Fréttablaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 20
Honda hefur frumsýnt á vefsíðu sinni nýtt tilraunahjól en til stóð að frumsýna það á Osaka mótor- hjólasýningunni í ár. Hjólið heitir CB-F og byggir á útliti CB900F sem margir þekkja frá síðustu öld. Notast er við nýjustu tækni úr CB1000R en lögð áhersla á hluti sem að voru einkennandi fyrir tímabilið. Má þar meðal annars nefna einkennandi útlit bensín- tanks og stéls ásamt einföldum hljóðkút hægra megin á hjólinu. Nýtt Honda CB-F CB-F er tilraunahjól sem líklegt þykir að fari í framleiðslu. Sækir í gömul gildi en er um leið stútfullt af nýjustu tækni eins og tölvustýrðum aksturs- stillingum. BMW hefur frumsýnt R18 hjólið eina ferðina enn og að þessu sinni í framleiðsluútgáfu. BMW R18 er engin smásmíði og það er verð- miðinn ekki heldur, en grunnverð hjólsins í Bretlandi er frá 3.350.000 kr. Um nokkurs konar flaggskip BMW mótorhjóla er að ræða enda sækir það margt í hönnun sinni til klassískra BMW hjóla eins og BMW R69S frá 6. og 7. áratugnum. Það sækir líka í smiðju Harley- Davidson með afturenda sem lítur út eins og „Hardtail“ eins og á Softail módelunum. Vélin er risa- stór, 110 kíló ásamt gírkassa og er 1.802 rúmsentimetrar. Hún skilar 91 hestafli, en það sem er meira um vert, 158 Newtonmetra togi. Þrátt fyrir gamaldags útlit er hjólið fullt af tæknibúnaði eins og tölvubúnaði fyrir mismunandi akstursstillingar, skrikvörn, brekkuaðstoð og rafdrifnum bakkgír. Allur þessi búnaður ásamt stórum mótornum þýðir líka að hjólið er engin léttavara en það vegur 345 kíló án vökva. Hægt verður að breyta hjólinu auðveld- lega og strax eru í boði aukahlutir frá merkjum eins og Roland Sands Design, Vance & Hines og Mustang Seats. Einnig er hægt að fá hluti beint frá verksmiðju eins og stærra framdekk, önnur stýri og ýmsar gerðir af töskum. BMW mun selja hjólið sem „First Edition“ til að byrja með og ætti umboðið hérlendis að geta útvegað hjólið, þó að ekki sé kominn verðmiði á það hér á landi enn þá. BMW R18 sleggjan loksins á markað BMW R18 er engin smásmíði enda 345 kíló. Stjórn Bifhjólasamtaka lýð- veldisins hefur ákveðið að fresta fyrirhugaðri bifhjólasýningu í Laugardalshöll í haust til 2021 vegna óviðráðanlegra aðstæðna í þjóðfélaginu. „Við biðjumst vel- virðingar á þeim óþægindum sem það kann að valda og vonumst eftir skilningi með þessa ákvörðun okkar. Við munum auglýsa nánari dagsetningu þegar nær dregur,“ segir í fréttatilkynningu frá Snigl- unum. Sniglar fresta sýningu til 2021 8 BÍLAR 7 . A P R Í L 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.