Fréttablaðið - 23.12.2019, Page 10

Fréttablaðið - 23.12.2019, Page 10
Palestínumenn báru fram kæruna árið 2015. P Ó LL A N D Samband kaþólsk u kirkjunnar í Póllandi og stjórnar- flokksins Lög og réttlæti er sterkt, svo sterkt að það er byrjað að valda kirkjunni sjálfri vandamálum, eins og vefurinn Politico greinir frá. Í Póllandi er ekki opnuð opin- ber bygging án blessunar prests. Ekki heldur knattspyrnuleik- vangs, slökkviliðsstöðvar eða jafn vel hringtorgs. Á öllum hátíðum og viðburðum, trúarlegum jafnt sem veraldlegum, kemur kirkjan að með einum eða öðrum hætti. Í hverjum skóla, hverjum réttarsal og hverri opinberri skrifstofu hangir róðukross við hlið skjaldarmerkis landsins. Lög og réttlæti byggja sín stjórn- mál á íhaldssemi, gömlum gildum, hinu hefðbundna f jölsk yldu- mynstri og trúnni. Ríkið, þjóðin, f lokkurinn og kirkjan eru eitt. Ekki eru þó allir Pólverjar sem gleypa pilluna án þess að hugsa sig tvisvar um og þetta samlífi kirkjunnar og f lokksins er byrjað að skaða kirkjuna. Fjölmargir Pól- verjar, þótt trúaðir séu, fella sig ekki við harða afstöðu stjórnvalda í garð hinsegin fólks. Þá finnst mörgum sem sjálfstæði kirkjunnar sé ógnað með þessari tengingu við ríkis- valdið. „Fórnarlömbin í þessu sambandi eru réttindi borgaranna,“ segir Pawel Borecki, kennari við laga- deild Varsjárháskóla. „Mörgum borgurum finnst þeir óvelkomnir í þessu landi.“ Í lögum landsins og stjórnar- skránni er skýrt kveðið á um aðskilnað ríkis og kirkju. Fram- kvæmdin er hins vegar önnur í raun því kirkjunnar menn koma inn á hið veraldlega svið með ýmsum hætti og hafa áhrif langt út fyrir það sem rammi laganna setur þeim. Til dæmis í menntakerfinu, dómstól- um, menningarmálum, svo ekki sé talað um bein stjórnmálaleg áhrif. Stjórnmálamenn sjálfir græða á þessu samstarfi, því auk þess að höfða almennt til trúar fólks þá skaffa prestarnir sjálfir atkvæði fyrir frambjóðendur. Þetta á ekki aðeins við um Lög og réttlæti, eldri f lokkar bæði á hægri og vinstri vængnum hafa haft sterk tengsl við kirkjuna. Lög og réttlæti hefur hins vegar fært þetta samband upp á annað stig. Hinn pólski páfi, Jóhannes Páll II, sem lést árið 2005, er lykilper- sóna í þessari sögu. Hans hlutverk í sigrinum á kommúnismanum er ekki vanmetið og árið 2014 var hann gerður að dýrlingi. Á meðan Jóhannes Páll stýrði Vatíkaninu var pólskur almenningur á bandi kirkjunnar í einu og öllu. En eftir að hann féll frá hefur neikvæð afstaða til kirkjunnar vaxið, sér í lagi eftir að samlífið með Lögum og réttlæti hófst árið 2015. Í könnun sem gerð var árið 2017 höfðu 48 prósent Pólverja nei- kvæða afstöðu til sambandsins og 70 prósent sögðu að klerkar ættu ekki að skipta sér af veraldlegum málefnum. Hér er einnig um mikið kynslóðabil að ræða. Kirkjusókn er á undanhaldi, sérstaklega hjá þeim yngri. Ofan á þetta var stórt barna- níðingahneyksli presta af hjúpað fyrr á þessu ári. Blaðamaðurinn Karol Wilc- zynski, er einn af þeim sem hafa barist fyrir því að tengsl kirkjunnar við ríkisvaldið rofni. En sjálfur er hann sanntrúaður kaþólikki. Hann ásamt fleirum sendu kirkjunni opið bréf í haust þar sem þess var krafist að kirkjunni yrði skilað til fólksins. „Við heyrum sífellt meira af pre- dikunum sem sá hatri manna á milli í stað þess að okkur sé kennt um hinn miskunnsama guð,“ segir Wilczynski. kristinnhaukur@frettabladid.is Tengsl stjórnarflokksins við kirkjuna hafa neikvæð áhrif Sterk tengsl stjórnarflokksins Laga og réttlætis og kaþólsku kirkjunnar í Póllandi eru farin að skaða kirkjuna. Þar í landi kemur kirkjan að öllu því sem hið opinbera gerir þó kveðið sé á um aðskilnað í stjórnarskrá. Hafið er átak trúaðra til að endurheimta sjálfstæði kirkjunnar og skera á tengslin. Trúaðir berjast nú fyrir aðskilnaði ríkis og kirkju í Póllandi, en tengsl þeirra eru sterk. NORDICPHOTOS/GETTY Við heyrum sífellt meira af predik- unum sem sá hatri manna á milli í stað þess að okkur sé kennt um hinn miskunn- sama guð Karol Wilczynski blaðamaður ÍSR AEL Yf irsaksóknari Alþjóða stríðsglæpadómstólsins vill hefja formlega rannsókn á Ísraels- mönnum vegna framferðis þeirra á Vesturbakkanum, Gaza strönd- inni og austurhluta Jerúsalem- borgar. Málið hefur verið á borði dómstólsins síðan árið 2015 þegar Palestínumenn kærðu framferði Ísraelsmanna. Yfirsaksóknari vill rannsókn á stríðsglæpum Benjamín Netanyahu, forsætis- ráðherra Ísraels, heldur því fram að kæran eigi sér enga stoð, sé drifin af pólitík og að dómstóllinn hafi ekki lögsögu í málinu. Fatou Bensouda, hinn gambíski yfirsaksóknari, segir hins vegar að kæran uppfylli öll þau skilyrði sem dómstóllinn setur fyrir rannsókn og hefur beðið dómarana um að skera úr um á hvaða svæðum hægt sé að gera hana því þær hafa óvana- lega lagalega stöðu. Slík rannsókn myndi bæði beinast að hernaðarað- gerðum Ísraelsmanna og uppbygg- ingu landnemabyggða á landi Pal- estínumanna. – khg Fatou Bensouda yfirsaksóknari. AFGANISTAN Ashraf Ghani, núver- andi forseti Afganistans, virðist hafa verið naumlega endurkjörinn í kosningum sem fóru fram í land- inu í lok september. Niðurstöður kosninganna voru birtar fyrst í gær, nærri þremur mánuðum eftir að atkvæði voru greidd. Að sögn AP fréttastofunnar fékk Ghani 50,64% atkvæða en frambjóðandi þurfti að að fá yfir helming greiddra atkvæða í fyrstu umferð til að tryggja sér embættið. Mótframbjóðandinn Abdullah Abdullah, hægri hönd forsetans í ríkisstjórninni, hlaut 39,52% Ghani hafði sigur í forsetakjöri í Afganistan með naumum mun atkvæða. Hann hefur þegar mót- mælt niðurstöðunum og lýst sjálfur yfir sigri. Abdullah hefur heimild til að kæra úrslitin og hefur þegar greint frá því að svo verði gert. Bráðabirgðaúrslit áttu að verða ljós 19. október. Bið varð á þeim vegna tæknilegra örðugleika og ásakana nokkurra frambjóðenda um kosningasvindl. Fyrirfram var búist við að þeir Ghani og Abdullah, myndu keppa hart um embættið. Að sögn AFP áttu forsetakosning- arnar að vera tákn styrks hins unga lýðræðis Afganistans. Hins vegar varð af margvíslegum ástæðum að ógilda um eina milljón þeirra 2,7 milljóna atkvæða sem greidd voru. Kosningaþátttaka var því lítil. Talibanar stjórna eða ríkja í meira en helmingi landsins. og ráðast nær daglega gegn afganska ríkishernum og embættismönnum og þeim sem eru álitnir bandamenn stjórnvalda. Á sama tíma falla tugir óbreyttra borgara. – dsGhani þurfti yfir helming atkvæða til að tryggja endurkjör. NORDICPHOTOS/AFP Niðurstöður kosning- anna voru birtar fyrst í gær, nærri þremur mánuðum eftir að atkvæði voru greidd. BRETLAND Elísabet II Bretadrottn- ing sótti kirkju í gær nálægt sveita- setri sínu á meðan Filippus prins eiginmaður hennar til 72 ára, dvelur á King Edward VII sjúkrahúsinu í London. Að sögn AP fréttastofunnar er enn ekki ljóst hvort hinn 98 ára gamli prins og hertogi af Edinborg, muni dvelja með fjölskyldunni yfir jólin á sveitasetri konungsfjölskyld- unnar í Sandringham í Norfolk. Samkvæmt áratuga hefð býður Elísabet drottning fjölskyldunni að verja jólunum í Sandringham. Vilhjálmur Bretaprins, Katrín hertogaynja og börn þeirra munu dvelja þar yfir hátíðirnar ásamt nánustu fjölskyldu. Drottningin hefur ekki breytt út af áratuga hefð og fór að venju í kirkju í gær. Kon- ungsfjölskyldan mun einnig sækja messu á jóladagsmorgun. Fulltrúar Buckinghamhallar birtu í gær sérstakar hátíðarmyndir af Elísabetu drottningu búa til jóla- eftirrétt með dyggri aðstoð frá syni sínum, Karli Bretaprins, barna- barninu Vilhjálmi prins og hertoga af Cambridge og langömmubarninu George prins af Cambridge, sem lét ekki sitt eftir liggja. Allir eru þeir í erfðaröðinni til krúnunnar. Karl sá fyrsti, Vil- hjálmur annar og sá stutti er þriðji í erfðaröðinni. – ds Elísabet drottning sækir kirkju en óvíst með Philip Konunglegur jólaeftirréttur útbúinn í Sandringham. NORDICPHOTOS/GETTY GEIMFERÐIR Starliner geimfarinu sem átti að f ljúga til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, var snúið við og það lenti aftur á jörðinni í gær. Starliner, geimfari Boeing fyrir- tækisins, var skotið á loft á föstudag. Í framtíðinni á að nota farið til að ferja geimfara út í geim frá Banda- ríkjunum. Ómögulegt reyndist að fljúga því til geimstöðvarinnar því geimfarið brenndi mun meira eldsneyti en til stóð og missti af sporbrautinni. Var því snúið aftur til jarðar. Um borð í farinu voru jólagjafir til geimfaranna sex sem vinna í geimstöðinni. Þeir verða því að opna pakkana síðar. – ds Engar jólagjafir til geimfaranna Úr Alþjóðlegu geimstöðinni. 2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.