Fréttablaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 2
Þetta var byrjað að
lifna svo að ef
frystir meira þá kannski
drepast þessar plöntur.
Már Guðmundson, garðyrkjufræð-
ingur hjá Landbúnaðarháskólanum
Tveir voru handteknir á
vettvangi, öðrum þeirra,
manni á sextugsaldri, var
sleppt úr haldi í gær.
Veður
Víða austan 8-15 m/s og rigning
með köflum, hiti 2 til 8 stig.
Gengur í suðvestan 13-20 eftir
hádegi með skúrum og síðar
éljum og kólnar. SJÁ SÍÐU 14
Eftir storminn
Snjó skóf í mikinn skaf l við veitingahúsið Ölverk í Hveragerði í leiðindaveðri sem gekk yfir á sunnudag. Laufey Sif Lárusdóttir og Elvar Þrastarson
veitingamenn þurftu að moka sig inn í húsið og segjast ekki hafa séð jafn mikinn snjó í einu á svæðinu síðan 1996. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Umhverfisstofnun, ásamt sveitarfélaginu Snæfellsbær, kynnir hér
með áform um stækkun þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.
Áformin eru kynnt í samræmi við málsmeðferð 2. og 3. mgr. 36. gr.
náttúruverndarlaga nr. 60/2013, sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna en gert
er ráð fyrir að svæði sem ekki er á framkvæmdaáætlun náttúru
minjaskrár séu kynnt sérstaklega.
Frestur til að skila athugasemdum við áformin er til og með 10. júní
2020. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar,
með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfis
stofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Umhverfisstofnunar, www.ust.is.
Áform um
stækkun þjóðgarðs
VEÐUR „Það var bálhvasst, alveg
brjálað. Ég er búinn að búa hérna
sunnan heiða í tuttugu ár og ég man
ekki eftir svona veðri,“ segir Már
Guðmundsson sem er frá Akureyri
en býr nú í Hveragerði.
Már er garðyrkjufræðingur og
starfar hjá Landbúnaðarháskól-
anum á Reykjum. Þar urðu miklar
skemmdir í óveðrinu sem gekk yfir
landið á sunnudaginn.
„Það fauk hluti af þakinu á garð-
skálanum hjá okkur. Í honum erum
við með alls konar suðrænum
plöntur. Við erum með plómutré
og eplatré þarna inni og ferskjur. Og
bara alls konar suðlægari plöntur
sem þola ekki útiveðrin hér en lifa
alveg í köldum skála,“ segir Már.
Enn er ekki hægt að segja til um
hversu miklar gróðurskemmdirnar
í skálanum eru. „Maður getur ekki
alveg metið það strax. Þetta var
byrjað að lifna svo að ef frystir
meira þá kannski drepast þessar
plöntur,“ segir Már.
Þakið á garðskálanum er illa
farið. „Báruplastplötur á þakinu
rifnuðu bara hreinlega meira og
minna af. Þetta eru ábyggilega upp
undir hundrað fermetrar,“ lýsir Már
skemmdunum.
Viðgerðir á garðskálanum eru
ekki hafnar og Már segir reyndar
ekki hlaupið að því verki. „Þetta
er náttúrlega uppi í sex metra hæð
svo það er ekkert auðvelt að vinna
þetta,“ útskýrir hann. Fyrir utan
skemmdirnar hjá Landbúnaðar-
háskólanum þá kveðst Már vita að
gróðurhús hafi fokið hjá Garðyrkju-
stöðinni Flóru sem sé í miðjum
bænum.
Hvassviðrið var því mikið í
Hveragerði og því fylgdi feikna-
legt fannfergi. Snjónum hreinlega
kyngdi niður og þurftu sumir að
grafa sig út úr húsum sínum. Már
segir snjóinn þó hafa minnkað
hratt með hlýnandi veðri.
„En skaf larnir eru enn mann-
hæðar háir og meira en það sums
staðar,“ segir Már um stöðuna. Það
hafi verið orðið fært í bænum þegar
leið á daginn í gær enda búið að
moka. Fyrir norðan hafi hann vissu-
lega séð svo mikinn snjó en aldrei í
Hveragerði.
Stemningin í bænum þessa daga
er sérstök nú þegar þetta upphlaup
í veðrinu bætist við þung áföll sem
Hvergerðingar hafa orðið fyrir
vegna COVID-19 sjúkdómsins.
Hvergerðingar voru ekki mikið á
ferli í gærmorgun enda þá allt koló-
fært. „Maður hittir náttúrlega ekki
einn einasta mann,“ segir Már Guð-
mundsson. gar@frettabladid.is
Fauk ofan af ferskjum
og plómum í óveðrinu
Óvíst er að plómutré, ferskjutré og aðrar suðrænar plöntur lifi af skemmdir á
garðskála Landbúnaðarháskólans eftir aftakaveður. Akureyringur sem búið
hefur í tvo áratugi í Hveragerði hefur ekki áður upplifað þar slíkan veðurham.
Garðskáli Landbúnaðarháskólans er illa leikinn. MYND/MÁR GUÐMUNDSSON
FJÁRMÁL Viðskiptabankarnir þrír,
Landsbanki, Íslandsbanki og Arion
banki hafa hækkað hámarksúttekt
á snertilausum greiðslum með
debetkortum og kredidkortum úr
5.000 krónum í 7.500 krónur.
„Til að sporna gegn útbreiðslu
COVID-19 hefur landlæknir mælt
með notkun snertilausra greiðslu-
leiða. Við mælum með að við-
skiptavinir noti símann sinn til
að greiða fyrir vörur og þjónustu
enda gilda þá engar fjárhæðartak-
markanir á greiðslum, umfram þær
takmarkanir sem eru á kortunum
sem greiðslulausnir fyrir síma eru
tengdar við,“ segir í tilkynningu
Landsbankans.
„Gert er ráð fyrir að lokið verði
við að uppfæra posa í matvöru-
verslunum og apótekum fyrir
páska og að lokið verði við að
uppfæra posa í öðrum versl-
unum eftir tvær til þrjár vikur.“
– gar
Snertilausar
greiðslur hækka
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á þrí-
tugsaldri var úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 17. apríl í Héraðsdómi
Reykjaness í gærkvöldi vegna
rannsóknar á andláti konu um sex-
tugt, sem fannst látin í heimahúsi í
Hafnarfirði aðfaranótt mánudags.
Þetta staðfestir Gunnar Rúnar
Sveinbjörnsson hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt heimildum er mað-
urinn sonur hinnar látnu. Hann
var handtekinn á vettvangi ásamt
manni á sextugsaldri sem nú hefur
verið látinn laus.
Lögreglan á Suðurnesjum rann-
sakar einnig lát konu á sextugsaldri.
Sambýlismaður hennar hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
8. apríl vegna gruns um að vera
valdur að dauða hennar. Konan
lést á heimili sínu í Sandgerði
28. mars síðastliðinn. Maðurinn
var ekki handtekinn fyrr en lög-
reglu barst skýrsla réttarmeina-
fræðings þremur dögum eftir and-
látið þess efnis að sterkur grunur
væri um að andlát konunnar hefði
borið að með saknæmum hætti.
– aá
Úrskurðaður
í gæslu í gær
Hús Héraðsdóms Reykjaness.
7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð