Hugur og hönd - 01.06.2001, Page 49
ULLARSELINU: hönnun Ásdís Birgisdóttir
HERRAPEYSA
LÝSING: peysa úr léttlopa og handspunnu sprengdu bandi frá Ástu
Sigurðardóttur í Ullarselinu. Garnið fæst í Ullarselinu.
STÆRÐIR: M L
yfirvídd 120 cm 134cm
sídd 64 cm 69 cm
ermalengd 48 cm 52 cm
PRJÓNFESTA: 14 L og 18 umf gera 10 x 10 cm reit, í sléttu prjóni
á prjóna nr.6. Sannreynið prjónfestuna.
BOLUR: Fitjið upp 164-184 L á prjóna nr.5 með mórauðu. Tengið
saman í hring og prj 2 umf br. Prj svo stroff (2 L sl Ijósgrátt, 2 L br
sprengt), 10-12 umf.
Skiptið yfir á prj nr.6 og prj sl með handspunnu og aukið út um 4 L,
168-188 L. Prj sl þar til bolur mælist 40-44 cm frá uppfiti.
Þá skal fella af 7 L í hvorum handvegi. Prj nú framstykki og bakstykki
fram og aftur.
Framstykki: Þegar bolur mælist 42-44 cm frá uppfiti skal fella af 3 L
fyrir miðju að fram. Prj nú framstykkin sitt hvorum megin fram og
aftur 15-17 cm. Fellið af fyrir hálsmáli sitt hvorum megin, 6-8 L og 2
x 1 L. Prj 9 cm. Geymið L.
Bakstykki: Prj 25-26 cm. Fellið laust af á öxl.
ERMAR: Fitjið upp 44 Lá prjóna nr.4 með mórauðu. Tengið saman
í hring og prj 2 umf br. Prj svo stroff (2 L sl Ijósgrátt, 2 L br sprengt),
10-12 umf. Skiptið yfir á prj nr.6 og prj sl með handspunnu og aukið
útum 8-10 L, 52-54 L.
Aukið svo út fyrir miðri undirermi í 5.hverri umf 11-12 sinnum, 74-78
L. Prj ermina 48-52 cm. Geymið L.
FRÁGANGUR: Lykkið saman á öxlum og lykkið ermar við bol.
KRAGI OG LÍNING: Prj upp fyrir líningu sitt hvorum megin í klauf
26-29 L með Ijósgráu. Prj "2 L sl, 2 L br". Skal gera 2 hnappagöt
vinstra megin í 5. umf. Prj 12 umf og fellið af frá röngu.
Prj upp 80-88 L með Ijósgráu fyrir kraga pr 1 umf br og svo "2 L sl, 2
L br" 15 cm og fellið laust af frá röngu. Þvoið að lokum.
Fyrirsætur: Margrét Rós Sigurjónsdóttir og
Róbert Már Þorvaldsson.
Ljósmyndari: Binni.
HUGUROGHÖND 49