Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2001, Qupperneq 8

Hugur og hönd - 01.06.2001, Qupperneq 8
rún Jónsdóttir kirkjulista kona Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona. Það má með sanni segja, að Sigrúnu Jónsdóttur kirkjulistakonu þurfi vart að kynna fyrir lesendum blaðsins. A jóla- föstu árið 2000 kom út metsölubókin „Engin venjuleg kona“, skráð af Þórunni Valdimarsdóttur sagnfræðingi, og segir þar frá litríku lífi listakonunnar. Aftast í bókinni er afar fróðlegur við- auki, sem séra Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur skrifar um list Sigrúnar Jónsdóttur. Auk þess er þar skrá yfir helstu sýningar hennar og skrúða í ís- lenskum kirkjum. Hann tekur þar nokk- ur verk og fjallar sérstaklega um, til að gefa yfirlit um þróun í verkum hennar og skrúðagerð í gegnum árin og segir m. a: „Hún hefur skapað mikinn fjölda listaverka og í kirkjum landsins eru flestir hinna frumsömdu hökla gerðir af henni.. .Hver hökull er öðrum ólíkur og sérstakt listaverk.. .Almennt bera þeir vott um hugmyndaauðgi og frumleika í táknrænni tjáningu.'*1 I ágústmánuði sama ár var sett upp viðamikil og glæsileg sýning „I ljósi dýrðar“ í Hallgrímskirkju, listakonunni til heiðurs. Þar voru sýndir höklar frá ýmsum kirkjum landsins, stólur, altaris- klæði og ýmsir listmunir unnir í batik og vefnað, auk hátíðabúnings sem hún hannaði þjóðhátíðarárið 1974. Sigrún á langan starfsferil að baki, bæði við kennslustörf og listsköpun hér heima og erlendis. Hún hefur haldið fjölda sýn- „Mynd hökulsins er... tengd kirkjuhúsinu sjdlfú og eða umhverfi kirkjunnar. Kirkjufellið sem gnœfir yfir Grundarfjörð og bátur á sjónum sem fellið speglast í eru aðalþœttir myndarinnar... Fólkið og lífþess er tekið gilt og helgað tákni krossins sem minnir á faðmlag og upplyftar hendur í lofgjörð". Heimild: Listastörf Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulistakonu. Jakob Ágúst Hjálmarsson, Reykjavík 2000. Myndin er tekin á sýningunni „I Ijósi dýrðar“ í Hallgrímskirkju í ágústmánuði, 2000. Ljósm.: Kristín Schmidhauser Jónsdóttir. 1 Þórunn Valdimarsdóttir, Engin venjuleg kona. sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, viðauki. Reykjavík, 2000. 8 HUGUR0GHÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.