Læknablaðið - May 2019, Page 37
LÆKNAblaðið 2019/105 241
L Ö G F R Æ Ð I 3 2 . P I S T I L L
Læknar eru hvattir til að koma ábendingum
um efni á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.isMeira um jafnlaunavottun
Eins og rakið var í síðasta pistli sem fjall
aði um jafnlaunavottun eru fyrirmæli
í jafnréttislögum um það að konum og
körlum hjá sama atvinnurekanda skuli
greiða jöfn laun og bæði kynin njóta
sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt
störf.1 Þessa jafnlaunareglu ber að skýra
til samræmis við ákvæði samningsins um
Evrópska efnahagssvæðið sem og gerðir
er hafa verið felldar undir samninginn. Í
tilskipun um launajafnrétti, nr. 75/117/EBE,
er talað um jafnverðmæt (of equal value)
störf. Margir dómar Evrópudómstólsins
hafa slegið því föstu að ólík störf geti verið
jafnverðmæt. Hvort störf eru jafnverðmæt
verður að byggjast á heildstæðu mati.2
Fyrirtækjum og stofnunum yfir ákveðinni
stærð ber nú samkvæmt jafnréttislögum
að fá jafnlaunavottun á jafnlaunakerfi
sínu. Vottunin staðfestir að jafnlaunakerfi
viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar og
framkvæmd þess uppfylli kröfur Jafn
launastaðalsins, IST 85.
Landspítali vinnur nú við jafnlauna
kerfi sitt og hefur ákveðið að það verði í
formi starfsmatskerfis með uppruna í Bret
landi en reynt að laga það að íslenskum
veruleika. Vandinn við kerfi Landspítala
er að læknar eru ekki í upphaflega kerfinu.
Aðlögun spítalans hefur því meðal annars
falist í því að setja lækna í starfsmatskerfi
sem ekki gerði ráð fyrir þeim. Niðurstöður
forprófana sem Landspítali gerði síðast
liðið haust á aðlöguðu starfsmatskerfi
stofnunarinnar leiddu í ljós lítinn mun í
heildarstigagjöf hjúkrunarfræðings d (535
stig), deildarlæknis (537 stig), ljósmóður
(565 stig), hjúkrunardeildarstjóra (593 stig)
og sérfræðilæknis (624 stig). Hér skilja
einungis 2 stig milli hjúkrunarfræðings
d og deildarlæknis, ljósmóðir er metin 28
stigum hærri en deildarlæknir og 31 stig
skilur milli hjúkrunardeildarstjóra og
sérfræðilæknis. Þegar heildarstigafjöldi
í kerfinu eru 1000 er þessi munur óveru
legur. Heildarstig lækna endurspegla
ekki miklar frumkröfur sem gerðar eru
til starfa lækna. Læknafélag Íslands telur
því að forprófanir á starfsmatskerfi spít
alans staðfesti að aðlögun lækna í breska
starfsmatskerfið hafi misheppnast og að
með aðlögun þess hafi hvorki tekist að
fanga þær miklu kröfur sem gerðar eru til
menntunar lækna og starfsreynslu þeirra
né þá ábyrgð og það álag sem læknisstarf
ið felur í sér. Allt bendir til að mælistikan
sem spítalinn ætlar að byggja jafnlauna
kerfi sitt á sé einfaldlega röng. Af því leiðir
að starfsmatið verður bjagað og rangt.
Stjórn LÍ og aðildarfélaga þess hafa
því gert fyrirvara við starfsmatskerfi
Landspítala. Mikilvægt er að undirstrika
að fyrirvarar LÍ og aðildarfélaga snúa
hvorki að lögbundnu jafnlaunakerfi
né jafnlaunavottun sem slíkri heldur
vinnunni við starfsmatskerfið sem spítal
inn hyggst nota.
Í ályktun stjórnar LÍ frá 9. apríl 2019
er á það bent að aðlögun Landspítala á
breska kerfinu sé óraunhæf og endur
spegli hvorki þær umfangsmiklu frum
kröfur sem gerðar eru til læknisstarfsins
né nái hún til eðlis og inntaks þess. Stjórn
LÍ telur því að meðan Landspítali endur
skoðar ekki það jafnlaunakerfi sem stofn
unin hyggst nota til jafnlaunavottunar
komi ekki til greina að læknar taki þátt í
vinnu við þróun þess. Sameiginlegir fund
ir Félags sjúkrahúslækna (FSL) og Félags
almennra lækna (FAL) haldnir þann 3. og
5. apríl síðastliðinn mótmæltu harðlega
aðferðafræði Landspítala við jafnlauna
vottun og leggja til við félagsmenn sína
að þeir taki ekki þátt í vinnunni við það
fyrr en eðlilegt samráð stofnunarinnar
og læknafélaganna hefur átt sér stað og
ásættanleg lausn fundist. Stjórn FAL sam
þykkti á stjórnarfundi 4. apríl að skora á
forstjóra og framkvæmdastjórn Landspít
ala að taka starfsmatskerfið til gagngerrar
endurskoðunar með það að markmiði að
störf lækna á spítalanum verði metin í
samræmi við eðli og inntak þeirra. Aðal
fundur FSL haldinn 28. mars síðastliðinn
mótmælti harðlega vinnubrögðum, vinnu
lagi og vali Landspítala á starfsmatskerfi
vegna jafnlaunavottunar. Í ályktuninni
er einnig á það bent að niðurstöður jafn
launagreiningar Félagsvísindastofnunar
fyrir Landspítala sýna að enginn launa
munur var milli kynja þegar búið var að
taka tillit til starfsheita. Aðalfundurinn
skorar á yfirstjórn Landspítala að taka
vinnu vegna jafnlaunavottunar til endur
skoðunar með það að markmiði að tryggt
verði að störf lækna á stofnuninni verði
metin í samræmi við eðli og inntak þeirra.
Af hverju skiptir þetta máli? Ástæðan
er sú að störf sem eru sambærileg í stigum
teljast sömu eða jafnverðmæt störf. Séu
laun fyrir jafnverðmæt störf mismunandi
af þeirri ástæðu einni að karlar og konur
fá greitt eftir mismunandi kjarasamning
um hefur Hæstiréttur komist að þeirri
niðurstöðu að mismunandi kjarasamn
ingar geti ekki einir og sér réttlætt launa
mismun milli kvenna og karla.3
Heimildir
1. 1. og 2. mgr. 19. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafn
an rétt kvenna og karla.
2. Skýringar með 19. gr. frumvarps til laga um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla, þskj. 149, 142. mál. Vefútgáfa
Alþingistíðinda, althingi.is/altext/135/s/0149.html apríl
2019.
3. Dómur Hæstaréttar frá 13. mars 1997 í máli nr. 255/1996.