Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2001, Side 15

Hugur og hönd - 01.06.2001, Side 15
Blóm meðfjölstrendingum, 1981. Fr<z, 1981. Myndirnarþrjdr eru úr bókinni „Und ich sprach zu meinem Herzen, lass uns fest zusammenhalten. “ Höfundur: Johann Christoph Hampe. Kiefel forlag. hafa tekið ástfóstri við land og þjóð. Þeir bræður sáu umrætt listaverk Höllu í sjúkrahúsinu og fengu áhuga á að sjá fleiri verk hennar. Litanotkun hennar og hugmyndaauðgi hreif þá og þeir ákváðu að ná sambandi við Höllu. Friedrich Oidtmann kom síðan á fund Höllu árið 1974 og skoðaði verk hennar. Honum leist það vel á að hann bauð henni að koma til náms á verkstæði þeirra bræðra og starfssamning að því loknu. Halla þekkti lítið sem ekkert til glerlistar og afþakkaði þetta góða boð. Henni fannst hún ekki geta yfirgefið fjölskyldu sína. En þeir Oidtmann bræður tóku afsvarið ekki gilt og héldu áfram að endurtaka tilboð sitt, höfðu samband símleiðis, sendu bréf og gjafir. Að síðustu buðu þeir Höllu og fjölskyldu hennar að skoða Oidtmann verkstæðið í Linnich í Þýskalandi. Þar leist henni svo vel á allar aðstæður að hún ákvað að taka boði þeirra. Hún fór til náms á verkstæðinu árið 1977, það er eitt elsta og virtasta verkstæði sinnar tegundar í Þýskalandi. I síðari heimsstyrjöldinni eyðilagðist verk- stæðið en var endurbyggt að stríðinu loknu, það er heimsþekkt og viðurkennt fyrir listræn og framúrskarandi vönduð vinnubrögð. Mikið átak var fyrir Höllu að fara í þetta nám, hún er hlédræg, hafði aldrei áður ferðast ein erlendis og tungumálakunnáttu var áfátt. Hún vann bug á öllum erfiðleikum, þó stundum hvarflaði að henni að gefast upp og fara heim. Halla fékk hús til umráða í Linnich og bjó þar ein þá þrjá mánuði sem hún var þarna að þessu sinni. Síðan hefur hún farið að minnsta kosti árlega til starfa á Oidtmann verkstæðinu, jafnvel oftar nú á síðari árum. Teikningu í 1:10 og forvinnu verka sinna lýkur hún á vinnustofunni í Keflavík áður en hún fer á verkstæðið í Linnich. Þar eru 40-50 listiðnaðarmenn með mjög góða vinnu- aðstöðu. Þar stjórnar Halla öllu verki við myndir sínar, velur gler í viðkomandi verk, úr nógu er að velja því þarna eru yfir tvö þúsund litir og litbrigði til staðar. Glerið er einnig með margs konar mismunandi áferð. Handverksmenn Oidtmannbræðra skera glerið en Halla sér um að raða því saman og líma á gler- plötu með þar til gerðu vaxi. Þegar allir hlutar myndarinnar eru komnir á sína staði handmálar Halla stundum á hluta glersins, liturinn er svo brenndur í glerið og því aftur komið fyrir á réttan stað í myndinni. Þegar hún hefur fullgengið þannig frá mynd sinni taka listiðnaðar- mennirnir við og leggja blýið. Halla HUGUROGHÖND 15

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.