Hugur og hönd - 01.06.2001, Síða 48
PEYSUR ÚR HANDSPUNNU BANDI
DÖMUPEYSA
LÝSING: peysa úr handspunnu bandi frá Ástu Sigurðardóttur í
Ullarselinu. Garnið fæst í Ullarselínu.
STÆRÐIR: S M-L
yfirvídd 105 cm 112 cm
sídd 62 cm 70 cm
ermalengd 47 cm 44 cm
PRJÓNFESTA: 15 L og 21 umf gera 10 x 10 cm reit, í sléttu prjóni á
prjóna nr. 5 1/2. Sannreynið prjónfestuna.
ERMAR: Fitja upp 36-40 L á sokkaprj nr.5, tengið í hring og prj 8
umf perluprjón.
Skiptið yfir á prj nr.5 1/2 og prj sl, aukið út í 2. umf um 6 L, 42-46 L.
Aukið svo út fyrir miðri undirermi, 2 L í 5.hverri umf, alls 10-11
sinnum, 62-68 L og prj ermina 47-50 cm.
BOLUR: Fitja upp 240-255 L á prj nr.5, tengið í hring og merkið fyrir
1 miðlykkju framan og prj hana alltaf br. Prj 12 umf perluprjón, skiptið
yfir á prj nr.5 1/2 og prj sl þar til bolur mælist 27-30 cm frá uppfiti. Þá
skal taka saman L að aftan (skjuð) svona: Prj frá miðju framan, 38-43
L, merkja hægri hlið, prj 8-10 L merkja, prj 148 L merkja, prj 8-10 L
merkja vinstri hlið, prj 38-43 L miðja framan. Á kaflanum að aftan (148
L) skal í næstu umf prj 2 L og 3 L saman til skiptis svona.
Prj *1 sinni saman 3 L, prj 22 sinnum saman 2 L*, endurtakið *til* 3
sinnum, prj 1 sinni saman 3 L. Klára umf. Svo skal taka úr í hliðum, *prj
saman 2 L sl, 3 sinnum hvorum megin* ,eftir 2, 4 og 6 cm frá úrtöku
á baki. Prj sl þar til bolur mælist 42-47 cm frá uppfiti.
HANDVEGUR: Sameinið bol og ermar, setjið 12 Lá hvorri ermi og
í handvegi á bol, á hjálparþráð/nál. Prj 4 umf sl. Þá skal taka úr L í
laskermaúrtöku og fyrir hálsmáli að framan.
Laskermar: merkja á 4 stöðum við mót erma og bols. Taka úr í hverri
umf.
1. umf: prj saman 2 Lfrá hægri, hægra megin við merkingu
(4 sinnum í umf).
2. umf prj saman 2 Lfrá vinstri, vinstra megin við merkingu
(4 sinnum í umf).
Taka svona úr til skiptis í hverri umf.
Hálsmál: Prj saman 2 L sitt hvorum megin miðlykkju í 3. hverri umf.
Prj þartil bolur mælist 62-70 cm frá uppfiti.
KRAGI OG LÍNING: Skal sauma með þéttu spori í saumavél sitt
hvorum megin við br L að framan. Klippið á milli.
Skal prjóna upp með prj nr.5 265-275 Lfyrir líningu og kraga. Prj fram
og aftur perluprjón. Merkið fyrir 5 hnappagötum hægra megin og
fellið úr í 5. umf, prj 12 umf. Fellið af lista vinstra og hægra megin frá
röngu að úrtöku í hálsmáli.
Kragi: Setjið fyrstu og síðustu 25 L á sokkaprjóna og prj fram og aftur.
Hægra megin: Fellið af 1 L í byrjun umf á réttu og prj þar til 6 L eru
eftir á prj, fellið þá af 2 L í byrjun umf og prj saman síðustu 2 L.
Vinstra megin: Fellið af 1 L í byrjun umf á röngu og prj þar til 6 L eru
eftir á prj, fellið þá af 2 L í byrjun umf og prj saman síðustu 2 L.
Miðja. Prj fram og aftur perluprjón 22 umf. Fellið laust af.
FRÁGANGUR: Lykkið saman undir hönd og gangið frá endum. Þvoið
að lokum.
48 HUGUROGHÖND