Fréttablaðið - 07.04.2020, Page 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is,
Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sighvatur
Arnmundsson
sighvatur@frettabladid.is
Við eigum að
vera þakklát
fyrir allt
frábæra
listafólkið
sem auðgar
líf okkar.
Óeining,
óvissa og
ógegnsæi eru
jarðvegur
fyrir tor-
tryggni, reiði
og öfgaöfl.
Hvernig myndir þú gera þetta?“ spyrja sumir þegar ég kalla eftir sátt og samráði á tímum heimsfaraldurs og hruns efnahagslífsins.
Því er auðsvarað. Ég myndi til dæmis gera eins
og Boris Johnson forsætisráðherra Breta gerði nú á
dögunum og biðja stjórnarandstöðuna um samstarf
um lausnir á erfiðum tímum. Ég myndi vinna þvert
á flokka eins og Danir gera og Norðmenn. Leiða alla
í sömu átt þegar óvissa er um svo margt og fólk hefur
áhyggjur af heilsu sinni og ástvina, afkomu sinni og
rekstrarumhverfi heimila og fyrirtækja.
Fyrstu viðbrögð stjórnvalda og Alþingis voru ágæt.
Þau snúast um frest á greiðslum og tímabundnar
aðgerðir á vinnumarkaði. Aðgerðirnar munu duga
sumum. Stjórnvöld verða að koma með frekari
aðgerðir fyrir minni fyrirtæki, námsmenn, viðkvæma
hópa og heimili. Mörg heimili verða fyrir miklum
búsifjum, ekkert síður en fyrirtækin. Það verður að
mæta rekstrarvanda þeirra líkt og fyrirtækja og það er
ekki hægt að bíða lengi eftir úrræðum í þeim efnum.
Seðlabanki Íslands hefur gert bönkunum kleift að
vinna með fólki og fyrirtækjum og ríkisstjórnin lofað
lækkun bankaskatts. Lækkun stýrivaxta á að nýtast
öllum. Gera þarf skýlausa kröfu til banka að þeir lækki
yfirdráttarvexti tafarlaust og frysti húsnæðis- og
bílalán þeirra sem misst hafa vinnuna eða orðið fyrir
miklu tekjutapi vegna samkomubanns eða annarra
afleiðinga faraldursins. Og að bankar keyri hvorki
fyrirtæki né heimili í þrot við þessar aðstæður heldur
gefi góð ráð um valkosti til að bæta stöðuna.
Atvinnuleysi fer hratt vaxandi og atvinnuleysis-
bætur eru langt undir lágmarkslaunum. Atvinnuleysi
fór vaxandi á ákveðnum landsvæðum strax í janúar
og faraldurinn mun hafa í för með sér langtíma-
atvinnuleysi með kostnaðarsömum og afdrifaríkum
aukaverkunum fyrir heimili og samfélag. Hækka þarf
atvinnuleysisbætur og koma á öflugri velferðarvakt og
endurmenntun á þeim svæðum sem verst verða úti.
Óeining, óvissa og ógegnsæi eru jarðvegur fyrir tor-
tryggni, reiði og öfgaöfl. Því er slæmt ef ríkisstjórnin
hafnar áfram samstöðu og sátt um leiðina áfram.
Sátt eða sundrung
Oddný G.
Harðardóttir
þingmaður
Samfylkingar-
innar
Erum með mikið úrval af allskonar
bílaverkfærum á frábæru verði!
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
Hleðslutæki
12V 6A
6T Búkkar
605mm Par
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
Omega
Viðgerðarkollur
4.995
9.999
17.995
7.495
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
Þjóðargersemi
Við notum orðið þjóðargersemi
um manneskjur sem auðgað
hafa samfélagið og öllum þykir
vænt um. Á tímamótum sjást
hverjir þessir einstaklingar
eru, til dæmis Raggi Bjarna og
Rósa Ingólfs sem kvöddu fyrir
skemmstu. Fólk sem gerði ekki
annað en að skemmta þjóðinni,
en skemmtun er vanmetin. Nú
er að koma skýrt fram að Helgi
Björns er þjóðargersemi. En
hann hefur troðið upp í sjón-
varpinu á laugardagskvöldum
á meðan á COVID-fárinu
stendur. Viðbrögðin hafa verið
ótrúlega góð, landinn stendur
upp og hristir sig fyrir framan
imbann, syngur með og sendir
góðar kveðjur með tístum. Smá
gleði á þessum óvissutímum. Já,
skemmtun er vanmetin.
Ekki tími fyrir tígrisdýr
Sóttvarnayfirvöld halda áfram
að herða ólina og nú er til
þess mælst að landinn fái sér
ekki tígrisdýr. En samkvæmt
amerískum fréttum kom upp
tilfelli COVID-19 smitaðs tígurs
í New York. Kemur þetta eins
og blaut tuska framan í þjóðina,
sem nú hámhorfir á þættina
Tiger King á Netf lix, og sér tígra
fyrir sér sem tilvalin gæludýr.
Íslendingar elska tígrisdýr. Sást
þetta best þegar tígrisdýrin
komu sem lánsdýr í Sædýra-
safnið í Hafnarfirði en þá mætti
hálf þjóðin til að sjá þessi krútt.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Þríeykið góða, þau Alma, Þórólfur og Víðir, biður fólk að halda sig heima nú um páskana. Það verða engar ferm-ingarveislur, skíðaferðir eða sumar-bústaðaheimsóknir. Það er mikilvægt að þessum tilmælum sé fylgt til að
létta álaginu af heilbrigðiskerfinu og öðrum inn-
viðum. Við erum væntanlega að fara að sigla inn
í erfiðustu daga þessa faraldurs sem hefur fyrir
löngu sett allt okkar daglega líf úr skorðum.
Stéttarfélög hafa brugðist við og dregið til baka
úthlutanir í orlofshús sín um páskana og jafnvel
lokað þeim þar til samkomubanni verður af létt.
Fórn okkar sem stöndum ekki í framlínu heil-
brigðiskerfisins er lítil. Höldum okkur heima
og forðumst allt óþarfa samneyti við aðra en
heimilisfólk.
Samkomubannið og af leiðingar þess hafa
dregið mjög skýrt fram hversu mikið við erum
háð menningu og listum. Um páskana er tilvalið
fyrir fjölskyldur að skrá sig í lestrarverkefnið Tími
til að lesa sem Menntamálastofnun og mennta- og
menningarmálaráðuneytið standa fyrir. Þar er
markið sett hátt, setja á heimsmet í lestri í einum
mánuði. Þegar þetta er skrifað hafa þátttakendur
lesið í tæplega 1,4 milljón mínútur sem jafngildir
tveimur árum og tæplega átta mánuðum betur.
Þetta er frábær leið til að hvetja börn til lesturs.
Börn sem lesa bækur sér til ánægju öðlast betri
málskilning og þau búa yfir meiri orðaforða en
börn sem lesa ekki. Niðurstöður úr lesskilnings-
hluta PISA-rannsóknarinnar minna okkur á að
hér er til mikils að vinna. Foreldrar geta líka skráð
sinn lestur. Við megum ekki gleyma því hve fyrir-
myndir eru mikilvægar fyrir lesendur og rithöf-
unda framtíðarinnar.
Þá hefur tónlistarfólk verið duglegt að nýta
tæknina við að streyma lifandi tónlist. Sumir
halda stofutónleika heima hjá sér en aðrir troða
upp á tómum tónleikastöðum. Tónlistarhátíðin
Aldrei fór ég suður, sem er ómissandi þáttur í
páskum margra landsmanna, mun meira að segja
fara fram á Ísafirði þótt engir verði gestirnir. Það
er gaman að sjá hversu hugmyndaríkt listafólkið
okkar er á þessum skrýtnu tímum.
Við eigum að vera þakklát fyrir allt frábæra
listafólkið sem auðgar líf okkar. Þegar þetta
verður allt saman yfirstaðið skulum við muna
eftir öllum þeim stundum sem við nýttum við
lestur góðra bóka eða hlustuðum á tónlist. Við
skulum líka muna eftir öllum kvikmyndunum,
þáttunum og leikhúsperlunum sem við horfðum á
og allri listinni sem er í kringum okkur á hverjum
degi.
Heima um
páskana
7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN