Fréttablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 19.03.2020, Blaðsíða 17
1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð við: „Mér finnst þetta svo ógagnsætt og tilviljunarkenndar ákvarðanir. Auðvitað er ég ekki að gagnrýna íþróttastarfið en það sem ég er að koma áleiðis er að hafa þetta uppi á borðum og markvissara. Styrkveit- ingar, eins og ég þekki frá þinginu, var að sækja um í mörgum nefndum og það vantaði samtal á milli nefnda og sama verkefni var að fá styrk frá tveimur og jafnvel þremur nefnd- um. Stóð svo uppi með pálmann í höndunum með fullt af fjármagni.“ Stærsti einstaki styrkurinn rann til Skákakademíu Reykjavíkur árið 2014 og 2015 eða sex milljónir. Árið 2014 fór reyndar 14,1 milljón til skákarinnar, af um 30 milljónum sem fóru í styrkveitingar. Ári síðar runnu 15,2 milljónir af 48,7 millj- ónum til skákdeilda borgarinnar. benediktboas@frettabladid.is SPORT ÍÞRÓTTIR Reykjavíkurborg hefur dælt tæpum 20 milljónum í Sigl- ingafélag borgarinnar, Brokey, á undanförnum áratug. Skák hefur einnig notið góðs af gjafmildi borg- arinnar, en yfir 30 milljónir hafa farið í skákdeildir um borgina, og þá kostaði frístundastrætó milli Safa- mýrar og Úlfarsárdals fyrir Fram, tugi milljóna. Þetta er meðal þess sem sjá má í svari íþrótta- og tóm- stundasviðs og mannréttinda-lýð- ræðisskrifstofu, sem ná tíu ár aftur í tímann, og var lagt fyrir borgarráð Reykjavíkur á síðasta fundi eftir fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur úr Miðflokknum. Í fyrirspurn hennar segir að styrkveitingar ráða og borgarráðs hjá Reykjavíkurborg séu mjög ógagnsæjar og mikil hætta á að ekki sé gætt jafnræðis við úthlutun fjár- magns. Rúmlega 12 milljónir séu að renna í gegnum mannréttindaráð á ári og tæpar 20 milljónir í gegnum íþrótta- og tómstundaráð. „Það f yrirkomulag að veita „skyndistyrki“ í mannréttindaráði til verkefna eða einstaklinga án ítar- legs rökstuðnings, er gjörsamlega galið,“ segir í fyrirspurn hennar og bendir Vigdís á að það vanti upp- lýsingar um hverjir séu á bak við styrkveitingarnar. Vigdís segir að hún sé að gagn- rýna styrkveitingar innan ráða borgarinnar, en ekki þá sem þiggja styrkina. „Þetta var alveg eins þegar ég var formaður fjárlaganefndar, þá var hver nefnd með einhvern pott sem hægt var að sækja styrk í og það var að lokum afnumið. Þegar þetta er komið í svo litla einingu, hvort sem það er ríki eða borg, þá er ég hrædd um að það sé ekki gætt jafn- ræðissjónarmiða. Að það sé einhver tilfinning sem ráði. Til að gera fjár- mál borgarinnar gegnsæ þá á þetta að vera í fjármálaáætlun.“ Brokey fær háa styrki nánast á hverju ári, af þeim tíu árum sem tekin eru fyrir. Í fyrra var það vegna unglingastarfs og kaupa á búnaði upp á þrjár milljónir, ári áður fékk félagið fjórar milljónir. Eins og með marga styrki þá er enginn rökstuðn- ingur á bak við tölurnar. „Þetta virð- ist vera rekstrarstyrkur og kannski er það stefna meirihlutans að hafa starfandi siglingaklúbb. Það er gott og vel, en þarf ekki að rökstyðja það aðeins meira?“ spyr Vigdís og bætir Borgin heldur Brokey á floti Styrkveitingar ráða hjá Reykjavíkurborg eru mjög ógagnsæjar og skyndistyrkir upp á margar milljónir er galið fyrirkomulag, segir Vigdís Hauksdóttir, sem fékk svör um styrkina á síðasta borgarráðsfundi. Siglingafélag Reykjavíkur, Brokey, var stofnað í febrúar árið 1971 af tólf áhugamönnum um siglingar. Frá upphafi var tilgangur félagsins meðal annars að örva áhuga fólks á siglingum. Hér eru skútur á siglingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Styrkþegi Upphæð Félag tónlistarþróunarm. 4.000.000 kr. Fisfélag Reykjavíkur 1.200.000 kr. Fish partner ehf. 150.000 kr. Fjölnir 800.000 kr. Hestamiðstöð Reykjavíkur 1.500.000 kr. Íþróttafélag fatlaðra 1.200.000 kr. ÍR 650.000 kr. Íþróttasamband fatlaðra 1.000.000 kr. Samfés 500.000 kr. Siglingafélag Reykjavíkur 3.000.000 kr. Skátasamband Íslands 1.000.000 kr. Tónlistarfélag Árbæjar 2.500.000 kr. Víkingur 500.000 kr. ✿ Styrkirnir árið 2019 KÖ R F U B O LT I Eng inn Íslands- meistari verður krýndur þetta tímabil og hefur körfuboltinn á Íslandi verið flautaður af. Var þetta niðurstaða stjórnar KKÍ sem hitt- ist í hádeginu í gær. Fyrir fundinn höfðu starfsmenn KKÍ teiknað upp nokkrar sviðsmyndir með mis- munandi útfærslum af keppnis- fyrirkomulagi að loknu samkomu- banni. Ræddi stjórnin þessar sviðsmyndir og þá möguleika sem þær fólu í sér. Vitað var að allar þær ákvarðanir sem hægt var að taka væru erfiðar og að ein- hverju leyti slæmar, sér í lagi þar sem ekki verður hægt að nýta reglu- gerðir sambandsins, segir í tilkynn- ingu frá körfuknattleikssamband- inu. Í tilkynningunni segir að af sam- tölum íþróttahreyfingarinnar við yfirvöld megi skilja að það fjögurra vikna samkomubann sem sett hefur verið sé lágmark og að líkön geri ráð fyrir að þjóðfélagið verði að ein- hverju leyti í lamasessi fram á sum- armánuði vegna kórónaveirunnar. Aðgerðir stjórnvalda hafa verið að herðast undanfarna daga og óvíst hver staðan verður á næstu miss- erum vegna þess. Af framansögðu má telja ljóst að ekki verður hægt að spila strax og samkomubanni verður af létt, einnig er ekki víst hvort lið verða fullmönnuð, segir meðal annars í tilkynningunni. Niðurstaðan var því að f lauta tímabilið af, enginn verður krýndur Íslandsmeistari, Stjarnan er deild- armeistari og Fjölnir fellur niður í 1. deild karla. Höttur frá Egilsstöðum kemur í hans stað. Valur er deildar- meistari Domino’s deildar kvenna og Grindavík fellur en Fjölnir kemur upp í þeirra stað. „Vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru og hafa stuðlað að ótíma- Karfan flautar keppnistímabilið af án Íslandsmeistara Stjarnan er deildarmeistari í körfubolta annað árið í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR bærum lokum keppnistímabilsins 2019/2020 má ljóst vera að mörg félög muni lenda í fjárhagsvanda vegna talsverðs tekjumissis. Það sama mun gilda um fjárhag KKÍ. Það verður verðugt verkefni allra hlutaðeigandi að takast á við þann vanda,“ segir enn fremur í tilkynn- ingunni. – bb Kannski er það stefna meirihlutans að hafa starfandi siglinga- klúbb. Það er gott og vel, en þarf ekki að rökstyðja það aðeins meira? Vigdís Hauksdóttir Má ljóst vera að mörg félög muni lenda í fjárhagsvanda vegna talsverðs tekjumissis. Það sama mun gilda um fjárhag KKÍ. Úr tilkynningu KKÍ FÓTBOLTI Fulltrúar ensku liðanna ætla að funda í dag til að ræða kom- andi tíma og ræða málin samkvæmt enskum fjölmiðlum. Enska bolt- anum hefur verið af lýst til fjórða apríl hið minnsta og í staðinn fyrir að taka einkaþotur og rándýra bíla- leigubíla til London mun fundur- inn fara fram í gegnum fartölvur. Ekki er búist við neinni ákvörðun á fundinum en félögin eru að bera saman bækur sínar varðandi leik- menn og fjárhag. Ekki er ólíklegt að félögin vilji spila fyrir luktum dyrum enda miðasala ekki svo stór hluti af rekstri félaga í Úrvals- deildinni en ljóst er að liðin vilja klára tímabilið. Flest lið eru hætt æfingum og leikmenn farnir að æfa heima hjá sér. – bb Símafundur á Englandi í dag Virgil van Dijk og félagar í Liverpool hafa verið langbestir í vetur. FÓTBOLTI Stjórn KSÍ kemur saman í dag þar sem meðal annars verður ákveðið hve lengi KSÍ ætlar að fresta Íslandsmótinu. Guðni Bergs- son, formaður sambandsins, sagði í Bítinu á Bylgjunni og Stöð 2 í gær að trúlega yrði það fram í byrjun maí. Í tilkynningu KKÍ í gær segir að af samtölum íþróttahreyfingarinnar við yfirvöld megi skilja að það fjög- urra vikna samkomubann sem sett hefur verið sé lágmark og að líkön þeirra geri ráð fyrir að þjóðfélagið verði að einhverju leyti í lama- sessi fram á sumarmánuði vegna kórónaveirunnar. KSÍ og ÍTF hafa verið gagnrýnd fyrir að gefa ekki út nægilega leiðbeinandi útskýringar á samkomubanninu, en ÍTF sendi frá sér bréf í gær og óskaði eftir við- brögðum frá KSÍ. Bikarkeppnin á að byrja 8. apríl en ljóst er að hún mun ekki byrja, enda téð samkomubann í gildi og verða að vera tveir metrar á milli manna. KSÍ hefur frestað öllum leikjum sínum, sem og lands- liðsæfingum, til 15. apríl. – bb Fótboltinn ræðst í dag

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.