Hugur og hönd - 01.06.2001, Blaðsíða 45
íslenskur handverks- og
listiðnaður í öndvegi
Sýningar Handverks og Hönnunar
HANDVERK OG HÖNNUN hefur
nú starfað í rúmt ár í Aðalstræti 12 og
rekur þar skrifstofu og sýningarsal en var
áður til húsa að Amtmannsstíg 1.
Síðan í desember 1999 hefur verk-
efnið staðið fyrir samtals níu sýningum.
Tvær voru haldnar í sýningarsal HAND-
VERKS OG HÖNNUNAR að Amt-
mannsstíg 1 og sex sýningar hafa verið
haldnar í Aðalstræti 12.
Umfangsmesta sýning verkefnisins
árið 2000 var sýningin „Nytjalist úr nátt-
úrunni“ sem var framlag ELANDVERKS
OG HÖNNUNAR til Reykjavíkur
menningarborgar Evrópu árið 2000 sem
var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur 26.
ágúst til 24. september 2000.
Markmið þeirrar sýningar var að sýna
það besta af nytjalist samtímans. Hlut-
irnir voru allir sérhannaðir fyrir þessa
sýningu og höfðu ekki verið sýndir áður.
Lögð var áhersla á að samtvinna góða
hönnun, hugvit, gott handverk og unnið
yrði í fjölbreyttan efnivið. Eftir
„Nytjalist úr ndttúrunni":
Hálsfesti
Dýrfinna Torfadóttir.
tilnefningar og umsóknir var haldin
samkeppni þar sem allir þátttakendur
voru beðnir að hanna nytjahlut sem
tengist vatni. Dómnefnd valdi síðan úr
innsendum hugmyndum og valdi verk/-
hugmyndir frá 26 einstaklingum, alls
voru þetta 46 verk.
Skipuð var önnur dómnefnd og valdi
hún úr þessum innsendu verkum þrjá
verðlaunahafa. Peningaverðlaun voru
síðan afhent við opnun sýningarinnar í
Ráðhúsi Reykjavíkur 26. ágúst. Verð-
launin hlutu Helga Kristín Unnarsdóttir,
Philippe Ricart og George Hollanders.
Mjög mikil aðsókn var á sýninguna í
Ráðhúsi Reykjavíkur og síðan fór hún í
ferðalag um landið. Fyrst var hún sett
upp á Skriðuklaustri í Fljótsdal, síðan í
Safnahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki og
að lokum í Norska Húsinu í Stykkis-
hólmi. Áætlað er að um tíu þúsund
manns hafi séð þessa einu sýningu.
Síðan í nóvember 2000 hafa verið
haldnar sex sýningar í Aðalstræti 12.
„Nytjalist úr náttúrunni“:
Baktaska
Arndís Jóhannsdáttir.
„Nytjalist úr náttúrunni":
Tvöfóld skál
Helga Kristín Unnarsdóttir.
I byrjun nóvember var skrifstofan
opnuð formlega með sýningu og heima-
síða verkefnisins var opnuð af forsætis-
ráðherra, hr. Davíð Oddssyni.
,Állit fá þá eitthvað fallegt...“, jóla-
sýning HANDVERKS OG HÖNN-
UNAR var opnuð í byrjun desember.
Þetta var í annað sinn sem HAND-
VERK OG HÖNNUN stóð fyrir sýn-
ingu með þessu nafni. Þessar sýningar
hafa mælst ákaflega vel fyrir.
Snemma árs 2001 var haldin heild-
sölusýning í þriðja sinn. Þær sýningar
eru ekki opnar almenningi en eru sér-
staklega hugsaðar fyrir innkaupastjóra/-
eigendur verslana sem selja minjagripi.
Markmið þessara sýninga er að hvetja
handverks- og listiðnaðarfólk til nýsköp-
unar og þróunar og að auka fjölbreytni á
íslenskum minjagripamarkaði.
Fyrri hluta ársins 2001 hafa verið
haldnar þrjár þemasýningar í Aðalstræti
12.
Fyrst ber að nefna sýninguna „Tré-
leik“ en þar sýndu saman 20 einstakl-
ingar fjölbreytt verk sem áttu það sam-
eiginlegt að vera úr tré.
Undirtitill sýningarinnar „Borðleggj-
andi“ var „Borðum saman við fallega
búið borð og verum lengi að því“. Þar
sýndu saman þrjár leirlistakonur og þrír
textílhönnuðir verk sín og lögðu sam-
eiginlega á borð. Allur borðbúnaðurinn
var ný hönnun og gerður sérstaklega af
þessu tilefni.
Þann 16. júní var opnuð sýningin
HUGUROGHÖND 45