Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2001, Side 40

Hugur og hönd - 01.06.2001, Side 40
vald á forsendum og tilgangi og ráða yfir fjölbreytni í sköpun. Hver er mælikvarði almennings á góða hönnun? Er hún ef til vill endurspeglun skyndilöngunar hönnuða sem eru á „egóflippi“ nútím- ans, óháð tilgangi eða þörfum mark- aðarins, hvað með okkar eðlilega vaxtar- lag, veðurfar eða persónuleika? Hverjar eru þarfir markaðarins? Það er oft og tíðum frekar óljós til- gangur sem lagður er til grundvallar hönnun fatnaðar. Er það hið fagurfræði- lega í hönnuninni sem verður aðaltil- gangurinn eða eitthvað runnið undan rifjum fatahönnuða sem hanna út frá eigin hvötum, fyrirtækja sem nota mátt auglýsinga til að skapa ímynd fyrir markaðinn. Það vegur þungt í sköpunarvinnu hönnuða að kunna skil á markaði, mark- hópum og markaðssetningu. Að hafa til- einkað sér þessa þætti og geta unnið út frá gefnum forsendum byggist á mark- vissum sjálfsaga. Straumar og stefnur sem hafa áhrif á form lista og stíls Tíska getur mótast út frá ríkjandi „stíl“, tímabili sem hefur öðlast líf í „fjöldaeðli sínu“. Þekking á heimsmenningu og mótun menningar okkar er þáttur í að öðlast víðsýni og hæfni til að greina hvaða áhrifavaldar geta orðið orsakavaldar til mótunar í samfélagi okkar. Það er hlut- verk fatahönnuða að nýta þá þekkingu og taka þátt í framþróun á ýmsum sviðum til framtíðar. Hvað er Haute Couture? Heitið „Haute Couture“ er franskt. Haute þýðir „hár“ eða „elegant", Couture þýðir einfaldlega „að sauma“, en merkingin hefur þróast í að standa fyrir að hanna, skapa og selja sérhannaðan kvenfatnað. Frá upphafi síðustu aldar hafa tísku- straumar borist frá háborg tískunnar í Frakklandi, París. Hér á Islandi höfum við dáðst að þeim úr fjarlægð en nú sér vonandi fram á breytingar. Hvert það tískuhús eða fatahönnuður sem hlotnast sú viðurkenning að mega titla sig „Haute Couture“, þarf að gerast aðili að Syndical Chamber í París sem er deild innan franska Iðnaðarráðuneytisins og gilda strangar reglur þar um. Það er því ekki á allra færi að gerast meðlimir, auk þess hefur hátískumarkaðurinn verið að dragast mikið saman frá því sem var. Fyrir seinni heimsstyrjöld unnu um 35.000 manns fyrir hátískuhúsin í Frakklandi en í dag er talan komin niður í 5.000 manns. Verð á hátískuflík er um 2-10 milljónir króna og áætlaður tími við hönnun flíkar og framleiðslu um 100-400 klukkustundir. Einungis 2.000 konur í heiminum kaupa hárískufatnað í dag, 60% þeirra eru Bandaríkjamenn. Aðeins um 200 konur eru fastir við- skiptavinir og tíðkast það nú að lána frægu fólki eða öðrum áberandi persón- um fatnað í auglýsingaskyni. Þrátt fyrir lítinn markað tekst tískuhönnuðum að viðhalda rekstrinum aðallega á sölu fjöldaframleiðslu- fatnaðar í tískudeildir sérverslana, snyrtivörum, skófatnaði og öðrum fylgihlutum. Tíska er lífsstíll! Hvað er átt við með lífsstíl? Hvaða val höfum við? Það getur verið erfitr að taka sig út úr hópnum og vera öðruvísi. Ábyrgð tískuhönnuða er mikil en mest er um vert að haft sé að leiðarljósi við hönnun fatnaðar að hönnunin byggist á því líkamsformi sem við höfum en ekki að forma þurfi líkamann eftir fatn- aðinum! Ef til vill liði mörgum mæðrum okkar eða ömmum betur í fótum í dag ef þær heíðu ekki tekið þátt í skótísku 5.-7. áratugar þar sem skór voru hann- aðir án tillits til fótlögunar. Nú stingur þessi tíska sér niður af miklum krafti aftur í dag! Eigum við þá von á því að „fegrunaraðgerðir" vegna táflutninga hefjist? Stóra táin í miðju takk fyrir! Mér hraus hugur við en eftir að hafa kannað málið varð ég rórri vegna þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað, nefnilega „frambygging" skónna, þ.e. allra nýjasti stíllinn er að nú mjókkar táin fyrir framan stóru tá þannig að skórnir lengjast fram á við! Það vill svo til að margir eru vanir skíðum hér heima og verða fljótir upp á lagið með að halda jafnvægi og halda fótlaginu áfram! Lífsstíll birtist í ýmsum myndum og fellur í flestum tilvikum undir ákveðinn markhóp, ef ekki, þá býr markaðurinn hann hreinlega til! Það er lífsstíll að eiga ekki bíl, það hefur ekkert með peninga að gera, heldur viðhorf til lífsins og gæða þess. Það er einnig lífsstíll að vera ákveðin „ímynd“, hafa þörf fyrir að ber- ast á og umfram allt að láta allt vera slétt og fellt, hin „fullkomna ímynd“. Máttur auglýsinga og annarra miðla er mikill en eitt er sameiginlegt þeim öllum: að afla fjár. Sem betur fer er tilgangur þeirra mismunandi en máttur þeirra því miður oft meiri en góðu hófi gegnir. Að skapa Issey Miyake’Prism Dress’. Haust/Vetur 1997/98. Flíkin er hönnuS útfrd líkamsforminu og efniS byggt upp sem ein heild, ull og polyamid blanda. Forminu er haldiS meS lengjum aS innanverSu sem umvefa líkamann. Bls. 116, Techno Textiles. 40 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.