Fréttablaðið - 30.12.2019, Qupperneq 15
Þú færð Þorgeir á næsta
flugeldamarkaði björgunarsveitanna
Þorgeir er mögnuð terta. Allir
regnbogans litir lýsa upp himininn
með blómum, pálmum og stjörnum.
Skotunum er fylgt eftir með glitrandi
hala og hvellir, brak og brestir óma
um svæðið. Þorgeir er skriðinn undan
feldinum í allri sinni dýrð.
skot
27
SEK
5
5
6
49
kg
Eftir að hafa skorað
ellefu mörk fyrstu þrjú ár
sín í ensku úrvalsdeildinni
hefur Calvert-Lewin skorað
átta mörk á þessu tímabili.
HETJA HELGARINNAR
Júlían J.K. Jóhannesson
Fæddist árið 1993 og keppir fyrir hönd
Glímufélags Ármanns. Hann var aðeins
sextán ára þegar hann vann fyrsta mót sitt
í kraftlyftingum og sama ár lenti hann í
fimmta sæti á Íslandsmeistaramótinu.
Undanfarin þrjú ár hefur Júlían tekið
þátt í HM í kraftlyftingum í flokki +120
kílóa og komið heim með bronsverðlaunin
í hvert skipti. Þá nældi Júlían í silfurverð-
laun á Evrópumótinu í kraftlyftingum sem
fór fram fyrr á þessu ári.
Gott silfur gulli
betra. Virkilega
stoltur að vera partur af
þessum hóp. Til hamingju
Júlían!
Martin Hermannsson,
landsliðsmaður í körfu-
bolta sem lenti í 2. sæti í
kjörinu.
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Júlían J.K.
Jóhannesson gerði einum betur en
í fyrra þegar hann lenti í fyrsta sæti í
árlegu kjöri um Íþróttamann ársins
2019 hjá Samtökum íþróttafrétta-
manna um helgina. Með því varð
Júlían fyrsti iðkandi kraftlyftinga
sem tekur við þessum verðlaunum
í 38 ár og sá þriðji í sögunni á eftir
Skúla Óskarssyni (1978, 1980) og
Jóni Páli Sigmarssyni (1981).
Júlían fékk 378 atkvæði af 560
mögulegum og var með 43 stiga for-
skot á Martin Hermannsson körfu-
boltamann sem lenti í öðru sæti.
Sara Björk Gunnarsdóttir sem hlaut
nafnbótina í fyrra lenti í þriðja sæti
í ár með 289 stig.
„Það var ótrúleg tilf inning,
maður glaðvaknaði og var spenntur
að halda út í daginn,“ sagði Júlían,
léttur í lund aðspurður hvernig til-
finningin hefði verið að vakna dag-
inn eftir sem Íþróttamaður ársins.
„Viðbrögðin hafa verið alveg
of boðslega góð og fallegum kveðj-
um hefur rignt inn, bæði frá fjöl-
skyldumeðlimum og öðrum. Þetta
hefur verið alveg of boðslega fallegt
og maður er alveg ótrúlega þakk-
látur. Ég er ekki alveg lentur ennþá,
maður er ansi hátt uppi.“
Aðspurður sagðist Júlían hafa
gælt við hugmyndina um að nú væri
komið að honum þegar hann mætti
á lokahófið um helgina.
„Ég vissi að möguleikinn væri
til staðar en eins og sagt er, ekki er
sopið kálið þótt í ausuna sé komið.
Í forsetakosningum er yfirleitt talað
um að finna meðbyr í samfélaginu
og ég upplifði það. Mér fannst ég
finna fyrir meðbyr af hálfu sam-
félagsins,“ sagði Júlían sem nýtti
sér silfurverðlaun síðasta árs til
hvatningar á þessu ári.
„Ég var nálægt því að vinna þetta
í fyrra og var með það á bak við
eyrað allt árið. Þetta er stór titill og
viðurkenning í íslensku íþróttalífi
og á HM vissi ég að það væri meira
undir en bara mótið. Það hjálpaði
mér að undirbúa mig og hvetja fyrir
mótið,“ sagði Júlían sem sagðist oft
hafa fylgst með kjörinu spenntur
sem ungur drengur.
Júlían lenti í þriðja sæti á HM í
vetur og var ánægður með fram-
farirnar sem hann sýndi í Dúbaí.
„Á HM í Dúbaí tókst mér að skila
að mér fannst svo gott sem full-
komnu móti. Ég fann fyrir mikilli
pressu fyrir mótið, bæði að bæta
mig og að komast á verðlaunapall
og mér tókst að bæta mig í öllum
greinunum og setti nýtt met. Það
sem mér finnst standa upp úr er
hvað ég setti mér háleit markmið
og mér tókst að standast þau öll.
Þetta hvetur mann áfram fyrir
næsta ár, næsta verkefni er að
tryggja sér þátttökurétt á heims-
leikunum sem eru á fjögurra ára
fresti. Það er núna fyrsta markmið
og færast ofar á verðlaunapallinn.“
Júlían á von á sínu fyrsta barni,
dreng, á nýju ári með kærustu sinni,
Ellen Ýri Jónsdóttur.
„Ég var einmitt að segja kærust-
unni að þetta yrði rætt á fæðingar-
deildinni. Hún fullyrti að drengur-
inn myndi ekkert muna eftir því
en það kemur í ljós,“ sagði Júlían
hlæjandi. kristinnpall@frettabladid.is
Lyftistöng fyrir
kraftlyftingar
Júlían J.K. Jóhannesson var um helgina valinn
íþróttamaður ársins 2019 af Samtökum íþrótta-
fréttamanna. Júlían er stoltur af nafnbótinni og
stefnir að því að nýta hana til að drífa sig áfram
Ég var nálægt því að
vinna þetta í fyrra
og var með það á bak við
eyrað allt árið.
Júlían J.K. Jóhannesson
Júlían hefur unnið mjög
markvisst að þessu
markmiði og á þetta fyllilega
skilið. Það nær enginn að setja
heimsmet yfir nótt og þetta
er engin tilviljun. Fyrir kraft-
lyftingar á Íslandi er þetta mikil
viðurkenning fyrir það góða
starf sem hefur verið unnið
síðustu tíu ár.
Gry Ek Gunnarsson, formaður
Kraftlyftingasambands Íslands.
3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
F Ó T B O LT I D om i n ic C a lver t-
Lewin, framherji Everton, heldur
áfram að bera sóknarleik liðsins á
herðum sér þetta tímabil en um
helgina skoraði þessi 22 ára fram-
herji sjöunda og áttunda mark sitt
á tímabilinu. Hann hefur því skor-
að rúmlega þriðjung marka Ever-
ton (23) þegar Everton er búið að
leika tuttugu leiki og virðist njóta
trausts Carlo Ancelotti eftir að sá
ítalski tók við liðinu. Margir
áttu von á því að með
komu Ancelotti myndi
Moise Kean loksins
fá tækifæri en Cal-
vert-Lewin hefur nú
skorað fimm mörk
í síðustu f imm
leikjum.
Calvert-Lew-
in, sem er á
fjórða tímabili
sínu hjá Ever-
ton, var keyptur
frá Sheffield United ungur að árum
þrátt fyrir að hafa ekki komist á
blað í fyrstu ellefu leikjum sínum
með uppeldisfélaginu. Á fyrsta ári
Calvert-Lewin hjá Everton
tókst honum að skora
einu sinni en hápunkt-
urinn var þegar hann
var hluti af U20 ára liði
Englands sem vann HM.
Ljóst var snemma að
hann gæt i rey nst
úrvalsdeildarliðum
vel en það eina sem
vantaði upp á var
markaskorun. Á
f y rstu þremur
t í m a b i l u m
sínum í ensku
úrvalsdeildinni
skor aði C a l-
vert-Lewin ell-
efu mörk í 78
leikjum en er
nú kominn með átta
mörk í átján leikjum það sem af er
tímabilinu.
Undanfarin tuttugu ár hafa
aðeins tveir leikmenn Everton
skorað fimmtán mörk eða meira á
einu tímabili, Yakubu og Romelu
Lukaku, en Calvert-Lewin gæti bæst
í þann hóp í ár. „Hann verður einn af
betri framherjum Englands og Evr-
ópu í framtíðinni því hann hefur
alla þá hæfileika sem framherji
þarf,“ sagði Carlo Ancelotti, knatt-
spyrnustjóri Everton, eftir leik.
– kpt
Búinn að finna markaskóna