Fréttablaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞEGAR SKARPI
DAGSKRÁRSTJÓRI
SAGÐI MÉR FRÁ HUGMYNDINNI,
AÐ ÉG YRÐI MEÐ RAGNHILDI Í
SETTINU, ÞÁ LEIÐ NÆSTUM
YFIR MIG.
Ha f s t e i n n V i l -helmsson er ásamt Ragnhildi Stein-unni Jónsdóttur, u m sjóna r maðu r u m r æ ð u þ á t t a r
fyrir börn og ungmenni um COVID-
19 sem sýndur verður í Ríkissjón-
varpinu í kvöld. Hann segist hafa
lært mikið af gerð þáttanna, ekki
bara um COVID-19 faraldurinn
sem hefur haft mikil áhrif á heims-
byggðina alla.
Kennsla frá þeirri bestu
„Ég fæ náttúrulega kennslu frá
einni bestu sjónvarpskonu landsins
Ragnhildi Steinunni og haf verið í
einkakennslu hjá Sigyn Blöndal sem
er búin að gefa mér fullt af frábær-
um ráðum. Það sem stendur upp úr
er náttúrulega þetta frábæra tæki-
færi að fá að taka þátt í gerð svona
mikilvægs þáttar, ég gæti ekki beðið
um betra fyrsta gigg í sjónvarpi. Ég
hafði vissa hugmynd um ferlið en
ekki alveg hversu mikil og krefjandi
vinna er á bak við hverja sekúndu,“
segir Hafsteinn.
Hann segir það afskaplega mikil-
vægt að hafa þátt sérstaklega ætl-
aðan ungmennum og börnum, þar
sem þau hafi ólíkar spurningar,
vangaveltur og áhyggjur af stöð-
unni.
„Þeirra sjónarmið og vangaveltur
eru enga minna mikilvægar en
spurningar fullorðna fólksins. Svo
skiptir miklu máli að ræða þessa
hluti og styðja við þau á þessum
breyttu tímum, nú þegar þau hafa
ekki sama aðgang að skólum, félags-
miðstöðvum og tómstundastarfi,“
segir hann.
Hann segir þeim hafa borist
margar spurningar og þó nokkrar
þeirra snert á málum sem hann
hafði sjálfur ekki velt fyrir sér.
„Það er margt sem brennur á
unga fólkinu og margar spurningar
sem ég hafði ekki einu sinni pælt í,
allt frá skólamálum, tilfinningum
og kvíða. Þau eru einlæg í sínum
spurningum og vilja fá svör, sem er
algjörlega frábært og ég veit að við
getum lært helling af þeim.“
Lausnamiðuð
Hann segir skiljanlegt að aðstæð-
urnar hafi mikil áhrif á sálarlíf ung-
menna og barna.
„Það er ekkert grín þegar manni
er allt í einu kippt út úr öllu og á
sama tíma áttu að standa þig vel
í skólanum, æfa þig heima ef þú
ert í íþróttum eða öðru sem krefst
æfinga. Félagsleg samskipti skipta
gríðarlega miklu máli á þessum
árum og allt í einu eru þau heft,
þannig að ég get rétt ímyndað mér
að þetta sé erfitt. En ég held að ef
einhver finnur góða leið til að halda
þeim við þá eru það börn og ung-
menni,“ segir Hafsteinn
Hann segist hafa orðið virkilega
glaður þegar sú hugmynd var borin
undir hann að hann tæki að sér
þáttarstjórnina ásamt Ragnhildi.
„Já, þegar Skarpi dagskrárstjóri
sagði mér frá hugmyndinni, að ég
yrði með Ragnhildi í settinu, þá
leið næstum yfir mig. Ég svitnaði á
núll einni og varð spenntur, glaður
og stressaður á sama tíma áður en
ég gat náð að segja já,“ segir hann.
Sterkari saman
Hafsteinn er verkefnisstjóri Ung-
RÚV og það er í nógu að snúast.
„Við erum að gera Heimavistar-
þættina, ég, Sigyn Blöndal og
Sævar Helgi Bragason, en þeir eru
að fá alveg frábærar móttökur. Svo
erum við með í kortunum að hafa
rafræna opnun félagsmiðstöðva
á UngRÚV.is, þar sem ég veit að er
verið að halda úti dagskrá á sam-
félagsmiðlum.“
Sjálfur tekur Hafsteinn þessum
flóknu tímum með stóískri ró, í bili.
„Það er leiðinlegt að segja það
þegar margir eru að standa í hetju-
legri baráttu við veiruna, en ég get
ekki kvartað sjálfur. Ég er að gera
spennandi verkefni í vinnunni og
ég fæ að eyða meiri tíma með konu
og barni,“ segir hann.
Hann segist sjálfur ætla að halda í
bjartsýnina og vonar að aðrir reyni
sitt besta að gera slíkt hið sama.
„Reynum fyrir alla muni að finna
allt það jákvæða sem við getum gert
í þessu ástandi, notum tækifærið og
hlúum að okkur sjálfum og þeim
sem standa okkur næst. Prófum
eitthvað sem okkur hefur alltaf
langað að prófa. hlustum, lærum
og leikum, höldum tveggja metra
reglunni, hlýðum Víði og stöndum
saman; við erum sterkari þannig.“
Þ á t t u r i n n e r s ý n d u r á
RÚ V í k völd k luk kan 19. 35.
steingerdur@frettabladid.is
Sjónarmið ungmenna
engu minna mikilvæg
Hafsteinn er annar umsjónarmaður umræðuþátta fyrir ungmenni
og börn um COVID-19. Hann segir yngra fólk hafa í sumum tilfell-
um ólíkar spurningar og vangaveltur en fullorðnir um stöðu mála.
Hafsteinn segir að öðruvísi spurningar brenni á vörum barna og ungmenna en fullorðinna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
LICATA
sófar og stólar
Ný og glæsileg lína í DORMA.
Sófar, stólar og skammel úr
fallegu og slitsterku áklæði.
Breyttur afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 12–18
Laugardaga kl. 12–18
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
á
do
rm
a.i
s
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
KLIKKAÐU Á VÖRU
OG ÞÚ FERÐ BEINT
INN Í VEFVERSLUN
DORMA.IS
HEIMA ER BEST
tilboðin
Heima er best
verslaðu á dorma.is og
við sendum þér það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
RÚM 2–13 | Mjúkvara og d
únn 14–17 | Stólar 18–19 | S
ófar 20–29 | Hillur, borð o
g skápar 30–33 | Affari og
smávara 34-42
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Aðeins 187.493 kr.
LICATA
hornsófi
Hornsófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri
tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm
Fullt verð: 249.990 kr.
25%
AFSLÁTTUR
HEIMA ER BEST
TILBOÐ
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð