Fréttablaðið - 23.12.2019, Qupperneq 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Maxine, eða Max eins og hún er oftast kölluð hefur unun af ferðalögum og
hefur ferðast mikið um heiminn.
Þegar hún kom til Íslands hafði
hún verið á ferðalagi í 10 ár. „Ég var
á ferðalagi frá Asíu til Evrópu og
hafði verið í Danmörku áður en ég
kom hingað,“ segir Max. Á Íslandi
gripu örlögin í taumana en þar
kynntist hún manninum sínum
Magnúsi og saman eiga þau synina
Elvis Thor fjögurra ára og Axl Tý
tveggja og hálfs árs. Þau hjónin
hafa ekki látið barneignir stoppa
sig í að ferðast og Elvis litli var ekki
nema þriggja mánaða þegar hann
fór fyrst til útlanda.
„Við erum vön að fara út í lok
nóvember á hverju ári og koma til
baka í febrúar eða mars, en Elvis
fæddist 22. nóvember svo við
gátum ekki farið þá. Við fórum
í staðinn í febrúar eða mars árið
eftir. Þá fórum við til Indlands,
Malasíu, Balí og Ástralíu þar sem
amma hans býr.“
Þar með var ferðalögum Elvis
litla ekki lokið það árið en í nóv-
ember fór litla fjölskyldan aftur út
og Elvis hélt upp á eins árs afmælið
sitt í Marokkó og varði jólunum á
Tenerife.
„Svo fæddist Axl í mars 2017 og
við fórum út í nóvember eins og
venjulega. Elvis varð tveggja ára
í Taílandi og jólin voru haldin á
Balí,“ segir Max.
Drukku romm og sungu í
karókí á Madagaskar
Ein minnisstæðustu jólin sem
Max hefur átt með fjölskyldu sinni
á ferðalagi var í fyrra á Mada-
gaskar. „Við ætluðum bara að eyða
deginum á hótelherberginu okkar
af því allt fólkið þar var með fjöl-
skyldum sínum og enginn á ferli.
Við vorum með bílstjóra af því
við máttum ekki keyra sjálf þar.
Bílstjórinn bauð okkur að koma í
þorpið hans og vera með fjölskyld-
unni hans. Við hugsuðum bara af
hverju ekki, við höfðum ekkert
annað að gera.“
Max og fjölskylda fóru því í
þorpið þar sem fjölskylda bíl-
stjórans bjó nánast öll í litlu húsi.
„Þau elduðu heilan helling af mat,
alls kyns kjöt og grænmeti. Til
dæmis svínsmaga og annan sér-
stakan mat. Við töluðum saman og
drukkum sterkt romm frá Mada-
gaskar sem er hefð að drekka á jól-
unum þar. Svo urðum við að dansa
því það eru ekki jól á Madagaskar
ef þú dansar ekki. Svo enduðum
við öll í karókí.“
Þetta var mjög sérstök lífs-
reynsla að sögn Max, og þegar hún
fór út til að fara á klósettið sem var
fyrir utan húsið, sem Elvis fannst
mjög skrýtið, þá heyrði hún fólk
syngja og dansa í öllum húsunum í
kring. Allir í þorpinu voru að fagna
jólunum á sama hátt.
Mikill farangur fylgir börn-
um á ferðalagi um heiminn
Max segir að henni finnist alls
ekki erfitt að ferðast með ungbörn.
„Þegar við komum í vélina gaf
ég þeim alltaf brjóst svo maginn
væri fullur af mat, svo sofnuðu
þeir oftast og sváfu þar til vélin
lenti,“ segir hún. „Þetta verður ögn
flóknara með eldri börn, en mörg
flugfélög bjóða upp á afþreyingu
fyrir börn og svo er hægt að leyfa
þeim að horfa á uppáhaldsteikni-
myndina sína og þá er f lugferðin
allt í lagi. En það fylgir mikill
farangur því að ferðast með börn.
Eins og leikföng, bleyjutaska,
aukableyjutaska, matur, auka
bolur á þig ef þau skyldu æla á þig
og líka stórir hlutir eins og kerra
og jafnvel barnabílstóll. Margar
bílaleigur bjóða ekki upp á bílstóla
fyrir ung börn og þú þarft að hafa
þetta allt með þér í f lugið.“
Þeir Elvis og Axl eru mjög hrifnir
af f lugvélum og tala mikið um að
fara í stóru flugvélina. Fjölskyldan
ferðast mest til Asíu því þaðan
er stutt að fara til Nýja-Sjálands
og Max segir að þar sé ódýrt að
fljúga milli landa. En hún hlakkar
til að halda fyrstu jól allrar fjöl-
skyldunnar saman á Íslandi. „Ég
hef alltaf lagt áherslu á það við
strákana að jólin snúist um að
vera með fjölskyldunni, að sýna
kærleika og fyrirgefa. Það á betur
við um allan heim heldur en aug-
lýsingar í sjónvarpinu sem segja að
þú þurfir að kaupa dýra hluti til að
halda jól.“
Í anda þessarar hugsunar hafa
Max og synir hennar dundað
sér við að búa til heimatilbúnar
jólagjafir handa öllum. Þau hafa
líka búið til gjafapappír út teikni-
myndasögum, plakötum og jafn-
vel treflum. „Ég hef viljað leggja
áherslu á það við strákana að það
þarf ekki að gefa dýrar gjafir til að
gleðja einhvern. Það að búa þær til
er það sem veitir gleði.“
Gefa heimilislausum börn-
um mat og nammipoka
Max segir ekki mikið um jólahefð-
ir hjá fjölskyldunni á ferðalögum
en þau kaupi þó yfirleitt nammi
handa heimilislausum börnum.
„Það er mjög mikið um heimilis-
laus börn í Asíu að betla á helstu
ferðamannastöðunum. Við gefum
þeim yfirleitt öllum nammipoka
og ef þau eru svöng kaupum við
mat handa þeim. Við segjum
strákunum okkar að það séu ekki
öll börn eins heppin og þeir. Þessi
börn geta ekki opnað ísskápinn
þegar þau eru svöng og fengið sér
að borða því foreldrar þeirra eiga
engan mat, og kannski eiga þau
enga foreldra. Við viljum að þeir
viti þetta því á Íslandi sérðu ekki
betlandi börn. Við viljum kenna
þeim að jólin snúast um að gefa,
ekki bara þínum nánustu heldur
til samfélagsins.“
Max langaði að gefa af sér þessi
jól líka og bauð sig fram til að
aðstoða í jólamatnum hjá Hjálp-
ræðishernum en aðstoðar hennar
var ekki þörf. „Ég held ég hafi verið
of sein að hafa samband, það buðu
greinilega margir sig fram. En mér
hefði þótt gaman að geta kennt
strákunum mínum að á Íslandi
eru líka fjölskyldur sem eiga ekki
nógan mat og að það er fallegt að
þarna komi fólk og borði saman
og búi til eina stóra fjölskyldu. Í
ár verðum við hjá tengaforeldrum
mínum og fjölskyldu mannsins
míns. Það verður gaman fyrir strák-
ana að fá að upplifa jól með frænd-
systkinum sínum,“ segir Max.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Fjölskyldan saman á Bali.
Elvis Thor og Axl Týr á jólunum á Bali.
Ein eftirminnilegustu jól sem Max hefur upplifað á ferðalagi voru á Madagaskar með fjölskyldu bílstjórans.
Max með báða strákana sína á bakinu á ferðlagi á Indlandi.
Framhald af forsíðu ➛
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R