Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2001, Qupperneq 17

Hugur og hönd - 01.06.2001, Qupperneq 17
Vigdís Björnsdóttir fyrsti forvörður handrita Vigdís Björnsdóttir. Ljósmynd: Ljósmyndastofan Asis. Vigdís Björnsdóttir er fædd 14. apríl 1921 að Kletti í Reykholtsdal í Borgar- firði og varð hún áttræð á þessu ári. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Is- lands 1949. Vigdís var alltaf mjög áhuga- söm um að bæta við þekkingu sína. Meðan hún starfaði sem kennari fór hún í margar námsferðir og sótti bæði nám- skeið og framhaldsnám til Svíþjóðar, Danmerkur, Þýskalands og síðar Eng- lands. Arið 1955 útskrifaðist hún með handavinnukennarapróf frá Hándar- bejdets Fremmes skole í Kaupmanna- höfn. Hún fór einnig til Þýskalands og menntaði sig í vefnaði og hannyrðum. Vigdís var lengst af kennari við Laugar- nesskólann í Reykjavík þar sem hún kenndi hannyrðir eða þar til hún lagði út á nýja braut og nam handritaviðgerðir og hélt til Englands í sína fyrstu náms- ferð í maí 1963. Eftir að hún fór að vinna við handritaviðgerðir fór hún á námskeið og ráðstefnur, til að fylgjast með hvað aðrir voru að gera. Einnig til að kynnast öðru viðgerðarfólki svo hún einangraðist ekki um of hér heima. Vigdís var sett til eins árs frá 1. sept- ember 1964 til að gegna starfi við hand- ritaviðgerðir fyrir Þjóðskjalasafn Islands, Landsbókasafn Islands og Handrita- stofnun (Stofnun Árna Magnússonar). Oll söfnin voru þá til húsa í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Handrita- viðgerðarstofunni var fenginn staður í húsakynnum Þjóðskjalasafnsins og var þar í 22 ár, eða til ársloka 1987 að stofan flytur inn á Laugaveg 162 í framtíðar- húsnæði Þjóðskjalasafnsins. Unnið var jafnt að viðgerðum við söfnin, þar til Landsbókasafn flytur í Þjóðarbókhlöðu árið 1994. Á árunum kringum 1960 varð mikil umræða í þjóðfélaginu um afhendingu íslensku handritanna sem voru í Kaup- Ymsar hremmingar hafa hent skjöl og handrit í aldanna rás. Algengt var að húsakynnifyrri ára héldu ekki vatni og bleyta komst í skjölin sem mygluðu ogfiinuðu. Dœmi eru um að mýs hafi komist í geymslur, eða vökvar hafi hellst yfir skjöl, svo sem kaffi, blek, málning eða olía. HUGUROGHÖND 17

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.