Fréttablaðið - 30.12.2019, Page 26
BÆKUR
Síldarárin 1867-1969
Útgefandi: JPV útgáfa, Forlagið
Fjöldi síðna: 1.152
Ekki veit ég hvað Páll Baldvin Bald-
vinsson hugsaði þegar hann hófst
handa við að setja saman þessa
miklu bók sem gerir síldarárunum
skil, gagnmerku tímabili í Íslands-
sögunni. Mér þykir þó líklegt að
ekki hafi hann verið plagaður af
verkkvíða því við blasir að það hlaut
að hafa legið fyrir að þetta yrði ekki
neitt áhlaupaverk. Enda er afrakst-
urinn hátt á tólfta hundrað blað-
síður með miklum texta og fjölda
mynda.
Bókin er mikil að vöxtum eins og
blaðsíðufjöldinn gefur til kynna,
og þung eftir því. Hún hentar því
ekki á náttborð né til kvöldlestrar
í rúminu, rétt fyrir svefninn. Það
gæti beinlínis reynst hættulegt. Nei,
þetta er bók til að hafa á viðhafnar-
stað og draga fram til að glugga í
stundarkorn og auðga þannig and-
ann.
Páli Baldvin fatast ekki f lugið í
þessari bók. Hann hefur áður sýnt
að viðamikil samantekt á söguleg-
um staðreyndum afmarkaðs tíma-
bils lætur honum vel. Nægir þar að
nefna bókina Stríðsárin 1938-1945,
sem kom út fyrir örfáum árum.
Áður en vikið er að efni bókar-
innar og efnistökum er viðeigandi að
fjalla um form hennar. Nefnd hefur
verið þyngd hennar og umfang, en
bókin er vel brotin um. Ýmist tveir
eða þrír dálkar á síðu og ártöl leiða
fram frásögnina. Undir hverju ártali
eru svo sögur, mislangar. Myndir eru
grátóna og víða eru „kvót“ á síðum
sem létta yfirbragð síðnanna. Papp-
írinn er fremur þunnur og hrár og
minnir á dagblaðapappír. Letur er
fremur smátt, alla vega í samanburði
við stærð bókarinnar, en fyrirsagnir
og ártöl stór og afgerandi. Allt ýtir
þetta undir þá tilfinningu lesandans
að hann hafi dagblað frá gamalli tíð
fyrir framan sig. Á því fer vel, það
eykur traust hans á frásögnunum.
Sé eitthvað út á formið að setja hefði
að ósekju mátt fara sparlegar með
teiknaðar myndir af síld sem víða
er að finna á síðum, ýmist framhluti
fisksins eða aftur-. Eða þá í heilu líki.
Og stundum fleiri en ein.
Kápa bókarinnar er eftirtektar-
verð. Kjölurinn og inn á spjöldin
er skreyttur mynd af síldarroði og
áferð hennar minnir á hreistur.
Það er ekki margt út á efnistök að
setja. Sagan er rakin í stuttu máli
fram að því tímabili sem tilgreint er
í bókartitli, árunum 1867 til 1969.
Eins og áður segir er frásögnin leidd
áfram af sögum. Höfundur hefur
sjálfur sagt að áhugi hans hafi beinst
að því að fjalla um þetta tímabil út
frá persónulegri reynslu og lífi þess
fólks sem vann við síldina, hvort
sem það stóð á síldarplaninu að
salta síld eða sótti sjóinn að veiða
silfur hafsins. Þetta tekst vel, eink-
um þegar kemur að konum sem
koma við sögu og fáir vita lengur að
til hafi verið, ef nokkru sinni.
Þetta gerir höfundur með því að
segja sögur af þessu fólki, körlum,
konum og börnum. Þær eru vel
stílaðar, sumar örstuttar en aðrar
lengri. Þetta er prýðilegt form fyrir
svona bók, því ekki verða margir
sem lesa hana í einum rykk, ef að
líkum lætur.
Aftast í bókinni er tilvísanaskrá
með yfir eitt þúsund tölusettum vís-
unum. Þá er viðamikil heimildaskrá
þar fyrir aftan. Þetta styður allt þá
tilfinningu að sagnfræðilega sé vel
að verki staðið og að bókin muni
nýtast að því leyti.
Að lestri loknum getur maður
vart varist þeirri hugsun að margt í
íslenskri atvinnusögu minni á síld-
ina, sem kom og fór, einkum vegna
þess að við kunnum okkur ekki hóf.
Jón Þórisson
NIÐURSTAÐA: Þrekvirki um merkileg-
an tíma í Íslandssögunni. Skemmtileg
og fróðleg bók sem langan tíma tekur
að lesa.
Þrekvirki um síld
Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur.FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Mánudagur
hvar@frettabladid.is
30. DESEMBER 2019
Hvað? Hátíðarhljómar við áramót
Hvenær? 20.00
Hvar? Hallgrímskirkja
Trompetleikararnir Baldvin
Oddsson og Jóhann Nardeau
og Björn Steinar Sólbergsson,
organisti Hallgrímskirkju, f lytja
glæsileg hátíðarverk frá barokk-
tímanum, meðal annars eftir J.S.
Bach (Tokkata og fúga í d-moll),
Vivaldi og f leiri. Miðasala á
midi. is og í Hallgrímskirkju frá kl.
09.00-17.00.
Trompetleikararnir Jóhann og
Baldvin leika í Hallgrímskirkju.
FRÉTTABLAÐIÐ SIGTRYGGUR ARI
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21M Á N U D A G U R 3 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9