Fréttablaðið - 30.12.2019, Page 2
Veður
Norðan 5-13 m/s í kvöld með snjó-
komu á norðanverðu landinu, en
rofar til sunnanlands. Frost 0 til 6
stig, en frostlaust með suður- og
vesturströndinni seinnipartinn.
SJÁ SÍÐU 20
Æsast þá leikar
Ös var á sölustað Hjálparsveitar skáta í Reykjavík við Malarhöfða í gær. Aðeins má bjóða f lugelda í smásölu frá og með 28. desember fram á þrett
ánda dag jóla. Sala á skoteldum til yngri en tólf ára er bönnuð. „Öll meðferð barna á þeim skal vera undir eftirliti fullorðinna. Einnig er bannað að
selja eða af henda skotelda barni undir 16 ára aldri sé þess getið í leiðbeiningum með skoteldum,“ segir á síðu slökkviliðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þú færð Gissur hvíta á næsta
flugeldamarkaði björgunarsveitanna
Byrjar á fallegum gull og
silfurpálmum og fer síðan í
gullstjörnur með brakandi
silfri. Breytist yfir í rauðar
stjörnur og endar með
silfurbraki.
skot
39
SEK
4
5
4
49
kg
Vilhjálmur Einarsson, einn frækn
asti íþróttamaður Íslands, lést á
laugardag, 85 ára að aldri.
Vilhjálmur fæddist 5. júní 1934
að Hafranesi við Reyðarfjörð. For
eldrar hans voru Sigríður Vilhjálms
dóttir frá Hánefsstöðum á Seyðis
firði og Einar Stefánsson frá Mýrum
í Skriðdal.
Vilhjálmur setti Norðurlandamet
í þrístökki, 15,83 metra, rétt áður
en velja átti íslenska keppendur
á Ólympíuleikana í Melbourne
í Ástralíu árið 1956. Í þrístökks
keppninni þar setti Vilhjálm
ur ólympíumet með 16,26 metra
stökki. Tveimur tímum síðar bætti
Brasilíumaðurinn Ferreira Da Silva
metið með 16,35 metra stökki. Vil
hjálmur fékk því silfurverðlaun og
varð fyrsti Íslendingurinn til að
komast á verðlaunapall á ÓL.
Vilhjálmur varð í þriðja sæti á
Evrópumeistaramóti í Stokkhólmi
árið 1958. Á ÓL í Róm 1960 stökk
hann lengst 16,37 og lenti í 5. sæti.
Vilhjá lmu r va r skólast jór i
Héraðsskól ans í Reyk holti 1965
1979 og skóla meist ari Mennta skól
ans á Eg ils stöðum frá upp hafi skól
ans 1979 til árs ins 2001.
Ef t irlifand i eig inkona Vil
hjálms hans er Gerður Unndórs
dóttir. Saman áttu þau sex syni.
Vilhjálmur Einarsson var fimm
sinnum útnefndur íþróttamaður
ársins, 1956, 1957, 1958, 1960 og
1961.
Vilhjálmur
Einarsson látinn
Vilhjálmur Einarsson, fyrrverandi
skólameistari. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
IÐNAÐUR Ein af áramótabombun um
í ár er bjórinn Stjörnuljós, af rakstur
samstarfs brugghúsanna Smiðjunn
ar og Borgar.
Sveinn Sigurðsson, einn eigenda
Smiðjunnar, segist ákaflega stoltur
af því að hafa fengið tækifæri til að
brugga með Borg. Smiðjan hóf að
brugga sinn eigin bjór fyrir um ári.
Smiðjan er í Vík í Mýrdal. Sveinn
segir um 95 prósent gesta vera
erlenda ferðamenn sem margir hafi
fylgst með framkvæmdum Sveins
og fjölskyldu á samfélagsmiðlum og
þekki því hvern krók og kima.
„Árið er búið að vera skemmtilega
klikkað og það er ekkert leiðinlegt
að enda það á þessum nótum,“ segir
Sigurður en veitingastaðurinn var
opnaður árið 2017.
Frá því að dyrnar voru opnaðar á
Smiðjunni hefur verið mikið að gera
Starfsmennirnir eru orðnir þrettán
og sá fjórtándi á leiðinni. Sveinn réð
föður sinn sem þúsundþjalasmið.
„Það hefur verið vöntun á húsnæði
hérna og fyrstu sex starfsmennirnir
sem við réðum höfðu aldrei unnið á
veitingahúsi en þeir voru með hús
næði hér. Þannig að það var ráðist í
að kaupa starfsmannahús sem við
tókum í gegn. Svo gerði ég íbúð í
bílskúrnum á nokkrum vikum. Við
vorum svo sjálf að kaupa okkur hús
hér í Vík,“ segir Sveinn.
Að sögn Sveins hefur hann þurft
að gúgla sig fram úr alls konar
vandamálum því að í Vík sé vöntun
á iðnaðarmönnum.
„Ég er markaðsfræðimenntaður og
hef reyndar lítið verið að sinna því
en það vonandi kemur á næsta ári,“
segir Sveinn sem skrifaði BSritgerð
sína um handverksbrugghús. Hann
tók meðal annars viðtal við Árna
Theódór Long, sem er bruggari hjá
Borg og einn sá færasti í bransanum
hér á landi.
„Ég náði að láta öll mín verkefni
í skólanum snúast um handverks
bjóra því þessi kúltur er eitthvað svo
fallegur og spennandi. Það er eitt
hvað svo fallegt að öll þessi brugg
hús séu saman að búa til vöru en séu
samt í samkeppni. Við ætluðum upp
haflega að gera sumarbjór saman en
við höfðum einfaldlega ekki tíma
til að hittast, það var svo mikið að
gera,“ útskýrir Sveinn.
„Þannig að áramótabjór var það,
með björtum sítrustónum í bland
við sindrandi apríkósur og ferskjur
sem ætti að geta lýst upp áramóta
næturhimininn. Það er búið að vera
gaman að vinna með þessum snill
ingum. Ég er mikið bjórnörd og er
búinn að fylgjast með þeim öllum
í mörg ár. Þetta var ekkert nema
dásamlegt.“
benediktboas@frettabladid.is
Enda framkvæmdaár
með áramótabruggi
Mannskapurinn í Smiðjunni Brugghúsi í Vík við bjórkatla fyrirtækisins.
Sveinn Sigurðsson,
einn af eigendum
Smiðjunnar brugghúss,
og fjölskylda hans hafa
átt viðburðaríkt ár. Þau
byrjuðu að brugga sinn
eigin bjór í Vík og eru
nú með 13 ársverk. Þau
enda árið með einni
áramótabombu.
HEILBRIGÐISMÁL Um áramótin
munu komugjöld á heilsugæslu um
allt land lækka úr 1.200 krónum í
700. Stefnt er að því að leggja gjöldin
af árið 2021. Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra kynnti á dög
unum áform um lækkun greiðslu
þátttöku almennings í heilbrigðis
þjónustu.
Aukin framlög ríkisins vegna
þessa nema 135 milljónum króna á
næsta ári. Áformað er að fella komu
gjöld í heilsugæslu á dagvinnutíma
niður að fullu árið 2021 og er áætl
aður kostnaður vegna þess um 350
milljónir króna. Líkt og verið hefur
greiða börn, aldraðir og öryrkjar
ekki komugjöld á heilsugæslu.
Svandís sagði hlutfall kostnaðar
sem komi úr vasa einstaklingsins
á Íslandi vera hærra en þau viðmið
sem Alþjóðaheilbrigðisstofnun
setur. – ds
Komugjöld á
heilsugæslu
lækka 2020
3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð