Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.12.2019, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 23.12.2019, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is SMÁRATORG HOLTAGARÐAR AKUREYRI ÍSAFJÖRÐUR www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN Fyrir þínar bestu stundir Skemmtilegar Múmíngjafavörur Múmín púði 50x50 cm. Fjólublár eða blár. Fullt verð: 5.900 kr. JÓLATILBOÐ: 5.015 kr. 15% AFSLÁTTUR Allar Múmín gjafavörur með 15% jólaafslætti Múmín púðaver 50x30 cm Fullt verð: 4.900 kr. JÓLATILBOÐ: 4.165 kr. Múmín snyrtitaska, minni, gráblá. Fullt verð: 3.900 kr. JÓLATILBOÐ: 3.315 kr. Múmín rúmföt, 140x200 cm. Fullt verð: 9.900 kr. JÓLATILBOÐ: 8.415 kr. MÚMÍN SÆNGURFÖT Múmín rúmfötin samanstanda af sængur veri og koddaveri sem bæði eru með rennilás. Þau eru úr 100% lífrænni bómull og fást í 3 litum, græn, grá og gul. Múmín snyrtitaska, stærri. Fullt verð: 6.900 kr. JÓLATILBOÐ: 5.865 kr. Afgreiðslutímar til jóla Þú finnur afgreiðslutíma allra verslana Dorma á heimasíðu okkar www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði ÞEGAR VALUR FREYR SKAUT PLÖNTUNA BRAST ÉG Í GRÁT ÞANNIG AÐ MAMMA ÞURFTI AÐ FARA MEÐ MIG HEIM. 2 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Ævintýrið um Kar-íus og Baktus þekkja f lestir Í s l e n d i n g a r enda er um að r æ ð a síg i ld a sögu eftir norska höfundinn Thor- björn Egner. Bókin kom út árið 1949 og fjallar í stuttu máli um tann- tröllin tvö, Karíus og Baktus, sem lifa sældarlífi í munninum á sæl- gætisgrísnum Jens. Piltur er ekkert sérstakleg duglegur að tannbursta sig og það hentar tanntröllunum vel enda vita þeir fátt betra en að ryðja í sig sætindum. Þegar þeir gerast of aðgangsharðir í byggingafram- kvæmdum þá fer Jens til tannlæknis með skelfilegum afleiðingum fyrir félagana. Í byrjun febrúar verður nýtt leik- rit um Karíus og Baktus frumsýnt í Hörpu. Tveir ungir leikarar, þau Elísabet Skagfjörð og Kjartan Darri Kristjánsson, munu bregða sér í gervi tanntröllanna og er verkið í leikstjórn Söru Marti Guðmunds- dóttur. Alls hafa átta sýningar verið settar í sölu og mun leikritið verða sett upp í Kaldalóni í Hörpu. Sýningin verður aðeins 45 mínútur að lengd og er sett á svið með það í huga að kynna unga krakka fyrir töfrum leikhússins í fyrsta skipti. Þá verður það mögulega heppileg aukaafurð að börnin hugi að eigin tannheilsu eftir sýninguna. Elísabet og Kjartan Darri segjast vera orðin spennt fyrir því að sýna verkið fyrir unga leikhúsgesti enda getur fyrsta leikhúsreynslan oft verið eftirminnileg. „Börn lifa sig svo mikið inn í hlutina og því er bæði stressandi og gefandi að leika fyrir þau. Þau sitja ekkert á sér ef þeim er ekki skemmt og því viljum við gjarnan gefa þeim góða upp- lifun,“ segir Elísabet. Það væri ólíkt hennar fyrstu leik- húsheimsókn sem endaði í tárum. „Ég fór á Litlu hryllingsbúðina í Borgarleikhúsinu árið 1999. Þegar Valur Freyr skaut plöntuna brast ég í grát þannig að mamma þurfti að fara með mig heim,“ segir Elísabet kímin. Þessi harmræna fyrsta reynsla gerði Elísabetu þó síður en svo afhuga leikhúsinu. Hún útskrifað- ist úr Listaháskóla Íslands tæpum tveimur áratugum síðar og hefur einnig lokið námi í ballett og nútímalistdansi frá Listdansskóla Íslands.. Kjartan segir að hans fyrsta leik- húsminning sé í móðu. „Ég hrein- lega man ekki eftir fyrstu leikhús- heimsókn minni en veit þó að ég fór á Kardemommubæinn ásamt foreldrum mínum. Kannski er ástæðan sú að ég á að hafa verið stjarfur af hræðslu allt leikritið,“ segir Kjartan og hlær. Hann útskrifaðist sem leikari úr LHÍ 2015 og hefur síðan starfað hjá Leikfélagi Akureyrar og tekið þátt í fjölda sýninga í sjálfstæðu senunni. Hvorugt þeirra segist hafa séð leikritið um tanntröllin á sviði. „Nei, en ég hlustaði mikið á hljóð- bókina sem barn og einhvern veg- inn er sagan ljóslifandi í kollinum á mér,“ segir Kjartan Darri. Að þeirra sögn mega leikhús- gestir búast við því að sagan verði sögð með hefðbundnum hætti. „Tanngarðar hafa ekki mikið breyst í áranna rás og fólk fer enn þá til tannlæknis,“ segir Elísabet. Kjartan bendir á að þó hafi þurft að aðlaga textann að nútímanum á sumum stöðum. „Fransbrauð er ekki það versta sem börn láta ofan í sig í dag,“ segir hann brosandi. steingerður@frettabladid.is Fransbrauð ekki það versta fyrir börn Ný uppsetning hins sígilda leikverks um Karíus og Baktus eftir Thorbjörn Egner verður aðeins 45 mínútur að lengd og er ætluð til að kynna unga krakka fyrir töfrum leikhússins í fyrsta skipti. Vonast er til að aukaafurð nýrrar uppfærslu á Karíusi og Baktusi verði til þessað börn hugi betur að tannheilsu sinni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.