Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2001, Blaðsíða 12

Hugur og hönd - 01.06.2001, Blaðsíða 12
Sigrún í Stokkhólmi 1955, með efoið sem hún vann úr glertrefrum. Sigrún er til h&gri á myndinni. Ljósm.: Ur safni Sigrúnar Jónsdóttur. Batíkverk Sigrúnar Jónsdóttur í Víkingasal Hótels Loftleiða Sigrún varð þekkt batíklistakona hér á landi á sjöunda og áttunda áratugnum en á þeim árum vann hún mörg stór og mikil verk. Eflaust er mörgum minnis- staett eitt verka hennar sem var í Víkinga- sal Hótels Loftleiða en sá staður var afar vinsæll á þessum árum. Upplýst batík- verkin gáfu staðnum ljúfan en sterkan svip. Með batíktækninni vann hún marga hökla í kirkjur landsins auk annarra list- muna. Þá voru mjög vinsælir batíklampar og lampaskermar, sem báru milda og notalega birtu. Svíar voru mjög framar- lega í allri textíliðju á sjötta áratugnum og ekki hvað síst í tauþrykki, sem Sigrún lagði einnig stund á og var um tíma í starfsnámi tengdu skólanum hjá Möln- lycke vefnaðarverksmiðjunum, sem var afar lærdómsríkur tími. Þar lærði hún ekki eingöngu allt um þrykk, en einnig á ýmsar vélar sem prófuðu slitþol efnis og styrkleika lita. Þá voru komnar fram nýjar vélar og í staðinn fyrir að láta efnin ganga í gegnum öll þessi litaböð voru komnir fram litir sem hægt var að baka inn í efnið. Þetta var skemmtileg nýjung, nú þurfti ekki svona óskaplega mikið umstang, sem var krefjandi vinna við að láta efni á stórum spólum eða stórum römmum fara í gegnum ótal litaböð við gerð hvers mynsturs. Ein nýjung var að vinna efni úr gleri og á Sigrún til efni sem hún vann úr gleri og þrykkti á. Þá valdi hún það, sem henni fannst sérstætt fyrir okkur og tók hestinn sem mótíf, stílfærði hest og bjó til mynstur. Glansinn á efninu gaf svo skemmtilegar hreyfingar, því lét hún upprunalegt efni haldast í hestinum, það skein í gegnum hestinn, þannig varð meira líf í honum, en þrykkið gerði efnið mattara. Og hún er með Vík í Mýrdal í huga, allar skeljarnar sem má tína þar í sandinum og vinna úr íslenskt efni, það gekk svo langt að hún kostaði upp á tilraun fyrir sjálfa sig. En þá kom í ljós að trefjarnar sem náðust úr skeljunum voru of stuttar, það tókst ekki að búa til þráð úr þeim með þeirri tækni sem þá var til. Hátíðarbúningur 1974 Sigrún fer ekki alltaf troðnar slóðir, og árið 1974 hannar hún nýjan „þjóðbún- ing“ sem fékk nafnið „Hátíðarbúningur 1974“, en kveikjan að þeim búningi var sú, að frú Oddný Thorsteinsson sendi- herrafrú kemur til hennar og biður hana að vinna fyrir sig skautbúning sem hún gerði og segir jafnframt: „Eg gerði hann eins nákvæmlega sem ég hafði vit og getu til eftir mynstrum Sigurðar Guð- mundssonar málara. Það eru eiginlega fallegustu mynstur sem maður getur hugsað sér, þau eru þjóðleg og umfram allt miklir dýrgripir. Það er voðalega erfitt að taka að sér að vinna verk sem hefur verið skapað af manni sem er látinn. Það verður að gera með sérstakri tilfinningu og virðingu svo ekkert eyði- leggist“. Sigrún lagði mikla rækt við að vinna búninginn eftir fýrirmælum Sig- urðar Guðmundssonar og vonar að sér hafi tekist það. Eftir mikla umhugsun og fundahöld með Oddnýju var valið eitt af mynstrum Sigurðar, sem hún lét haldast í gegnum allan búninginn, á skauttreyju, neðan á samfellunni og endaði á að sauma það í slæðuna. Þessi búningur þykir afburðafagur. Þegar Margrét Dana- drottning var gestur hér, fól forseti Islands Oddnýju að vera leiðsögumaður drottningar og bar Oddný skautbún- inginn, sem vakti mikla athygli. Nú fannst Sigrúnu að hún væri búin að sýna góð og mikil tilþrif og langaði að láta dætur sínar njóta góðs af og sauma á þær skautbúning og gefa þeim. Þetta var árið 1973 og fram undan var mikið hátíðarár 1974 en þá voru liðin ellefu- hundruð ár frá íslandsbyggð, sem átti að minnast með heiðri og sóma. í tilefni þess vildu listamenn leggja eitthvað nýtt til og koma á framfæri. Dætur hennar Svava og Sigurborg, þá upprennandi ungar konur lögðu til að í staðinn fyrir að sauma skautbúning kæmi hún með nýjan búning. Eftir mikla umhugsun sá Sigrún að þetta var alveg rétt hjá þeim. Þá voru liðin hundrað ár frá því að Sigurður Guðmundsson kom fram með skautbúning sinn. Nýi búningurinn átti að vera allt í senn, þjóðlegur, kvenlegur og eins rammíslenskur og við erum sjálf, sem er afar mikilvægt að mati Sigrúnar. Með aðstoð dætranna fékk búningurinn það form sem hann heldur enn. Lítilsháttar breytingar eða lagfæringar hafa verið gerðar á sniðinu í gegnum árin. Bún- ingurinn er ekki eins aðskorinn og í fyrstu, sniðið er frjálsara og þannig 12 HUGUROGHÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.