Hugur og hönd - 01.06.2001, Síða 38
Yfirhöfh úr lituðum rostungsþörmum.
Kjóll, saumaður úr skarfahdlsum. I einn slíkan kjólþurfii n&r 200fugla. Frá Kodiak-eyju.
ekkert pláss til að sýna nema brot af því
sem hefur varðveist. Til að ráða bót á
þessu breyttu Finnar gamalli tennishöll,
sem er í miðborg Helsinki, í fjölnotahús,
en í því er meðal annars „Safn menning-
anna“. Húsið var opnað eftir gagngerðar
endurbætur árið 1999 og er forstjóri
safnsins Pirjo Varjola, en það var einmitt
hún sem sá um Alaska-sýninguna á
sínum tíma. Hún segist nú gera sér vonir
um að geta einhvern tímann sýnt þessa
muni aftur, en í safni hennar verður
engin föst sýning heldur verður mun-
unum skipt út reglulega. Myndir sem
íylgja þessari grein eru birtar með góð-
fúslegu leyfi Þjóðminjasafns Finna,
Kansallismuseo.
Allt er notað sem nýtilegt er
Myndirnar sjálfar segja meira en mörg
orð: Allt sem hægt var að finna í náttúr-
unni, var tekið í notkun. Tvinni var
búinn til úr görnum og saumnál fékkst
úr fuglabeini. Bæði skinn og fuglshamur
var notað í flík og regnkápa var saumuð
úr rostungsþörmum. Rekaviður var not-
aður bæði í hversdaglega nytjahluti og í
muni sem notaðir voru í trúarlegum at-
höfnum. Litunarefni fékkst úr plöntum
og mosa, því að allt var fagurlega skreytt,
eins og sést af kápunni þar sem bæði eru
applíkeringar, útsaumur og fjaðraskreyt-
ingar. En talið er að það hafi tekið einn
mann — eða ætti að segja konu — um tvo
mánuði að sauma þessa flík.
Frumbyggjarnir voru listrænir í sér og
jafnvel nytjahlutirnir voru listaverk -
eða að listmunir gegndu einnig hagnýtu
hlutverki, og skiptir þar engu hvort um
saumaskap, útskurð, skinnaverkun,
veiðarfæri eða bátsmíði var að ræða.
Hjá mismunandi ættbálkum eru
sniðin og efnin mjög svipuð, en oftast er
hægt að sjá uppruna munanna af litavali
og munsturgerð, því að hver ættbálkur
hafði sinn stíl í þeim efnum. En allir
bera munirnir fagran vott um hug-
vitsemi, iðni og fegurðarskyn þessara
manna. Allt sem var nýtilegt var notað.
Þetta lærðu ekki afkomendur Eiríks
rauða að haldið er, þess vegna hurfu þeir
sporlaust og Islendingabyggðin lagðist í
eyði. Orlög frumbyggja Alaska réðust
aftur á móti af of nánum kynnum við
hvíta kynstofninn.
Höfundarréttur ljósmynda: Þjóðminja-
safn Finna (Suomen Kansallismuseo).
Marjatta Isberg
38 HUGUROGHÖND