Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.12.2019, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 30.12.2019, Qupperneq 11
Stjórnmálakreppa Ítalíu Eftir stjórnmálakreppu á Ítalíu tilkynnti Matteo Salvini, leiðtogi þjóðernisflokksins Norðurbanda- lagsins í ágúst um stjórnarslit við Fimmstjörnuhreyfinguna og boð- aði kosningar. En í stað kosninga myndaði Fimmstjörnuhreyfingin nýja ríkisstjórn með jafnaðar- mönnum í Demókrataf lokknum og Salvini var hent út úr stjórninni. Þetta hefur þjappað þremur f lokkum ítalskra hægrimanna til samstarfs; Bandalaginu undir stjórn Matteo Salvini, Forza Italia undir forystu Silvio Berlusconi og öfga- hægrif lokknum Ítalska bræðra- laginu undir stjórn Giorgiu Meloni. Víðar kosningar Það voru kosningar víðar. Í fyrstu kosningum í Taílandi frá valda- ráninu árið 2014 tókst stjórn- málaf lokkum hlynntum hernum rétt að ná meirihluta, með aðstoð dómstóla. Á Spáni voru tvennar kosningar og eru sósíalistar áfram stærsti f lokkurinn á spænska þing- inu undir forystu Pedro Sanchez. Fylgi Lýðflokks hægrimanna jókst verulega og öfgahægrif lokkurinn Vox bætti við sig miklu fylgi. Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands og forystumaður Bharat- iya Janata-f lokksins, hins hægri- sinnaða þjóðernisf lokks hindúa, vann kosningar og situr annað kjörtímabil. Joko Widodo tryggði sér fimm ár til viðbótar sem for- seti Indónesíu. Afríska þjóðarráðið vann þingkosningar í Suður-Afríku, þrátt fyrir að hlutur flokksins hefði minnkað verulega. Frjálslyndi f lokkurinn undir forystu Scotts Morrison, forsætisráðherra Ástral- íu, hélt síðan velli í kosningum þrátt fyrir slæmar skoðanakannanir. Forsetakosningarnar í Argentínu komu Peronistum til valda þegar Alberto Fernández sigraði Mauricio Macri. Fyrrverandi forseti landsins, hin umdeilda, Cristina Fernández de Kirchner, varð varaforseti. Frjálslyndir vinstrimenn undir forystu Justins Trudeau voru aftur kosnir til valda í Kanada, en eru með minnihlutastjórn í kjölfar pólitískra hneykslismála. Ný ríkisstjórn jafnaðarmanna, undir forsæti Mette Frederiksen, tók við völdum í Danmörku eftir kosningar í júní. Jafnaðarmenn eru einir í stjórn en njóta stuðnings Radikale Venstre, Sósíalíska þjóðar- flokksins og Einingarlistans. Boeing í mikilli kreppu Árið var erfitt fyrir f lugvélafram- leiðandann Boeing. Eftir alvarlegt f lugslys í mars vegna bilunar í sjálf- stýringarhugbúnaði hinna glæ- nýju Boeing 737 MAX 8. Því settu f lugmálayfirvöld víða um heim f lugbann á vélarnar, uns fullvissa væri fengin fyrir öruggi þeirra. Sex mánuðum síðar tilkynnti Boeing að framleiðslu yrði hætt. Enn gildir f lugbann MAX-vélanna. Hefur það haft víðtæk áhrif, meðal annars á rekstur Icelandair. Forstjóri Boeing var síðan rekinn í desember með milljarða starfslokasamning. Boeing var einnig í fréttum í lok árs þegar Starliner, geimfari fyrirtækisins, mistókst að fljúga til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, og var snúið aftur til jarðar. Geimfarið reyndist brenna meira eldsneyti en ætlað var og missti af sporbrautinni. Grænland ekki til sölu Athygli heimsins beindist að Græn- landi í ágúst þegar Bandaríkjafor- seti lýsti áhuga stjórnar sinnar á að kaupa landið af Dönum líkt og um hver önnur fasteignaviðskipti væri að ræða. Bæði Grænlendingar og Danir höfnuðu hugmyndinni, liðin væri sú tíð að lönd og þjóðir gengju kaupum og sölum. Trump var ekki sáttur og hætti við ríkisheimsókn til Danaveldis. En í fyrsta sinn frá seinni heimsstyrjöld hafa Banda- ríkin opnað ræðismannsskrifstofu í Nuuk á Grænlandi. Annars voru norðurslóðamál mikið í fréttum, þar sem stórveldin ERLENDUR FRÉTTAANNÁLL Flugmálayfirvöld víða um heim settu flugbann á hinar glænýju Boeing 737 MAX 8 flugvélar uns fullvissa væri fengin fyrir öryggi þeirra. Boeing tilkynnti síðan í lok árs að framleiðslu flugvélanna yrði hætt. NORDICPHOTOS/GETTY Ríkisstjórnin í Kína efndi til mikilla hátíðarhalda í október í tilefni 70 ára stjórnar kommúnista. NORDICPHOTOS/GETTY Margir munu sakna eins frægasta kattar samtímans, Grumpy Cat, en hann féll frá á árinu. NORDICPHOTOS/GETTY Matteo Salvini, leiðtogi Norður- bandalagsins NORDICPHOTOS/GETTYÍhaldsmenn og Boris Johnson unnu sinn stærsta kosningasigur í 32 ár. Mette Frederiksen stýrir nýrri ríkisstjórn Jafnaðar- manna í Danmörku. NORDICPHOTOS/GETTY sækja æ meira í sig veðrið. Kapp- hlaup virðist hafið um áhrif og ítök á svæðinu sem er talið ríkt af auðlindum og styttir siglingaleiðir milli Asíu og Evrópu til muna. Tog- streita er um norðurslóðir á milli Bandaríkjanna, Kína og Rússa. Hinir síðastnefndu hafa aukið mjög hern aðar viðbúnað sinn í norður- héruðum sínum. Mike Pence, vara- forseti Bandaríkjanna, heimsótti meðal annars Ísland til að ræða málefni norðurslóða. Hryðjuverkaárásir víða Sem fyrr voru hryðjuverkaárásir víða. Í einni slíkri létu lífið 46 sjúkraf lutningalögreglumenn í indverska hluta Kasmírhéraðs og réðust indverskar orrustuþotur á skotmörk herskárra múslima í Pakistan í fyrsta skipti síðan 1971. Í framhaldinu greip ríkisstjórn Ind- lands til margvíslegra aðgerða til að hefta tjáningar-, funda- og fjöl- miðlafrelsi og þrengja að réttindum múslímskra Kasmírbúa. Í mars framdi maður í nafni hvítrar þjóðernishyggju fjölda- morð með hálfsjálfvirkri byssu í tveimur moskum í Christchurch á Nýja-Sjálandi. Alls var 51 myrtur og 40 særðust. Skotvopnalöggjöf í landinu var þá hert til muna og í lok árs var um 50 þúsund byssum skilað til lögreglunnar. Undir áhrifum frá skotárás í Christchurch skaut síðan maður 22 í Walmart í El Paso í Texas í Banda- ríkjunum. Á páskadag réðust liðsmenn ISIS á Srí Lanka á kristna menn og ferða- menn og drápu 253 í kirkjum, hótel- um og víðar. Efasemdir eru uppi um að þau morð hafi verið hefnd mús- lima fyrir morðin í Christchurch. Kjarnorkuvopnum heims fækkar Kjarnorkuvopnum heimsins hefur fækkað. Sænska friðarrannsóknar- stofnunin SIPRI segir Rússa og Bandaríkjamenn eiga 93 prósent allra kjarnorkuvopna í heiminum; Rússar séu með 6.500 en Banda- ríkjamenn með 6.185. Ríkin hafa engu að síður fargað 615 kjarna- oddum síðasta ár. Önnur ríki með kjarnavopn eru Frakkar með 300, Bretar með 200, Kínverjar með 290, Indverjar með 130-140, Pakistanar með 150-160, Ísraelar með 80-90 og hugsanlega Norður-Kórea. Í ágúst síðan tilkynnt að sögu- legur afvopnasamningur heyrði sögunni til þegar Bandaríkin og Rússland sögðu sig frá þeim INF- afvopnunarsamningnum sem Reag- an Bandaríkjaforseti og Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, undirrituðu árið 1987. Hann takmarkaði meðal- drægar skotf laugar og 2.700 skot- flaugum var fargað. Íranar færðust lengra frá því alþjóðlega samkomulagi sem tak- markaði uppbyggingu kjarnorku- vera í landinu og kröfðu Evrópu- sambandið um efnahagsaðstoð. Írönum var kennt um árásir á olíu- hreinsunarstöðvar í Sádi-Arabíu og Bandaríkin fjölguðu hermönnum og vopnum í Miðausturlöndum til að sporna við útþenslu Írans. Mikil fyrirferð Brexit og Boris Það er ekki hægt að fjalla um erlendar fréttir ársins án þess að nefna útgöngusamning Breta úr Evrópusambandinu (Brexit). Í janú- ar tapaði veik ríkisstjórn Theresu May atkvæðagreiðslu um Brexit í þinginu með 230 atkvæðum, sem er talinn mesti ósigur ríkisstjórnar þar í landi frá upphafi. Eftir það lá leiðin niður á við. Bretar fengu þrjár fram- lengingar á útgöngusamningnum og Bretland er enn í ESB. Theresa May hékk í forsætis- ráðherraembættinu fram í júlí. Síðan olli eftirmaður hennar Boris Johnson, stjórnarskrármálakreppu þegar hann sendi þingið heim til að takmarka andstöðuna við Brexit, en Hæstiréttur sagði það ólögmætt. Bretar gengu síðan til enn einna þingkosninganna og Íhaldsflokkur- inn fékk sinn stærsta meirihluta í 32 ár. Skoski þjóðarflokkurinn skilaði þar einnig stórsigri. Verkamanna- f lokkurinn með veikan leiðtoga, Jeremy Corbyn, galt afhroð. Áætlað er að Bretland gangi loks formlega úr Evrópusambandinu 31. janúar á nýju ári eftir 47 ára aðild. In memoriam Fjölmargir heimsfrægir einstakling- ar, sem hafa markað samtímann á ýmsum sviðum, létust á árinu. Í heimi stjórnmálanna má nefna Robert Mugabe sem stýrði Zimb- abwe með harðri hendi, Frakk- landsforsetann Jacques Chirac og Li Peng, aðalræðismann Kína. Í heimi íþróttanna má nefna einn besta markvörð knattspyrnu- sögunnar, Gordon Banks, og Niki Lauda, heimsmeistara í Formúlu 1. Menningin missti Nóbelsskáldið Toni Morrison, tískukónginn Karl Lagerfeld og einn besta trymbil sög- unnar, Ginger Baker. Margir sakna líka frægasta kattar samtímans, Grumpy Cat, sem féll frá á árinu. david@frettabladid.is 3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.