Fréttablaðið - 19.03.2020, Síða 14
Vísindin hafa ekki útrýmt álita-
málum þó að þau hjálpi okkur
að finna pólitískar lausnir.
Á umliðnum árum hefur átt sér stað pólitísk uppreisn gegn ábyrgð, þekkingu og hyggjuviti víða um
heim. Þetta hefur gerst bæði í Ameríku
og Evrópu þar sem popúlisminn hefur
náð fótfestu. Þessu hefur fylgt þjóð-
remba og einangrunarhyggja. Jafnframt
hefur slaknað á siðferðilegum mæli-
kvörðum.
Fyrir vikið eru Bandaríkin nú úr leik
sem forysturíki fyrir þeirri alþjóðlegu
samvinnu, sem nú er svo rík þörf á þegar
neyðarástand ríkir í heiminum öllum.
Og Evrópusambandið er af sömu ástæðu
ekki eins samhent og kröftugt og vera
þyrfti.
Ábyrgð og þekking
skiptir sköpum
Í þeim heilsufarslegu og efnahagslegu
hamförum sem þjóðir heims standa
andspænis, skiptir ekki öllu máli hvort
ríkisstjórnir standa til hægri eða vinstri
eða einhvers staðar þar á milli. Hitt
skiptir sköpum, hvort ábyrgð, vitsmunir,
þekking og yfirvegun ræður för.
Þjóðir eru verr staddar eftir því sem
þær eiga meira undir lögmálum lýð-
skrumara.
Það er sárt að horfa til Bandaríkjanna
í þessu ljósi. Þau eru mesta efnahags-
veldi í heimi og þar er saman komin
meiri og fjölþættari þekking en annars
staðar. En Bandaríkjamenn kusu eigi að
síður sjálfhverfan, dómgreindarlítinn og
óábyrgan popúlista sem forseta.
Samstaða kemur
ekki af sjálfu sér
Fyrstu viðbrögð forseta Bandaríkjanna
við kórónaveirunni voru afneitun. Hún
dugði ekki. Þá var málf lutningurinn
fluttur á stig númer tvö. Þar var skuld-
inni skellt á útlendinga, demókrata og
fjölmiðla. Fyrst þegar í ljós kom að þrep
tvö hafði engin áhrif, var málflutningur-
inn færður á plan þrjú og þekkingunni
hleypt að borðinu.
Þetta hefur leitt til þess að í Bandaríkj-
unum er ekki sama traust gagnvart því
sem gert er eins og víðast hvar annars
staðar. Og þar sem ekki er traust reynist
erfitt að byggja upp samstöðu. Hún er þó
lykilatriði. Án hennar virka fáar af þeim
sóttvarnaráðstöfunum sem þjóðir grípa
nú til.
Bandaríkin og Ísland
Áhugavert er að bera gang mála í Banda-
ríkjunum saman við okkar litla sam-
félag. Áður en þessir miklu atburðir
helltust yfir, sýndu skoðanakannanir
að ríkisstjórn Íslands naut álíka fylgis
og forseti Bandaríkjanna. Í hvorugu
landinu nutu stjórnvöld trausts meiri-
hluta kjósenda.
Ekkert nýtt hefur komið fram um
þetta almenna álit. En það er reginmun-
ur á trausti þegar kemur að þeirri tíma-
bundnu neyðarstjórnun, sem alheims
veirufaraldurinn kallar á.
Í þessu efni hefur forseti Bandaríkj-
anna enn minna traust en fyrr. Ríkis-
stjórn Íslands sýnist hins vegar hafa
óskorað traust til þess að sigla þjóðinni
í gegnum þennan brimgarð.
Skýringin liggur nær eingöngu í ólíku
vitsmunastigi æðstu stjórnar ríkjanna
og mismunandi viðhorfi til þekkingar
og ólíkri ábyrgðarkennd. Þar munar
miklu um framgöngu forsætisráðherra.
Við þessar aðstæður hefur líka komið
skýrt og sterkt fram að eiginleikar helstu
forystumanna í stjórn og stjórnarand-
stöðu falla saman að þessu leyti, þótt
ábyrgðinni sé misskipt.
Mikilvægt að lýðræðið virki
Í f lestum ríkjum má greina neyðar-
stjórnunina í þrjá þætti. Í fyrsta lagi eru
það aðgerðir, sem lúta að sóttvörnum. Í
öðru lagi eru það skyndiráðstafanir til
þess að halda súrefni í atvinnulífinu. Í
þriðja lagi kemur að því að leggja línur
um það efnahagslega umhverfi, sem
væntanlega tekur við af neyðarástand-
inu fyrr en síðar.
Í öllum þáttunum skiptir tíminn
máli. Menn mega hvorki vera of bráðir
né of seinir. Hefðbundin hugmynda-
fræði um frjálslyndi eða forsjárstefnu,
alþjóðahyggju eða einangrunarstefnu,
víkur að mestu varðandi tvo fyrstu
þættina.
En rökræða á þessum forsendum er
aftur á móti nauðsynleg þegar kemur
að þriðja þættinum. Vísindin hafa ekki
útrýmt álitamálum þó að þau hjálpi
okkur að finna pólitískar lausnir.
Þrátt fyrir sóttvarnir þarf með tækni-
legum ráðstöfunum að koma því svo
fyrir að dagleg lýðræðisleg umræða
á Alþingi skerðist ekki þrátt fyrir öll
ósköpin. Mikilvægt er að fólkið í landinu
sjái og finni að lýðræðið virki við þessar
aðstæður. Það er þáttur í því að viðhalda
trausti.
Nú er ógott að eiga sitt undir lýðskrumurum
AF KÖGUNARHÓLI
Þorsteinn
Pálsson
Allt telur
Kynntu þér ársskýrslu Marel á ar2019.marel.com
Með nýsköpun og sjálfbærni að leiðarljósi höldum við ótrauð áfram
að umbylta matvælaframleiðslu á heimsvísu. Þar höfum við ætíð hugfast
að allt telur. Hver og einn vatnsdropi við framleiðslu. Hver og ein hugmynd.
Hvert og eitt viðbótargramm af matvöru. Hvert og eitt okkar jarðarbúa.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 1 9 . M A R S 2 0 2 0