Fréttablaðið - 19.03.2020, Síða 15

Fréttablaðið - 19.03.2020, Síða 15
Ljóst er að mikið álag er á kerfinu okkar en gleymum ekki að ræða álagið á fjöl- skyldurnar. Café Komdu í kaff i AUSTURSTRÆTI SKÓLAVÖRÐUSTÍG LAUGAVEGI AKUREYRI VESTMANNAEYJUM Þegar rykið sest verður hægt að fara af fullum krafti í það að efla atvinnulífið. Það er staðreynd að við erum að ganga inn í kólnandi hagkerfi eftir uppsveiflu undanfarinna ára. Þar koma til nokkrar ástæður eins og fækkun ferðamanna og loðnubrestur svo eitthvað sé nefnt. Við þetta bætast svo efnahagsáhrif af völdum COVID-19. Í kólnandi hagkerfi þurfa fyrirtæki gjarnan að hagræða og grípa til uppsagna sem leiðir til aukins atvinnu- leysis og minnkandi hagvaxtar. Efnahagsstaða þjóða getur verið sveif lukennd og það þekkjum við í Íslandssögunni. Viðbrögð stjórn- valda hverju sinni hafa áhrif á stöðu og framgang efnahagsmála til fram- tíðar. Staða ríkissjóðs er sterk og það er sá grunnur sem við getum byggt á þegar við bregðumst við fyrirliggjandi krísu. Áform stjórnvalda Viðbrögð ríkisstjórnarinnar hafa verið fumlaus og ákveðin. Nú hefur þegar verið brugðist við og kynntar aðgerðir sem munu spyrna á móti niðursveiflu í hagkerfinu í þessum fordæmalausu aðstæðum sem skapast hafa vegna COVID-19. Markmiðið með þeim aðgerðum er að styðja við bankakerfið til þess að hægt verði að f leyta fyrirtækjum yfir erfiða hjalla næstu mánuði. Farið verður í ákveðnar skattkerf- isbreytingar til þess að lækka álögur og síðast en ekki síst verða settir á bilinu 20-25 milljarðar á ári næstu þrjú árin í innviðaframkvæmdir sem ætlað er að vera innspýting fyrir hagkerfið. Þar eru aðgerðir sem eru mannaflsfrekar og ákveðn- ar framkvæmdir eru til þess fallnar að ef la atvinnutækifæri. Má þar nefna brúagerð, vegaframkvæmdir og hafnarframkvæmdir. Mikilvægt er á tímum sem þessum að stjórn- völd bregðist við með markvissum hætti til að vega upp á móti niður- sveiflu í hagkerfinu sem koma bæði atvinnulífinu og þá heimilunum til góða. Þegar rykið sest Gera má ráð fyrir að COVID-19 muni ganga hér yfir á einhverjum mánuðum og eru stjórnvöld að taka málið föstum tökum. Fyrir liggur að einhverjar raskanir muni verða á hefðbundnu lífi borgaranna en stjórnvöld stefna á að lágmarka þær. Samheldni þjóðarinnar skiptir miklu máli og hefur hún sýnt það í verki með því að fara eftir leiðbein- ingunum almannavarna og land- læknis sem er gríðarlega mikilvægt. Þannig komumst við standandi niður úr þessu falli. Þegar rykið sest verður hægt að fara af fullum krafti í það að ef la atvinnulífið. Verður það meðal annars gert með þeim aðgerðum sem farið hefur verið hér yfir sem og öf lugu markaðsátaki í ferða- þjónustu og með því réttum við við stærsta atvinnuveg landsins. Það er líka þekkt að upp úr krísum mynd- ast ný tækifæri eins og kom í ljós eftir síðustu krísu. Þjóðarskútan mun rétta sig við og það þekkjum við öll sem búum á landi elds og ísa og stöndum saman nú sem fyrr. Það mun skila sér til komandi kynslóða eins og við öll þekkjum. Tími Framsóknar í efnahagsmálum Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknar- flokksins Forsvarsmönnum almennra frjálsra félagasamtaka brá nokkuð í brún þegar farið var á heimasíðu Skattsins til að ganga frá framtölum ársins. Upp poppaði gluggi þar sem þess var krafist að hlutaðeigandi upplýsti um „raun- verulega“ eigendur félags eða félaga. Til frekari áréttingar kröfunni fylgdi hótun um dagsektir ef ekki yrði án tafar brugðist við. Í 74. gr. Stjórnarskrárinnar er kveðið á um það að menn eigi rétt á að stofna félög í sérhverjum lög- legum tilgangi án þess að sækja um leyfi til þess. Á heimasíðu Skattsins er að finna eftirfarandi: „Almenn félög – samtök Sk ipulagsbundin félög sem starfa í þágu ófjárhagslegs til- gangs hafa verið nefnd almenn félög. Almenn félög eru skipulags- bundin, varanleg samtök tveggja eða f leiri aðila, sem stofnað er til af fúsum og frjálsum vilja með einkaréttarlegum löggerningi í því skyni að vinna að ófjárhagslegum tilgangi. Þar sem ekki er kveðið á um skipan almennra félaga í lögum skipta ákvæði samþykkta miklu við túlkun á réttarstöðu þeirra auk þess sem meginreglur félagaréttar koma þá til skoðunar. Almenn félög verða lögaðilar þegar þau hafa verið stofnuð og er skráning ekki skilyrði fyrir rétthæfi þeirra. Unnt er að fá þau skráð í fyrirtækjaskrá ríkis- skattstjóra skv. lögum nr. 17/2003 um fyrirtækjaskrá en þau eru ekki skráningarskyld. Sem dæmi um almenn félög má nefna stjórnmálaf lokka, íþrótta- félög, skákfélög, fagfélög, stéttar- félög, samtök vinnuveitenda, mann- úðarfélög og menningarfélög.“ Félög sem starfa í þágu ófjár- hagslegs tilgangs þurfa að hafa bankareikning m.a. til að varðveita félagsgjöld. Forsenda þess að geta stofnað bankareikning er að félag- ið hafi kennitölu. Hafi félagið aflað sér kennitölu virðist það lenda sjálf- krafa á fyrirtækjaskrá. Það er þetta atriði sem Ríkisskattstjóri hengir hatt sinn á, vegna þess að í 2. gr. laga nr. 82/2020 sem er forsenda aðgerðanna gegn almennum frjáls- um félögum segir: „Lög þessi gilda um lögaðila sem stunda atvinnu- rekstur hér á landi eða eru skráðir í fyrirtækjaskrá.“ Skatturinn fer offari í lagatúlkun sinni og hún er íþyngjandi fyrir margvíslegt sjálf boðastarf í land- inu. Eftirlitsaðilum er í lófa lagið að fylgjast með og bregðast við óeðli- legum umsvifum eða tilfærslu fjár- muna á bankareikningum, frekar en að tortryggja alla fyrir fram. Heilsíðuauglýsingar frá Skatt- inum, sem birtust í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu fimmtudaginn, 12. mars 2020, benda til þess að mörgum hafi vafist tunga um tönn þegar tilgreina á „raunverulega“ eigendur almennra frjálsra félaga- samtaka því fram til þessa hefur verið talið að þau væru í óskiptri sameign félagsmanna. Hverjir eru „raunverulegir“ eigendur þess sem Ríkisskattstjóri skilgreinir sem „almenn félög“? Eru formenn eða prókúruhafar samtakanna „raun- verulegir“ eigendur þeirra? Verður ætlast til þess að öll frjáls almenn félög í landinu uppfæri árlega „eig- endaupplýsingar“ ? Ekki kærir fólk sig um að vera skráð eigendur félags þar sem aðrir hafa tekið við stjórn- artaumunum. Er næsta skrefið að þeir skuli telja félögin fram sem eign sína og borga af þeim viðeig- andi skatta og gjöld ef um slíkt er að ræða? Eru alþingismenn samþykkir túlkun Ríkisskattstjóra á ákvæði í 2. gr. laga nr. 82/2020? Hvernig skyldi í framhaldinu verða að fá fólk til að gegna trúnaðarstörfum í almennum frjálsum félögum ef framangreind túlkun Ríkisskatt- stjóra stendur óhögguð? Hvað segir fólk um þessa sókn skattstjóra gegn félagafrelsinu? Á blaðsíðu 16 í Fréttablaðinu fimmtudaginn, 12. mars 2020, er birt skopmynd teiknuð af snill- ingnum Halldóri Baldurssyni, sem tengist því sem hér er til umfjöll- unar. Þar hittir hann naglann á höf- uðið. Myndin segir meira en mörg orð. Ríkisskattstjóri ætti að ramma þessa mynd inn og hengja hana upp á vegg andspænis skrifborðinu sínu sér til áminningar um að gæta þess að ganga ekki of langt í að skerða félagafrelsi fólks í þessu ágæta landi. Það eru ekki allar þjóðir sem búa við slík réttindi. Réttindi sem er skylt og nauðsynlegt að standa vörð um. Leiftursókn gegn félagafrelsi? Nú þegar ráðamenn tala um fordæmalausa tíma er mikilvægt að huga að minnstu einingu samfélagsins, f jölskyldunni. Framvarðarsveit landsins hefur komið ágætlega til skila hvernig álag getur birst okkur m.a. í klaufalegum samskiptum og ónærgætni og þá er mikilvægt að geta bakkað, viðurkenna mistök, biðjast fyrirgefningar og fá leyfi til að byrja aftur. Þá talaði land- læknir um mikilvægi húmors sem er mikilvægt verkfæri til að takast á við erfiðleika. Ljóst er að mikið álag er á kerfinu okkar en gleymum ekki að ræða álagið á fjölskyldurnar. Mikilvægt er að einstaklingar innan fjölskyldu geti rætt og fái samþykki fyrir líðan sinni og áhyggjum. Þá þurfa foreldr- ar og aðrir sem koma að börnum, að búa til umhverfi fyrir þau þar sem þau geta tjáð sig og á þau er hlustað. Þá er gagnlegt fyrir foreldra að setjast niður með börnum sínum og má nefna form fjölskyldufunda, en þar gefst fjölskyldumeðlimum kostur á að spyrja spurninga sem og má nýta til að skipuleggja praktíska hluti frá viku til viku, s.s. matar- plan, heimilisverk og gæðastundir. Þá er mikilvægt að við reynum að láta þessar aðstæður hafa eins lítil áhrif eins og kostur er. Það getur reynst þrautin þyngri, en eftir fremsta megni að huga að grunn- þörfum okkar, s.s. svefni, næringu og hreyfingu. Þá ekki síður að sinna ástinni, gleðinni, örygginu. Vernda hvert annað þegar við erum hrædd, samþykkja skoðanir og líðan hvers annars, síðast en ekki síst að gleðj- ast saman. Fjöldinn allur er af hugmyndum um það sem fjölskyldan getur gert sér til dægrastyttingar og skemmt- unar, s.s. leikir, dansar, gátur, galdrar, tilraunir, bakstur, leikrita- smíð, tölvuleikir. Einnig er tilvalið að fara af stað með verkefni sem við gefum okkur venjulega ekki tíma til að sinna. Svo eitthvað sé talið má nefna heimaleikfimi, jóga, að gróðursetja fyrir sumarið, para staka sokka, henda myndum í fram- köllun. Mikilvægasta eining samfélags- ins, fjölskyldan, þarf sérstaka sinnu á þessum skrýtnu tímum og mikil- vægt að huga að sér og sínum. Fjölskyldur hugi að sér og sínum Gylfi Kristinsson stjórnmála- fræðingur og fyrrverandi skrifstofustjóri í félagsmála- ráðuneytinu Ólína Freysteinsdóttir ráðgjafi Skatturinn fer offari í lagatúlkun sinni og hún er íþyngjandi fyrir margvíslegt sjálfboðastarf í landinu. 1 9 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.