Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2001, Qupperneq 44

Hugur og hönd - 01.06.2001, Qupperneq 44
stuttu fékk hann ársorlof frá kennslu, hann notaði það til að sækja sérnám- skeið handmenntar í Danmörku, Sví- þjóð og Grænlandi. Ólafur er hafsjór af fróðleik og reynslu um atriði sem varða fjölþætt notagildi skógarins og vistfræði skóglendis á Islandi. Betri kennara en þá félaga er vart hægt að finna til að kenna á námskeiði sem þessu. A námskeiðunum fá þátttakendur greinargóðan bækling með upplýsingum um markmið, dagskrá og einstaka þætti. Hvert námskeið er 20 kennslustundir. Þetta eru raðnámskeið, fyrst grunnnám- Aðalatriði er að notuð séu létt hand- brögð og nákvæm tækni. Mikil áhersla er lögð á öryggi, lokuðu hnífsbrögðin eiga að tryggja að þátttak- endur slasi sig ekki og að vinnan verði auðveld, létt og árangursrík. Minnt er á að láta hnífa og axir bíta sem best, þá er minni hætta á slysum en ella. Sem sagt, vel brýnd verkfæri eru hættuminni en bitlítil. Það á aldrei að beita afli á bitverkfæri, vel beitt verkfæri vinnur verkin. Rétt tækni og léttar hreyfingar skila bestum árangri og afköstum. Á fyrsta námskeiði er lögð áhersla á mikilvægt að ná góðum tökum á hent- ugum þurrkunaraðferðum, þar hafa þeir félagarnir ráð undir rifi hverju. Það er óskemmtilegt að gripur, sem búið er að leggja mikla alúð við, springi og skemmist í þurrkun. Nokkuð er einnig kennt um hagnýta yfirborðsmeðferð á viði. Þá má nefna tvö ólík atriði í dagskrá námskeiðanna, það fyrra er að kennt er að baka svonefnt skógarbrauð, sem þykir mikið lostæti og það síðara er að þátt- takendur setja saman vísu, efnið auð- vitað tengt námskeiðinu! Margar góðar eru komnar. skeið og síðan tvö framhaldsnámskeið ef óskað er. I verklega þættinum er kennd rétt umgengni og umhirða bitjárna. Þessi þáttur er mjög mikilvægur, það er nauðsynlegt undirstöðuatriði að tileinka sér faglega umgengni og meðhöndlun bitjárna ef góður árangur á að nást við tálgun og aðrar smíðar. Þá er strax í byrjun lögð mikil áhersla á að þátttak- endur læri og tileinki sér rétt handbrögð við notkun tálguhnífa og sérstakrar axar sem notuð er við smíðar úr skógviði. Svonefnd „læst hnífsbrögð“ eru kennd, fjögur afbrigði. Aðalatriði þess- arar tækni er að báðar hendur eru tengdar saman.Tæknin gerir ráð fyrir að bæði sé tálgað að og frá líkamanum. þá þætti sem hér hafa verið nefndir og svo tálgaðir einfaldir hlutir eftir því sem tími vinnst til. Kennt er að lesa í skóginn, lesa í efnið, sjá út í hvað það hentar og læra að leita eftir efni sem hæfir í ákveðna hluti eða muni. Lært er um mismunandi eiginleika viðartegunda sem vaxa hér- lendis. Birki er mest notað í tálguverk- efni, það er þétt og mjúkt til vinnslu, gott að tálga það og renna. Lítill munur er á sumar- og haustvexti, greinahorn við stofn fjölbreytt. Aðrar viðartegundir sem eru hentugar til að tálga eru greni, fura og ösp, svo má nefna víði, elri og selju. Allar hafa þær sína kosti og sérkenni sem fróðlegt er að kanna. Þar sem unnið er með ferskan við er Framhaldsnámskeiðin eru um ákveð- in tiltekin viðfangsefni fyrir þá sem vilja bæta við þekkingu sína og þróa ný við- fangsefni. Þar geta nemendur ráðið meira vali á viðfangsefnum. Námskeiðin eiga að gefa þátttak- endum innsýn í skógrækt og skógar- nytjar og jafnvel möguleika á að þeir geti aukið tekjur sínar með skapandi hand- verksiðju. Ekki er annað að sjá en þessi markmið hafi náðst. Þórir Sigurðsson Myndir með greininni: Myndir af munum sem gerðir hafa verið á námskeiðunum og ein mynd afverkfierum sem notuð voru þar. Ljósm.: Kristín Schm. Jónsdóttir. 44 HUGUROGHÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.