Fréttablaðið - 23.12.2019, Blaðsíða 17
Eini hópurinn sem telur sig
munu nýta sér þjónustuna
minna er fólkið sem aldrei
verslar við rekstraraðila í
miðbænum.
Opnunartímar
Kirkjugarða Reykjavíkur um jólin
Á aðventunni, um jól og áramót eru Fossvogskirkjugarður, Gufuneskirkjugarður,
Kópavogskirkjugarður og Hólavallagarður opnir allan sólarhringinn nema
Fossvogskirkjugarður er lokaður fyrir allri bílaumferð á
aðfangadag milli kl 11:00 og 14:00 vegna mikils fjölda gangandi og slysahættu.
Þeir sem ekki geta vitjað leiða ástvina sinna nema koma akandi
er bent á að koma annað hvort fyrir eða eftir tilgreindan lokunartíma.
Ökumönnum er bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Suðurhlíð og Vesturhlíð.
Á Þorláksmessu og aðfangadag er hringakstur í Gufuneskirkjugarði
með aðkomu eingöngu frá Hallsvegi og farið er út norðan megin inn á
Borgaveg eins og verið hefur.
Símavarsla verður á skrifstofu Kirkjugarðanna á aðfangadag og gamlársdag
frá kl. 08:00 - 12:00 í síma 585 2700 fyrir þá sem þurfa
að leita upplýsinga og aðstoðar.
Hægt er að nálgast upplýsingar um staðsetningu leiða á vefnum www.gardur.is
Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma.
www.kirkjugardar.is
Mér er ljúft og skylt að svara grein Miðbæjarfélagsins í Fréttablaðinu þann 11.
desember, þar sem félagið bregst
við umfjöllun minni um rangfærsl-
ur þess um göngugötur í miðborg
Reykjavíkur. Í greininni er nafnið
mitt nefnt 14 sinnum, og það að
ég búi erlendis þrisvar. Miðbæjar-
félagið gerir hins vegar enga tilraun
til þess að skýra rangfærslur sínar
og notar óhikað aftur sömu tölur og
ég hef sýnt fram á að eru rangar.
Það vantar því enn skýringu á því
af hverju félagið heldur því fram að
246 rekstraraðilar hafi skrifað undir
undirskriftalista þess, þótt þeim sé
fullljóst að fjöldi aðila skrifi undir
tvisvar og að á listanum sé fólk sem
aldrei hefur verið með rekstur á
svæðinu. Ekki er skýrt af hverju
félagið hefur kosið að stórýkja tölur
varðandi starfsmannafjölda fyrir-
tækjanna. Svo ekki sé talað um þá
fjölmörgu aðila sem eru ósáttir við
að vera bendlaðir við málflutning
félagsins í dag.
Vandræði Miðbæjarfélagsins
við prósentureikning
Einnig vantar skýringu á því
hvernig félagið komst að þeirri
niðurstöðu að 92% rekstraraðila við
Laugaveg, Skólavörðustíg og Banka-
stræti hafi skrifað undir listann.
Það glittir reyndar aðeins í hana
Miðbæjarfélagið forðast að svara fyrir rangfærslur
Páll Tómas
Finnsson
upplýsinga-
ráðgjafi og
áhugamaður
um vistvænar
borgir
þar sem félagið talar um að 90%
rekstraraðila og fyrirtækja „sem
þátt tóku“ hafi lýst sig andvíga lok-
unum. Það er hins vegar ekki þann-
ig sem prósentureikningur virkar,
og því algjör fjarstæða að tala um
þetta sem óhagganlega staðreynd
eins og gert er – enn og aftur – í
svarinu.
Það var fyrirsjáanlegt að Mið-
bæjarfélagið myndi reyna að klína
á mig einhverri óvild gagnvart lista-
mönnum og hárskerum. Á undir-
skriftalistanum stendur vissulega
að þar sé um að ræða rekstraraðila
í miðbænum, en vandamálið er
að talsmaður félagsins hefur ekki
kynnt það þannig í fjölmiðlum.
Hann hefur haldið því fram að 92%
fyrirtækja og verslana á svæðinu
séu á móti lokunum, sem er einfald-
lega kolrangt. Það skal því engan
undra þó að ég treysti Rannsóknar-
setri verslunarinnar betur til þess
að telja útsölustaði verslunar og
þjónustu á svæðinu en Miðbæjar-
félaginu.
Afstaða rekstraraðila á skjön við
viðhorf borgarbúa
Miðbæjarfélagið nefnir ágæta
viðhorfskönnun Zenter rannsókna
í svarinu, en í könnuninni kemur
margt athyglisvert fram. Helsti
kostur hennar er að hægt er að
skoða og meta gögnin sem liggja til
grundvallar, sem er meira en hægt
er að segja um fullyrðingar Mið-
bæjarfélagsins.
Könnunin sýnir að 62% rekstr-
araðila í miðborginni eru andvíg
göngugötum allt árið. Miðbæjar-
félagið hefur haldið því fram að
hlutfallið á göngugötusvæðinu sé
74%, en það þarf kannski ekki að
koma á óvart að sú tala er röng. Rétt
hlutfall er 65,7%.
Talsmaður félagsins kallaði það í
útvarpsviðtali „hneykslanlegt“ að
blanda rekstraraðilum á Granda og
í Kvosinni í málið, en eins og kom
fram í svarinu hikar Miðbæjarfélag-
ið ekki við að gera það sjálft þegar
það hentar málstað þess. Félaginu
til huggunar vil ég benda á að svörin
frá Granda og Hafnartorgi voru tólf,
og því felur 75% stuðningurinn þar í
sér afstöðu níu aðila.
Sé viðhor f höf uðborgarbúa
skoðað blasir við allt önnur mynd.
Í miðbænum eru 74% íbúa hlynntir
göngugötum allt árið og 6% til við-
bótar hlutlausir. Í póstnúmerunum
103-107 eru 77% íbúa annað hvort
hlynnt eða hlutlaus. Hvergi á höfuð-
borgarsvæðinu er meirihluti and-
vígur göngugötum.
Stuðningurinn er 75% í hópi
þeirra sem nýta sér þjónustu í mið-
bænum vikulega eða oftar og 89%
þeirra telja sig munu nýta þjónust-
una jafnoft eða oftar verði svæðinu
breytt í göngugötur. Það sama á við
um 78% þeirra sem sækja þjónust-
una einu sinni til þrisvar í mánuði.
Eini hópurinn sem telur sig munu
nýta sér þjónustuna minna er fólkið
sem aldrei verslar við rekstraraðila
í miðbænum.
Hægt væri að nefna fjölmörg
atriði til viðbótar úr viðhorfskönn-
uninni sem benda til þess að við-
skipti muni aukast í miðborginni
verði svæðinu breytt í göngugötur.
Forsendan er að þar verði skapað
vistlegt og skemmtilegt borgarum-
hverfi fyrir gangandi og hjólandi,
sem samkvæmt talningum eru 81%
þeirra sem fara um Laugaveginn.
Prófessor Wojciech Sadurski, heimskunnur pólskur fræði-maður á sviði lögfræði, bíður
nú niðurstöðu dómsmáls vegna
ummæla sem hann lét falla á
Twitter um pólska stjórnarflokkinn
Lög og réttlæti (PiS). Með ummæl-
unum líkti hann f lokknum við
skipulögð glæpasamtök.
Stjórnmálaf lokkurinn höfð-
aði í kjölfarið meiðyrðamál gegn
honum, sem vakið hefur hneykslan
í alþjóðlegu samfélagi fræðafólks í
lögfræði.
Fjallað hefur verið um málið í
virtum fjölmiðlum um allan heim
og hefur fræðasamfélagið staðið
fyrir undirskriftasöfnun til stuðn-
ings honum undir myllumerkinu
#WithWoj. Þykir það til marks um
slæmt ástand mála í Póllandi að
reynt sé að þagga niður í gagnrýni
á stjórnvöld með því að lögsækja
gagnrýnendur.
Ég tek undir þessi sjónarmið. Það
er mikilvægt að unnt sé að gagnrýna
aðila í valdastöðum í hverju sam-
félagi án þess að eiga yfir höfði sér
valdbeitingu og í því tilliti verður að
veita nokkuð svigrúm til óheflaðrar
og óhefðbundinnar tjáningar. Það
að draga fólk fyrir dómstóla getur
eitt og sér talist valdbeiting, óháð
því hver niðurstaða dómsmálsins
verður, sérstaklega ef efnahags-
legt eða pólitískt valdaójafnvægi
er á milli aðila. Þeir sem eru í slíkri
valdastöðu verða því að temja sér
mildi í meðförum um vald sitt.
Hjá því verður ekki komist að
#WithWoj
Haukur Logi
Karlsson
nýdoktor
við lagadeild
Háskólans í
Reykjavík
benda einnig á víðara samhengi
þessarar málshöfðunar. Á síðustu
árum hefur PiS gengið skipulega til
verks við að þrengja að sjálfstæði
dómstóla í Póllandi með ýmsum
aðferðum. Af því tilefni hefur fjöldi
mála ratað til Evrópudómsstóls-
ins, meðal annars að frumkvæði
Evrópusambandsins, sem telur
blikur á lofti varðandi sjálfstæði
dómstóla í Póllandi.
Það vekur því sérstakan óhug að
pólsk stjórnvöld lýsi velþóknun á
stöðu mála á Íslandi með því að
skila inn greinargerð til stuðn-
ings þeim ótilhlýðilegu pólitísku
afskiptum og lögbrotum sem urðu
við skipun Landsréttar á árinu 2017.
Það eitt og sér ætti að vekja íslensk
stjórnvöld til umhugsunar um rétt-
mæti þeirrar vegferðar að áfrýja
niðurstöðu Mannréttindadóms-
stólsins í máli Ástráðs Haraldssonar
héraðsdómara.
Það mætti segja að glöggt sé gests
augað, að pólsk stjórnvöld sjái
stuðning og réttlætingu við aðgerðir
sínar við að knésetja pólska dóms-
valdið í áfrýjun íslenskra stjórn-
valda.
Á meðan klóra íslenskir ráða-
menn sér af heimóttarskap í hausn-
um yfir afskiptasemi alþjóðasam-
félagsins af fullveldi Hæstaréttar
Íslands til að beita stjórnsýslulög-
um nr. 37/1993 á hvert það álitamál
um mannréttindi sem upp kann að
koma.
Sem betur fer eru íslenskir fræði-
menn ekki í þeirri stöðu að þurfa
að þola málsóknir vegna gagnrýni
á gjörðir ráðandi afla. Mál prófess-
ors Wojciech Sadurski sýnir hins
vegar að full ástæða er til þess að
vera vakandi fyrir öllum tilburðum
í þá veru, enda nægir oft að þagga
harkalega niður í einum áberandi
gagnrýnanda, til þess að aðrir
hugsi sig tvisvar um að láta skoð-
anir sínar í ljós. Þess vegna stend ég
með Woj.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M Á N U D A G U R 2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9