Fréttablaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 18
Bíll ársins í Evrópu er boðinn
frá upphafi með þremur drif-
rásum, dísilvél, bensínvél og
rafmótor.
Peugeot hefur gengið vel í vali á bíl
ársins í Evrópu á undanförnum
árum. Peugeot 308 var valinn 2014
og Peugeot 3008 árið 2017. Það
var talsverð bið á að Peugeot 208
kæmist í hendur mínar, bíll ársins
í Evrópu 2020. Hvernig skyldi nú
bíllinn sem sigraði Tesla Model
3 í því vali reynast? Eitt af því
sem gerði hann að sigurverara í
valinu var sú staðreynd að hann er
fáanlegur með þremur aflrásum,
bensínvél, dísilvél og loks rafdrif-
inn eins og við fjöllum hér um. Að
vísu tókum við líka í GT-útfærslu
með stærri bensínvélinni til að fá
samanburðinn við raf bílinn.
Vel heppnaður útlitslega
Óhætt er að segja að Peugeot hafi
tekist vel upp með útlit bílsins
og langt síðan nýr smábíll hefur
komið á markað með jafn sport-
legar línur og þessi. Í GT útfærslu
minnir hann helst á heitan GTI- bíl
frá því fyrir aldamót og þar er ekki
leiðum að líkjast. Að framan eru
díóðuljós með hvössum línum og
16-17 tommu felgur setja svip á
þennan litla bíl. Merkilegt nokk
að útlit bílsins er mjög svipað þótt
um mismunandi útfærslur sé að
ræða og þarf að hafa fyrir því að
þekkja raf bílinn frá hinum. Að
innan hefur Peugeot tekist sérlega
vel upp og þá ekki bara með sport-
legu yfirbragði heldur líka með
frágang og efnisval. Eini ljóðurinn
á smekklegri innréttingunni er
upplýsingaskjárinn sem er nokkuð
langt frá ökumanni og frekar
þreytandi að nota. Hins vegar er
þrívíddar mælaborðið skemmti-
legt í notkun og skiptir um ham
eftir notkun. Að sögn Peugeot
hefur þrívíddarhönnunin þau
áhrif að 0,5 sekúndur sparast af
þeim tíma sem venjulegur notandi
lítur á skjáinn. Það að hafa lokaða
hvílu fyrir farsímann með þráð-
lausri hleðslu var vel til fundið
og það er líka nóg af USB- inn-
stungum.
Plássið ekki mikið
Plássið er gott fram í nema setan
er of stutt og styður ekki vel við
fætur. Með sínu litla stýri eins og í
öðrum Peugeot bílum líður manni
fyrst eins og risa í dúkkuhúsi en
svo venst það furðu vel. Aftur í er
plássið af skornum skammti og
augljóst að bíllinn hentar frekar
fjölskyldum með börn í yngri
kantinum. Það vekur athygli að
enginn munur er á plássi í raf-
bílnum þar sem rafhlaðan notar
plássið þar sem bensíntankurinn
og hvarfakúturinn var. Farangurs-
rými er aðeins 265 lítrar sem er
ekki mikið og nokkuð minna en
hjá mörgum samanburðarbílum.
Skemmtileg bensínvél
Í boði eru þrjár gerðir bensínvéla
en Ísland fær ekki dísilvélina,
enda aðeins áætlað að 5% af sölu
208 bílsins séu í dísilvélinni. Allar
bensínvélarnar eru 1,2 lítra, sú
aflminnsta 75 hestöfl en um leið
sparibaukur með 5,4 lítra meðal-
eyðslu. Næst kemur sparneytin
100 hestafla vél en fara þarf í dýr-
ari GT-útfærslu til að fá hann með
sjálfskiptingu en þá er hann líka
með 128 hestafla vélinni. Þriggja
strokka bensínvélin er skemmtileg
og laus við titring og hávaða þótt
hún sendi sportlegar nótur frá
sér þegar gefið er hressilega inn.
Saman við góða átta þrepa sjálf-
skiptingu er bíllinn mjög skemmti-
legur í akstri. Upptakið er gott þótt
það vanti enn þá hálfa sekúndu
upp á að hann nái e208 raf bílnum.
Rafbíllinn svipaður í akstri
Helsti munurinn á raf bílnum og
bensínbílnum í akstri er að rafút-
gáfan er 300 kílóum þyngri og það
finnst vel í smábíl sem þessum.
Það finnst að fjöðrunin er stífari
til að ráða við aukna þyngd en þá
er ekki þar með sagt að bíllinn sé
eitthvað leiðinlegur í akstri. Hægt
er að velja um þrjár akstursstill-
ingar. Í Eco er hann 82 hestöfl og
slekkur á miðstöðinni, í Normal er
hann 106 hestöfl en fær 136 hestöfl
þegar stillt er á Sport stillinguna.
Skiptingin lítur eins út og í bensín-
bílnum nema búið er að bæta við
B fyrir endurhlöðun rafhlöðu. Sú
stilling virkar ekki eins áköf og í
sumum raf bílum, sem er kostur
að mínu mati. Þótt upptakið sé
gott er það heldur ekki eins kvikt
og í mörgum raf bílum sem gerir
hann líkari bíl með sprengihreyfli
í akstri.
GT-bíllinn bestu kaupin
Samkeppnin er helst hjá hinum
vinsæla Renault Clio og einn-
ig í bílum eins og For Fiesta og
Volkswagen Polo en hérlendis
skipta bílar eins og Toyota Yaris
líka máli. Verst er bara að enginn
þeirra er boðinn rafdrifinn og þarf
þá að skoða bíla eins og Renault
Zoe og jafnvel rafdrifinn Mini
til samanburðar. Hinn rafdrifni
Zoe er á 4.190.000 kr. í grunn-
inn en með aðeins meiri drægi.
Renault Clio bensínbíllinn kostar
frá 2.850.000 kr. en Peugeot frá
2.650.000 kr. sem er gott verð.
Ford Fieasta kostar frá 2.990.000
kr. og Toyota Yaris frá 2.790.000
kr. Fara þarf upp í GT-útfærslu
fyrir innbyggt leiðsögukerfi en á
móti kemur að Apple CarPlay og
Android Auto er staðalbúnaður. Í
ódýrustu útfærslunni kemur hann
aðeins á 16 tommu stálfelgum og
bara með rafdrifnu rúðuupphali
að framan, sem er undarlegt í bíl
sem kostar rúmar fjórar milljónir
og er með staðalbúnaði eins og
veglínuskynjara og umferða-
skiltalesara. Kannski er helsta
niðurstaðan sú að fyrir innan við
fjórar milljónir króna fæst hann í
GT-útfærslu með sjálfskiptingu og
fullt af búnaði, 60 þúsund krónum
ódýrari en raf bíllinn í grunnút-
færslu sinni.
Allt er þegar þrennt er
Peugeot 208 hefur mjög sportlegt yfirbragð og rafbílinn þekkist aðeins á e-merkingunni á C-bitanum. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Stýrið er lítið og nett til að skyggja ekki á mælaborðið sem er í augnhæð.
Rafmótorinn er allt að 136 hestöfl og skilar 260 Newtonmetra togi.
KOSTIR OG GALLAR
Peugeot e-208
Grunnverð: 4.050.000 kr.
Drægi: 340 km
Hestöfl: 136
Tog: 260 Newtonmetrar
Hámarkshraði: 150 km
Upptak: 0-100 km: 8,1 sek.
Rafhlaða: 50 kWh
Hleðsluhraði heima: 39 km/klst.
Hraðhleðsla: 440 km/klst.
L/B/H: 4.055/1.745/1.430 mm
Hjólhaf: 2.540 mm
Eigin þyngd: 1.455 kg
n Sportlegur í akstri
n Þrívíddarmælaborð
n Rými fyrir aftan miðju
n Upplýsingaskjár
KOSTIR GALLAR
Helsti munurinn á
raf bílnum og bens-
ínbílnum í akstri er að
rafútgáfan er 300 kílóum
þyngri.
6 BÍLAR 7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R