Fréttablaðið - 23.12.2019, Page 26

Fréttablaðið - 23.12.2019, Page 26
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall Erlings Ólafssonar. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Helga Kristjánsdóttir Faðir minn, Jóhann Eyfells myndlistarmaður og prófessor, lést á hjúkrunarheimili í Fredericksburg í Texas þann 3. desember síðastliðinn. Útför fer fram frá Dómkirkjunni 27. desember klukkan 15.00. Ingólfur Eyfells og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Sigurðsson löggiltur endurskoðandi, Naustabryggju 54, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut, laugardaginn 14. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 27. desember klukkan 13.00. Guðný Leósdóttir Margrét Gunnarsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Sigurður Gunnar Sveinsson Þóra Gunnarsdóttir Matthías Einarsson Hildur Gunnarsdóttir Héðinn Friðjónsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Jón Björgvinsson Ísafold, Strikinu 3, Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 19. desember sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Björgvin Magnússon Björk Tryggvadóttir Ólafía Margrét Magnúsdóttir Sæmundur Pálsson Guðný Rósa Magnúsdóttir Gunnar Guðjónsson Erla Magnúsdóttir Þórður Höskuldsson og afabörn. Merkisatburðir 1603 Ahmed 1. verður soldán í Tyrkjaveldi aðeins þrettán ára gamall. Hann ríkir til dauðadags 1617. Hann tekur við af föður sínum Memeð 3. Akmeð er þekktastur fyrir byggingu Bláu moskunnar í Istanbúl. 1945 Ný Ölfusárbrú er tekin í notkun. 1978 Bandaríski raðmorðinginn John Wayne Gacy er handtekinn í Chicago. 1987 Ný lögreglusamþykkt fyrir Reykjavík er staðfest. Hún kemur í stað samþykktar sem gilt hafði í meira en hálfa öld. 1989 Ion Iliescu verður forseti Rúmeníu. Ludwig van Beethoven (1770–1827), þýska gullaldartónskáldið, er almennt talinn vera einn þeirra listamanna sem hafi breytt tónlistarsögunni. Það gerði hann meðal annars með níu sinfóníum sem eru taldar meðal helstu meistara- verka vestrænnar menningar. Á þessum degi hélt Ludwig van Beethoven sögulega risatónleika í Theatre an der Wien, Vínarborg, þar sem efnisskráin var ekki skorin við nögl. Þar var frumfluttur hinn innilegi fjórði píanókonsert, fimmta og sjötta sinfónían, Kórfantasían, konsertarían Ah, perfido og þrír þættir úr C-dúr messunni. Beethoven stjórnaði auk þess sem hann lék af fingrum fram. Tónleikarnir voru maraþontónleikar, því á fjórum klukkustundum voru alls átta verk Beethovens frumflutt. Mörgum gestanna þótti setan fulllöng í köldu leikhúsinu. Fimmta sinfónía Beethovens, með sína spennuþrungna upphafstakta, er að öllum líkindum þekktasta tónverk sígildra tónbókmennta. Það er eitt þeirra tónverka sem oftast heyrast í tónleikasölum heimsbyggðarinnar. Tónleikarnir þennan dag mörkuðu þau tímamót að þetta var í síðasta skiptið sem einn fremsti píanóleikari sinnar tíðar kom fram opinberlega. Heyrnarleysi Beethovens var orðið það alvarlegt. Þ E T TA G E R Ð I S T 22 . D E S E M B E R 18 0 8 : Sögulegir risatónleikar Beethovens í Theater an der Wien Loftur Jóhannesson f lug-maður lést þann 23. janúar á þessu ári. Hann var fæddur í Reykjavík þann 23. desember 1930 og hefði því fagnað 89 ára afmæli sínu í dag ef hann hefði lifað. Loftur var af mörgum talinn vera einn auðugasti Íslendingurinn en því hefur verið haldið fram að hann hafi fyrst og fremst efnast af vopnasölu til vanþróaðra ríkja. Rétt er að geta þess að Loftur neitaði því alla tíð að starfa við vopnasölu en heimildir um þá umdeildu iðju koma fyrst og fremst úr erlendum bókum og fjölmiðlum. Umdeildur ferill hans var dreginn fram í dagsljósið fyrir nokkrum árum í tengslum við Panamaskjölin svoköll- uðu. Þá kom í ljós að Loftur tengdist fjórum aflandsfélögum á Bresku Jóm- frúaeyjunum og Panama. Loftur var sannarlega gefið nafn við hæfi enda áttu háloftin hug hans alla tíð. Hann lauk atvinnuflugmannsprófi árið 1949, aðeins 19 ára gamall, en fluttist þá til Bretlands þar sem hann lauk frekara námi og vann fyrir ýmis þarlend f lug- félög. Í Bíafra-stríðinu 1967-1970 lokuðust allar f lutningsleiðir til landsins. Loftur f laug nokkrar ábatasamar en áhættu- samar ferðir með hjálpargögn fyrir svissneska flugfélagið Balair. Hann eygði þó fljótlega tækifæri og í samstarfi við nokkra Íslendinga stofn- aði hann sitt eigið f lugfélag,Fraktflug. Það fjárfesti í tveimur gömlum DC-6 f lugvélum frá Japan, undirbauð sam- keppnisaðilana í hjálparf lugi og hóf gróðarekstur. Loftur og hinir Íslending- arnir högnuðust vel, en gefið hefur verið í skyn að f lugfélagið hafi ekki aðeins flutt hjálpargögn til stríðandi fylkinga. Eins og áður segir fjölluðu erlendir miðlar af og til um meint vopnaviðskipti Lofts. Frægust er sagan af því að Loftur hafi selt stjórnarher Saddams Hussein í Írak tólf skriðdreka sem breska blaðið The Sunday Times greindi frá. Frumleg hugsun virðist þó ekki hafa átt upp á pallborðið hjá erlendum vopnasölum því Loftur ku hafa gengið undir heitinu „Íslendingurinn“ meðal þeirra. Árið 1992, birti þýska tímaritið Der Spiegel frétt sem unnin var upp úr skjölum föllnu austur-þýsku leyni- þjónustunnar Stasi. Í greininni var full- yrt að Loftur hefði verið milliliður milli vopnasala í Austur-Þýskalandi og CIA í stórfelldum vopnaviðskiptum. Þannig á Loftur að hafa verið í svo miklu uppá- haldi hjá Stasi að hann hafi fengið að geyma vopn og önnur stríðstól í sinni eigu í vopnageymslum austur-þýska hersins. Uppljóstranir Spiegel vöktu mikla athygli og rannsakaði þýsk þing- nefnd málið. Í umfjöllun Sunday Times var fullyrt að fyrirtæki Lofts, Techaid, hefði átt í viðskiptum við Stasi fyrir milljónir sterlingspunda með eldflauga- byssur, Kalashnikov-riffla og fjölmörg önnur vígatól. Loftur kvæntist tvisvar, fyrst Irmgard Toft og síðar Sophie Genevieve Dumas Jóhannesson. Loftur og Sophie héldu heimili á nokkrum stöðum á heims- kringlunni, meðal annars í London, í Maryland-fylki í Bandaríkjunum sem og á Barbados í Karíbahafinu. Þau eign- uðust eina dóttur. bjornth@frettabladid.is Íslenskur vopnasali sem lauk lífsgöngunni á árinu Margir töldu hann einn auðugasta Íslendinginn og var auðurinn talinn stafa frá um- fangsmiklum viðskiptum með vopn og önnur hergögn, eftir því sem sögur herma. Fátt er þó vitað með vissu í þessum efnum. Yfir lífshlaupi hans er eins konar ævintýrablær. Þó því verði ekki haldið fram með vissu hafa erlendir fjölmiðlar talið að Loftur hafi verið umfangsmikill í vopnasölu á árum. 2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R22 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.