Fréttablaðið - 23.12.2019, Page 4

Fréttablaðið - 23.12.2019, Page 4
40” BREYTTUR MEGA CAB TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM FYRIR ÁRAMÓT EIGUM TIL AFGREIÐSLU STRAX CREW CAB BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR. EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM. BJÓÐUM UPP Á 35”, 37” OG 40” BREYTINGAR RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.987.745 KR. ÁN VSK. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 SAMGÖNGUR Sorpa bs. hefur fram- leitt metan sem eldsneyti frá árinu 2000 og í dag er hægt að kaupa gasið á fimm stöðum á landinu, fjórum á höfuðborgarsvæðinu og einum á Akureyri. Fyrirtækið framleiðir um 3,5 milljónir normalrúmmetra af gasinu en aðeins 60% af því er nýtt, eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum. Afgangurinn er brenndur. Næsta vor er ráðgert að Sorpa bs. stórauki metanframleiðslu sína þegar ný gas- og jarðgerðarstöð, sem kostar um 4,5 milljarða króna, verður tekin í notkun. Alls fer met- anframleiðslan úr 3,5 milljónum normalrúmetra í 6,5 milljónir. Sorpa bs. er í eigu sveitarfélag- anna sex á höfuðborgarsvæðinu og því er ákveðinn þrýstingur á þau að auka notkun sína á metani. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum sendi framkvæmdastjóri Sorpu áskorun til allra sveitarfélaganna og undirstofnana þeirra að þau kanni þann möguleika að fjölga fara- tækjum í sinni eigu sem gangi fyrir metani. Viðtökur þeirra sem hafa svarað, Kópavogsbæjar og Slökkvi- liðisins á höfuðborgarsvæðinu, hafa verið heldur dræmar. Nú er því í skoðun að Strætó bs. stórauki notkun sína á metani. Hugmyndir eru um að fyrirtækið fjárfesti í allt að 20 metanbílum. Fyrirtækið keypti tvo metanbíla árið 2005 en reynslan af þeim var ekki góð. Ný og betri tækni hefur þó síðan litið dagsins ljós og í sept- ember keypti fyrirtækið sinn þriðja metanvagn af gerðinni Scania City- wide. Bíllinn var notaður og var kaup- verðið 31 milljón króna. Sá fjórði verður síðan tekinn í notkun í byrjun næsta árs en áætlað kaup- verð hans er 41 milljón króna. Verðmunurinn helgast af því að sá nýjasti er mun minna ekinn. „Þessi bíll sem við fengum í september hefur reynst mjög vel. Hann hefur verið í fullri notkun undanfarið og þykir góður í akstri,“ segir Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmda- stjóri Strætó bs. Til þess að fjölga metanbílum Strætó þarf að leggja eins kílómetra metanlögn frá Bíldshöfða og að höf- uðstöðvum Strætó á Hesthálsi sem og að fjárfesta í betri áfyllibúnaði. „Þetta er framlenging á lögn sem liggur frá Álfsnesi. Það hefur verið ókostur að þurfa að fara út fyrir höfuðstöðvarnar til þess að fylla bílana,“ segir Jóhannes Svavar. Veitur hf. munu standa straum af framkvæmdinni. Niðurstöður frumathugunar og arðsemisgrein- ingar liggja fyrir. Samkvæmt Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur, upplýs- ingafulltrúa fyrirtækisins, verða tölurnar þó ekki gefnar út opinin- berlega þar sem þær verða nýttar í útboði ef til þess kemur. „Það er gert ráð fyrir að Strætó skuldbindi sig til þess að kaupa ákveðið lágmarks- magn, “ segir Jóhannes Svavar. bjornth@frettabladid.is Strætó íhugar metanvæðingu Kannaður er fýsileiki þess að fjölga metanvögnum hjá Strætó bs. Rykið verið dustað af hugmynd um að leggja sérstaka metanlögn að bækistöð fyrirtækisins. Nýlega fjárfesti Strætó í tveimur metanvögnum. Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is Til skoðunar er að leggja eins kílómetra langa metanlögn að höfuðstöðvum Strætó. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þessi bíll sem við fengum í september hefur reynst mjög vel. Hann hefur verið í fullri notkun undanfarið og þykir góður í akstri. Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmda- stjóri Strætó bs. SAMFÉLAG Kerfi R A RIK er háð br áð a bi r gð a v ið ger ðu m e f t i r skemmdirnar sem urðu í  ham- faraveðrinu nýlega. Það er því við- kvæmt og ber skjaldað eins og er en hefur þó haldið í því illviðri sem í gær gekk yfir Norður- og Austur- land. RA RIK er í við bragðs stöðu en fyrir tækið vonast til að fara inn í jólin á ró legri nótum þegar ó veðrið er gengið yfir. „Það má segja að kerfið sé hálf- laskað núna og því er það við- kvæmara fyrir slæmu veðri á sumum stöðum,“ segir Helga Jóhannsdóttir, formaður neyðar- stjórnar RARIK. Gular veður við- varanir voru í gildi á öllu Norð- ur- og Austur landi í gær, þeim lands hlutum sem urðu verst úti nýlega þegar skemmdir urðu á kerfi RA RIK. Mörg heimili voru þá raf magns laus í nokkra daga. Slæm ísingar veður spá var í  fyrrinótt en kerfið stóðst þá áraun. Engar skemmdir hafa orðið á bráða birgða- við gerðunum, sem gerðar voru eftir síðasta storm, í þeim sem í gær gekk yfir. „Við erum búin að vera að berj- ast við af leiðingarnar af þessu veðri alveg síðan það varð,“ segir hún. „Það hafa verið dá litlar truflanir á á kveðnum svæðum og við erum búin að vera á fullu að bregðast við þeim. Við skipta vinirnir hafa því þurft að sýna okkur þolin mæði,“ heldur Helga áfram. „Ekkert hefur komið upp á núna á meðan þessar við varanir eru í gildi. Við fylgjumst vel með og fyrir tækið er enn á hæsta við búnaðar stigi,“ segir Helga. „En við tökum stöðuna þegar veðrið hefur gengið yfir og vonumst til að geta f lautað við- búnaðar stig af og farið inn í jólin að eins ró legri. Við vonum bara að bæði við og við skipta vinir okkar getum haldið gleði leg jól með raf- magni.“ ottar@frettabladid.is Vona að allir geti haldið raf mögnuð og gleði leg jól Kerfi RARIK er við- kvæmt og berskjaldað eftir illviðri undanfarið. 1 Munu ræða hvort Harry og Meghan verði svipt titlum sínum Borgarráð Brighton & Hove mun ræða tillögu þess efnis að hertogahjónin Harry og Meghan Markle verði svipt titlum sínum sem hertogahjónin af Sussex. 2 Viðvörunarbjöllur hringja á jólum Fíkniefnið Spice hefur gert vart við sig meðal hópa ung- menna í öllum hverfum. 3 Þvo hár með vatni úr kaff-vélinni Hárgreiðslustofur í vesturhluta borgarinnar hafa notast við mismunandi leiðir við hárþvott í heitavatnsleysinu í dag. SAMFÉLAG Bæjarráð Vestmanna- eyja hefur tekið fyrir ósk Lund- ans, skemmtistaðar í bænum, um lengdan opnunartíma í dag, Þor- láksmessu. Lundinn sótti um að fá að hafa opið til þrjú í nótt og til klukkan fjögur aðfaranótt 27. desember. Þá sóttu forsvarsmenn skemmtistaðarins um að áramóta- fögnuðurinn myndi fá að standa til kl. 06.00. Bæjarráðið veitti góðfúslegt leyfi að því gefnu að farið sé að skilyrðum sýslumanns um slíkt áfengisleyfi og með fyrirvara um jákvæða umsögn hlutaðeigandi eftirlitsaðila. Þá er umsóknin háð ríkri kröfu um frágang og snyrtimennsku og áskilur bæjarráð sér rétt til að láta þrífa umhverfi skemmtistaðarins á kostnað rekstraraðila ef þörf krefur. – bb Partýpinnar á Þorláksmessu Októberfest í desember. Allavega í Vestmannaeyjum fyrir áhugasama. 2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.