Fréttablaðið - 23.12.2019, Page 2

Fréttablaðið - 23.12.2019, Page 2
Veður Norðaustanátt, víða 10-18 m/s en lægir. Snjókoma eða él norð- austan til og við norðvestur- ströndina. Bjart með köflum og yfirleitt þurrt um landið sunnan- vert. SJÁ SÍÐU 30 Gyðingar á Íslandi fögnuðu ljósahátíð Gyðingar á Íslandi fögnuðu í gær upphafi Hanukkah, Ljósahátíðarinnar, þar sem þess er minnst Jerúsalem var frelsuð undan Sýrlendingum og ljósið í musterinu fór aftur að loga. Avi Feldman, fyrsti rabbíni gyðinga hérlendis, stýrði viðburði í miðbæ Reykjavíkur af því tilefni. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, var viðstaddur athöfnina. Hátíðin, sem stendur í 8 daga, er gyðingum mikil gleðihátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski... STÓRUM HUMRI!! Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa. Einnig má finna vörur Norðanfisks í neytendapakkningum í verslunum Bónus um land allt. Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700 REYKJAVÍK Skýrsla sú sem unnið er að á vegum innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar er enn óútkom- in þrátt fyrir að áætlað hafi verið að hún yrði tilbúin 5. desember síðast- liðinn. Á stjórnarfundi í Sorpu undir lok september var samþykkt að óskað yrði eftir úttekt innri endurskoðun- ar borgarinnar á starfsemi Sporpu. Tilefnið var að bygging gas- og jarðgerðarstöðvar Sorpu í Álfsnesi fór 1,4 milljarða fram úr áætlun sem og kostnaður vegna tækjabúnaðar í stækkun móttökustöðvar í Gufu- nesi. Bókað var á stjórnarfundinum að innri endurskoðun athugi sér- staklega stjórnarhætti fyrirtækis- ins, einkum með tilliti til þess að mistök af þessu tagi hafi alvarleg áhrif á sjóðstreymi félagsins og fjár- stýringu. Jafnframt var í bókuninni tilgreint að athuga eigi þær úttektir sem áður hafi verið gerðar á Sorpu. Í skrif legu svari Halls Símonar- sonar, innri endurskoðanda Reykja- víkurborgar, staðfestir hann við Fréttablaðið  að unnið sé nú að skoðun á málefnum sem varða Sorpu í samræmi við beiðni stjórnar félagsins og að unnið sé samkvæmt áætlun sem kynnt var og samþykkt á fundi stjórnar þann 27. septem- ber. Jafnframt kemur fram í svarinu að úttektin hafi tekið lengri tíma en áætlað var í upphafi. Verkið sé þó í lokafasa. Ekki kom fram hvenær áformað er nú að því ljúki. – jþ Skýrsla um Sorpu nokkuð á eftir áætlun Frá urðunarstað Sorpu í Álfsnesi. JÓLAHÁTÍÐ Greiningardeild Íslands- stofu hefur rannsakað gögn yfir störf íslensku jólasveinanna og áætlar að íslensk börn fái tvö tonn af kartöflum í skóinn fyrir þessi jól og tæp fimm tonn af mandarínum. Samkvæmt frétt á vef Íslandsstofu eru íslensku jóla sveinarnir mun duglegri en kollegar þeirra í öðrum löndum. Samkvæmt greiningardeildinni þurfa jólasveinarnir að gefa gjafir í 45.500 skó á hverri nóttu og að það taki þá ekki nema átta klukku- stundir. Jólasveinarnir gefa því hvorki meira né minna 591.500 gjafir þessar þrettán nætur sem þeir vinna. Niðurstöðurnar gera ráð fyrir að þrjú prósent íslenskra barna séu óþekk og því neyðist sveinarnir til að gefa tvö tonn af kartöflum í skó- inn. Það er þó ekki mikið miðað við þau 4,8 tonn af mandarínum sem fara í skó íslenskra barna árlega. Kertasníkir er langvinsælastur Greiningardeildin telur þessar tölur, og þá staðreynd að vinnudag- ar þeirra eru mun fleiri en vinnu- dagar erlendra jólasveina, sýna svo ekki verði um villst að þeir eru þeir allra duglegustu í heimi. Þeir eru einnig einstaklega gjafmildir því að þeir munu gefa gjafir fyrir tæplega þrjú hundruð milljónir á þessu ári. Fréttablaðið hefur áður sagt frá því að kannanafyrirtækið MMR hafi skoðað vinsældir jólasvein- anna þrettán. Eitt þúsund Íslend- ingar átján ára og eldri voru spurðir. MMR segir að Kertasníkir sé sá vinsælasti, en að á hæla hans komi Stúfur. Aftur á móti eru Askasleikir, Þvörusleikir og Pottaskefill þeir óvinsælustu. Þannig virðist þjóðin ekki kippa sér mikið upp við þjóf- óttu jólasveinana, en óvinsælastir eru þeir sem hafa tamið sér þann ósið að sleikja óhrein matarílát. En hvort þeir neyðist oftar en Kerta- sníkir og Stúfur, til þess að setja kartöf lur í skó barnanna kemur ekki fram í niðurstöðum MMR. Enginn er alltaf góður Í fyrra ritaði Hrund Þrándardóttir sálfræðingur hjá Sálstofunni mikil- vægt opið bréf til jólasveinanna. Hún minnti þar á að enginn sé 100 prósent góður allan daginn, hvorki börn né fullorðnir. Þó það sé oft sagt að börn þurfi að vera góð til að fá í skóinn þá þurfi við- mið um hver eru „góð“ og hvenær þau eigi að vera góð að vera mjög skýr. Þá sé einnig mjög mikilvægt að gæta jafnræðis við val á gjöfum, því börnin beri oft saman gjafirnar sem þau fá frá jólasveinunum. gudjoningi@frettabladid.is Krakkar fá tvö tonn af kartöflum í skóinn Íslandsstofa hefur loks gefið út allar helstu tölur sem tengjast jólasveinunum. Hún áætlar að þrjú prósent íslenskra barna séu svo óþæg að þau fái kartöflu í skóinn og segir íslensku sveinana vera mun duglegri en hina erlendu. Íslandsstofa segir jóla sveina hrifna af mandarínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Á átta klukkustundum gefa jólasveinarnir gjafir í 45.500 skó á hverri nóttu. Alls áætlar Íslandsstofa að þrjú prósent íslenskra barna séu óþekk. MENNTAMÁL Auður Þórunn Rögn- valdsdóttir er dúx Tækniskólans af rafeindavirkjabraut. Áður en Auður lauk námi í rafeindavirkjun hafði hún lokið hugbúnaðarverkfræði frá Danska tækniháskólanum DTU og stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. Auður Þórunn segir að hana hafi alltaf langaði að kunna að smíða rafeindarásir en ekki bara teikna þær. Lokaverkefni hennar, steríó- magnari og fjarstýring fyrir magn- arann, er stofustáss sem Auður smíðaði og notar heima hjá sér til að spila tónlist. Auður stefnir nú á nám í kennslu- fræði til að hefja strax í vor störf sem kennari við rafeindavirkjadeild Tækniskólans. Alls útskrifuðust 275 nemendur frá Tækniskólanum í síðustu viku. Komu þeir af af 49 námsbrautum og var yngsti nemandinn 17 ára en sá elsti 61 árs. – ds Rafeindavirki er dúxinn í Tækniskólanum 2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.