Fréttablaðið - 30.12.2019, Side 9

Fréttablaðið - 30.12.2019, Side 9
Árið 2019 er senn á enda og nýtt tekur við. Ef litið er yfir þær erlendu fréttir sem settu svip sinn á árinu voru Donald Trump, viðskiptastríð hans og Brexit fyrirferðarmikið. Ýmsar kosningar, ofbeldi og fjölda- mótmæli settu sterkan svip á fréttir ársins. Þá voru loftslagsmál voru í brennidepli auk norðurslóða. Sterk mótmælaalda í Hong Kong á árinu Mikil mótmæli hafa verið í Hong Kong síðastliðið hálft ár. Upphaf þeirra lá í tilraunum stjórnvalda til að auðvelda framsal á íbúum Hong Kong til meginlands Kína. Borgin nýtur sjálfstjórnar innan Kína og eru íbúar þar mun frjálsari. Óttuð- ust menn að andófsmönnum sem eru frjálsir í Hong Kong yrði vísað til meginlandsins. Milljónir mót- mæltu á götum úti og til átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda. Síðar hafa mótmælin þróast í að verja frelsi og lýðræði borgarinnar. Ríkisstjórnin í Peking, sem efndi til mikilla hátíðarhalda í október í tilefni 70 ára stjórnar kommúnista, hefur ítrekað varað mótmælendur í Hong Kong við að ganga of langt. Mótmæli víðar um heim Mótmæli voru gegn einræði víðar. Þannig leiddu mótmæli til þess að Omar al-Bashir var komið frá völdum í Súdan og til afsagnar Evo Morales í Bólivíu eftir mjög umdeildar kosningar þar í landi. Fjölmenn mótmæli neyddu stjórn- völd í Ekvador til áframhaldandi niðurgreiðslna á eldsneyti og for- seti Chile varð að lofa nýrri stjórnar- skrá. Abdelaziz Bouteflika, leiðtogi Alsírs, sagði af sér í kjölfar mótmæla og Adel Abdul-Mahdi, forsætisráð- herra Íraks, einnig. Hundruð féllu í sterkri mótmælaöldu í Íran. Mótmæli vegna loftslagsmála Loftslagsmótmæli og skólaverkföll voru í mörgum borgum veraldar. Fyrirmynd yngra fólksins í baráttu í loftslagsmálum var hin sextán ára sænska stúlka, Greta Thun- berg, sem hóf skólaverkfall á síðasta ári til að þrýsta á aðgerðir gegn útblæstri koltvísýrings. Á árinu fór hún víða til að vekja athygli á lofts- lagsbreytingum. Sigldi á seglbáti til New York þar sem hún hélt þrumu- ræðu yfir þjóðarleiðtogum á lofts- lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og sagði þá hafa stolið draumum hennar og æsku með innantómum orðum á meðan fólk þjáist og deyi. Þaðan sigldi hún til Spánar þar sem loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna var haldin í Madríd og sagði allsherjarverkföll nemenda að hennar fordæmi ekki hafa borið árangur. Ungi loftslagsaðgerðasinn- inn afþakkaði umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs en varð mann- eskja ársins hjá tímaritinu Time. Dómkirkja brennur Heimurinn horfði á með skelfingu í apríl þegar eldur eyðilagði þak og innviði Notre Dame-dómkirkj- unnar í París, eins helsta kennileitis borgarinnar. Mikil umræða varð um endurbætur hinnar gotnesku kirkju sem reist var á árunum 1163 til 1345. Forsetinn Emmanuel Macron hefur lofað að endurbótum verði lokið innan fimm ára. Undir lok árs komu þó fram efasemdir um að hægt væri að bjarga kirkjunni með góðu móti. Viðskiptastríð Kína og Bandaríkjanna Viðskiptastríð milli Bandaríkjanna og Kína hélt áfram og var fyrirferð- armikið í heimsfréttum. Báðir aðilar skelltu reglubundið á nýjum tollum. En í desember var aðeins dregið í land. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að viðskiptadeilurnar kunni að hafa kostað hagkerfi heimsins 700 milljarða dala. Bandaríkin settu meðal annars þvinganir á sölu tækni til Huawei, kínversks framleiðanda fjarskiptabúnaðar. Viðvaranir um að hagkerfi heims- ins væru að hægja á sér urðu til þess að Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði vexti í fyrsta sinn síðan 2008. Tvær vaxtalækkanir fylgdu í kjölfarið. Trump deildi opinber- lega á bankann fyrir að lækka ekki vextina frekar og sagði seðlabanka- stjórann eins og „þrjóskt barn“. Mannabreytingar í Evrópu Seðlabanki Evrópu reyndi að örva stöðnuð hagkerfi álfunnar. Eitt síð- ustu verka Mario Draghi sem forseta Seðlabankans áður Christine La- garde tók við völdum, var að hefja endurskoðun peningastefnunnar. Jean-Claude Juncker lét af störf- um forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og við tók Ursula von der Leyen, náin sam- starfskona Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Tyrkir ráðast á sýrlenska Kúrda Eftir að Trump Bandaríkjaforseti dró herlið sitt burt, réðust Tyrkir inn í héröð Kúrda í norðurhluta Sýr- lands en Kúrdar hafa verið banda- menn Bandaríkjanna og Atlants- hafsbandalagsins gegn Íslamska ríkinu. Forseti Tyrklands, Recep Erdogan, vildi koma upp öryggis- svæði á landamærum ríkjanna og koma Sýrlenskum flóttamönnum í Tyrklandi fyrir á svæðinu. Tyrkir segja sýrlensku Kúrdana vera hryðjuverkamenn sem styðji Verka- mannaflokk Kúrda sem hefur staðið í átökum gegn Tyrkjum í áratugi. Í aðdraganda innrásarinnar hörf- uðu Bandaríkjamenn úr héraðinu, að skipan Trump forseta. Kom ákvörðun hans forsvarsmönnum herafla Bandaríkjanna verulega á óvart. Var ákvörðunin um brott- flutninginn fordæmd víða um heim. Þá batt Bandaríkjaforseti einhliða enda á friðarviðræður við talíbana í Afganistan. Afganskir samninga- menn eiga í erfiðleikum með að koma þeim aftur að borðinu. Trump staðfesti í október að morðinginn Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, hefði sprengt sig í loft upp þegar bandarískir sérsveitarmenn réðust inn á heimili hans í Sýrlandi. Enn kosið í Ísrael Ísraelar héldu kosningar í apríl og aftur í september. Þar tókust á stærstu f lokkar landsins, hið Blá- hvíta bandalag hershöfðingjans Benny Gantz og Likud-bandalag Benjamins Netanyahu forsætisráð- herra. Netanyahu, sem hefur gegnt embætti forsætisráðherra síðan 2009, tókst ekki að mynda starf- hæfa stjórn eftir þingkosningar. Gantz ekki heldur og því verða þriðju kosningarnar á innan við ári haldnar í mars á næsta ári. Net anyahu naut stuðnings Bandaríkjanna þegar fullveldi Ísra- elsríkis yfir Gólanhæðum var viður- kennt og landnemabyggðir á Vestur- bakkanum lýstar lögmætar. Í nóvember var forsætisráðherr- ann svo ákærður fyrir mútugreiðsl- ur og svik. Heimurinn í ár Donald Trump Bandaríkjaforseti, Brexit, við- skiptastríð, hamfarir, ofbeldi og órói settu einna helst svip sinn á árið sem er að líða. Líkt og áður voru kosningar víða sem sumar komu á óvart. ERLENDUR FRÉTTAANNÁLL Ungi loftslagsaðgerðasinninn Greta Thunberg var mikið í fréttum á árinu. Hún sagði þjóðarleiðtoga hafa stolið draumum hennar og æsku með innantómum orðum á meðan fólk þjáist og deyi. NORDICPHOTOS/GETTY Trump Bandaríkjaforseti dró herlið sitt burt frá héruðum Kúrda í norður- hluta Sýrlands. Tyrkir réðust á Kúrda í kjölfarið. NORDICPHOTOS/AFP Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína kunni að hafa kostað hagkerfi heims 700 milljarða dala. NORDICPHOTOS/GETTY Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, tókst ekki að mynda starfhæfa stjórn eftir tvennar þingkosningar. Kosið verður á nýju ári. NORDICPHOTOS/GETTY Heimurinn horfði á þegar eldur eyðilagði þak og innviði Notre Dame-dóm- kirkjunnar í París, eins helsta kennileitis borgarinnar. NORDICPHOTOS/GETTY 3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.