Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2001, Page 11

Hugur og hönd - 01.06.2001, Page 11
Raudur batíkhökull í Stranaarkirkju.Einn af fáum batíkhöklum Sigrúnar í íslenskum kirkjum Óhlutbundin og dulmn mynd. Dúfa/engill sýnist vera grunnþáttur myndarinnar á höklinum. Texti: Séra Jakob A. Hjálmarsson. Ljósm.: Sami. Batíkverk Sigrúnar í Víkingasal Hótels Loftleiða. Sigrúnar Jónsdóttur. 'r eru þrír víkingar aftólf. Ljósm.: Ur safhi fimmleytið og á þá bænastund. Þannig byrjar hún hvern dag, í kyrrð og ró fyllir hún hugann krafti til að takast á við listsköpun sína. Þessar dýrmætu morgun- stundir meðan hugurinn er frjór notar hún til að setja niður mynstur í viða- mikil verk, eða vinnur að frumskissum að nýjum verkum. Seinni part dags sest hún við útsauminn, sem hún getur unnið þó ekki sé algert næði. Fallega sumarhúsið hennar í Vík í Mýrdal tekur vel á móti okkur, en Sigrún kann að láta gestum sínum líða vel. Ut um gluggann blasir við þvottur á snúru, sem verður okkur umræðuefni um stund. En menning mannsins felst í ýmsu og Sigrún minnist ömmu sinnar, hún kunni þá list að hengja upp þvott. Sokka átti að hengja þannig að hællinn snúi móti sólu. Þetta er bara eitt gamalt verklag sem hægt er að hafa heimspeki- legar vangaveltur um, hvað hafi tilgang og hvað veiti vellíðan. Sigrún fór ung að heiman, hún sest á skólabekk í Kvennaskólanum í Reykja- vík haustið 1936, þá fimmtán ára gömul. Skólavistin undir stjórn Ingibjargar H. Bjarnason átti strax vel við hana, þar ríkti góð regla og stjórnfesta í öllu starfi. Að loknu námi við Kennaraskóla Islands í handmenntum 1947 heldur Sigrún til Svíþjóðar og hyggur á framhaldsnám sem geti nýst henni við kennslustörf, en námið tók brátt stefnu inn á braut listsköpunar. Árið 1950 innritast hún í Kunst- industriella skolan í Gautaborg, sem var virtur skóli á Norðurlöndum og víðar. Sem menntuðum handmenntakennara fannst Sigrúnu ráðlegast að halda sig við textíldeildina og útskrifaðist úr fram- haldsdeild textílfræða eftir sex ára nám. I fyrstu var námið þrotlaus vinna í skissugerð, en mikil áhersla var lögð á að æfa og læra grunninn svo hann verði „hluti af manni sjálfum". Hún einbeitti sér að textílnáminu og tileinkaði sér það á sem flestum sviðum, með það í huga að koma því á framfæri síðar og vinna þá úr þjóðlegum efnum eins og íslensku ullinni. En íslenska ullin olli henni vonbrigðum í tilraunavinnu, hún var ekki sama efnið og það efni sem hún þekkti frá Svíþjóð. Eftir þær tilraunir fór hún inn á annað svið og lagði þá fyrir sig batík, sem er ævaforn listgrein og byggist á gamalli hefð, en var nær óþekkt hér á landi. Sigrúnu fannst batíkin höfða svo sterkt til Islands, og tekur sem dæmi; ef maður flýgur yfir landið þá finnst manni allt landið vera ein batík, sprung- urnar, hraunið, árnar og ströndin. Upp- runi batíklistarinnar er talin vera á eyj- unni Jövu sem er í Indlandshafi. Jafnvel er talið að Java sé móðir jarðar. Ef maður les sögu Jövu og Islands er ótrúlega margt líkt með þeim, næstum eins og tvíburar. Hvor tveggja eru eldfjallaeyjar og báðar hafa verið undir stjórn annarra þjóða. Það hefur mikil áhrif á fólk og það er fólkið sem hefur áhrif á listina, aðlögun fólksins og rætur þess er grund- völlur fyrir sanna list, skapandi list. Ef grunnurinn er ekki góður verður listin aldrei sönn. HUGUROGHÖND 11

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.