Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2001, Page 39

Hugur og hönd - 01.06.2001, Page 39
Hugleiðingar um tísku og fatahönnun Allt frá tímum frummenningar hefur þráin að skreyta eða fegra mannslíkam- ann og dást að, verið til. Frummaðurinn málaði andlit og líkama með því að nota leir og mauk ýmiss konar, litar- og ilmefni af plöntum. Staðall fegrunar tekur stöðugum breytingum í tímanna rás en hinn brennandi logi löngunar til fegrunar virðist vera óslökkvandi. Frá upphafi hefur átt sér stað ákveðin flokkun hvað varðar fegrun líkamans og hefðir í klæðaburði. 1. Að móta líkamann eftir sérstökum staðarstuðli: í Kína voru fætur mót- aðir í svokallaða „liljufætur“, Forn- Egyptar og amerískir indíánar breyttu lögun höfuðs í eftirsóttara form og í báðum tilfellum hófst mótunin á barnsaldri. 2. Að fegra líkamann, t.d. með málun, munsturgerð á hörund og húðflúri. 3. Að framlengja eða forma líkamshluta; háls, eyru, varir og nef með skrauti, t.d. hálshringjum, beinum, tré, o.fl. 4. Formun fatnaðar og líkama með not- kun pilsgrinda (krínolín) og lífstykkja (korselett), en fatnaður tók að þróast mikið frá upphafi lífstykkja og talið að þau hafi haft hvað mest áhrif á þróun nútíma sniðagerðar. Meðal grundvallarþarfa mannsins er fatnaðurinn einna nauðsynlegastur og hefur þróun klæðnaðar í tímanna rás verið samtvinnuð þjóðfélagi, menningu, efnahag og breytingum í iðnaði. Þjóð- félagslegar sviptingar og mismunandi smekkur fólks úr ýmsum stéttum þjóð- félagsins skapa tísku en hún er í eðli sínu birting þess sem fagurt er og túlkun áræðis og innri tilfinninga mannsins. Tími breytinga á sér engan endi, fólki er ekki sama um útlit sitt, gefur sér nú orðið jafnvel meiri tíma til að velja stíl og fatnað ásamt öðrum fylgihlutum. Tískan er einfaldlega orðin hluti af hinu daglega lífi enda er einkenni tískunnar að þróast viðstöðulaust og öðlast sess í tímans rás. Hvað er fatahönnun? Orðin „hönnun“ og „fatahönnun" hafa birst æ oftar hér á landi, í tengingu við íslenska hönnun og ýmiss konar erlenda fréttamiðlun. Með orðinu „hönnun" er ekki verið að vísa til vörunnar sjálfrar heldur til þess hönnunarferlis sem á sér stað. Ferlið er fólgið í samantekt og skipulagi; forsendur, tilgangur, form, litir, efni, þróun, gæði, stíll, allt myndar saman eina heild. Það er oft og tíðum ekki svo auðvelt að skilja eða sjá þær forsendur sem liggja að baki hönnuðum kjól eða prjónuðum vettlingum en varan öðlast meira gildi þegar það er ljóst. Hvað er það sem einkennir góða hönnun? Tilgangur og hlutverk hönnunar eiga að vera þau markmið hönnuða, að hafa Parísar hátíska eins og við má búast, stórghzsilegur silkitaji kjóll með hjartalaga hálsmál og pilsgrind undir, hönnuður Ungaro 1995. Bls: 231 VOGUE-Twentieth Century Fashion. HUGUROGHÖND 39

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.