Hugur og hönd - 01.06.2001, Qupperneq 16
Gluggaskreyting, 25 fermetrar, í húsi PKL Verpackungssysteme í Linnich, Þýskalandi. Myndin er úr bókinni, „Licht Glas Farbe“. VerlagM.
Brimberg, Aachen.
segist mjög ánægð með samstarfið við
Oidtmannbræður. Hún segir þá hrein-
skilna, kröfuharða og nákvæma. Það líkar
Höllu vel. Hún hefur unnið glerlista-
verk í glugga íjölmargra kirkna, má þar
nefna Þingeyrarkirkju, Selfosskirkju,
Hveragerðiskirkj u, Valþj ófsstaðakirkj u
og Strandarkirkju, líka verk í margar
aðrar opinberar byggingar hér á landi og
fyrir einkaaðila.
Nýjasta glerlistaverk hennar hér á
landi pfyðir anddyri Hótels Keflavíkur.
Glerið í því verki er munnblásið, það
skiptist í nokkra glugga en myndar þó
sterkan heildarsvip. Halla segist leggja
áherslu á að verkin falli vel að umhverf-
inu þannig að skoðendur fái þá tilfinn-
ingu að þarna hafi þau alltaf verið.
Einkaaðilar í Þýskalandi, Bandaríkj-
unum, Sviss og á Spáni eiga verk eftir
Höllu og þar pfyða glerlistaverk hennar
opinberar byggingar.
Halla hlaut menningar- og listastyrk
alþjóðasambands Soroptimista árið 1978,
hún vann samkeppni árið 1988 um úti-
listaverk við Sundmiðstöðina í Keflavík
og árið 1993 var hún valin úr hópi gler-
listamanna til að gera steinda glugga í
kapellu í Mainz í Þýskalandi. Sama ár
var Halla valin listamaður Keflavíkur.
Einkasýningar Höllu eru orðnar fjöl-
margar og einnig hefur hún tekið þátt í
mörgum samsýningum bæði hér og er-
lendis. Verk hennar hafa skreytt erlendar
listaverkabækur ásamt verkum heims-
þekktra listamanna frá Frakklandi og
Þýskalandi, valin af þekktum listfræðing-
um. Má nefna eina slíka sem Kiefel for-
lagið gaf út, í henni er 21 litmynd eftir
9 virta listamenn, þar af eru átta myndir
eftir Höllu, myndir hennar pfyða bæði
forsíðu og baksíðu bókarinnar. Það er
mikil viðurkenning.
Þórir Sigurðsson
16 HUGUROGHÖND