérstaklega til
landa sem eru með beinar flugsam-
göngur til Wuhan.
Veiran virðist ekki valda jafn
skæðum sjúkdómi og HABL-veiran
gerði snemma á öldinni en þá létust
um 10 prósent þeirra sem sýktust.
arib@frettabladid.is
Stemningin á við heimsendi
Á þriðja tug eru látnir og hátt í sjö hundruð hafa smitast af kórónaveirunni í Kína. Tveimur borgum hef-
ur verið lokað. Íbúi segir andrúmsloftið minna á heimsendi. Sóttvarnalæknir fylgist vel með stöðunni.
Skortur er á andlitsgrímum í borginni Wuhan og því hefur framleiðsla á
þeim verið stóraukin síðustu daga vegna sóttvarna. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ÍTALÍA Luigi di Maio, hinn 33 ára
utanríkisráðherra Ítalíu, hefur
látið af formennsku í Fimmstjörnu-
hreyfingunni.
Hreyfingin sem er lýðhygli- og
andkerfisf lokkur, fékk 32,7 prósent
atkvæða og 227 þingmenn í kosn-
ingunum árið 2018. Mjög hefur
dregið úr fylgi f lokksins í skoð-
anakönnunum síðustu mánuði og
mælist f lokkurinn nú með minna
en 16 prósenta fylgi.
Allt hefur logað stafna í milli
í f lokknum síðustu misseri. Alls
hafa 27 þingmenn ýmist hætt af
sjálfsdáðum eða verið hraktir af
þingi á kjörtímabilinu. Fjárhagur
f lokksins hefur einnig reynst erf-
iður.
Fimmstjörnuhreyfingin og Lýð-
ræðisf lokkurinn mynda nú saman
ríkisstjórn á Ítalíu. – ds
Lætur af
formennsku í
Hreyfingunni
Fylgi flokks Luigi di Maio utanríkis-
ráðherra Ítalíu hefur fallið mjög
síðustu mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Gróðureldarnir í Ástralíu hafa sett mikinn svip á samfélagið, landslagið og ekki síst dýralífið í landinu. Eldarnir settu einnig svip sinn á hjólreiða-
keppnina Tour Down Under sem fer nú fram. Annar hluti keppninnar lá gegnum hæðirnar fyrir ofan Adelaide þar sem bæði hjólreiðamenn og
áhorfendur fundu svo sannarlega fyrir eyðileggingunni. Mikill hiti og hvass vindur gera það að verkum að búist er við f leiri eldum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
2 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð