Fréttablaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 21
Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð var vandamálið horfið. Engifer- og túrmerikrætur hafa í árþúsundir verið notaðar í lækningaskyni. Þessar rætur eru náskyldar og eru enn þann dag í dag notaðar bæði í kín- verskum og indverskum náttúru- lækningum. Bromelain er ensím, unnið úr ananasplöntunni, sem hefur bæði góð áhrif á meltingu og bólgur og vísbendingar eru um mun víðtækari heilsufarsleg áhrif. Þessi þrjú náttúrulegu efni eru saman komin í Ginger, Turmeric & Bromelain bætiefninu frá Natures Aid og eru vinsældir þess sífellt að aukast. Fann mun eftir viku Þrymur Sveinsson hefur notað Ginger, Turmeric & Bromelain um þó nokkurt skeið með ótrúlegum árangri. Hann hafði þetta að segja: „Fyrst þegar Ginger, Turmeric & Bromelain fékk umfjöllun í Fréttablaðinu fannst mér sam- setningin í bætiefninu vera áhugaverð. Ég las mér betur til á netinu og þar sem þær greinar sem ég fann um efnin gáfu sömu niðurstöðu ákvað ég að kaupa glas til reynslu. Ástæðan er sú að allt frá unga aldri hafði ég átt við vandamál í öndunarfærum að stríða sem lýsti sér m.a. með stíf luðu nefi. Engin lausn fannst þrátt fyrir heimsóknir til lækna og sérfræðinga sem skoðuðu mig vandlega, þeir fundu enga ástæðu. Vandamálið versnaði stöðugt og ég var farinn að nota nefúða allt að fjórum sinnum á dag þegar ég var sem verstur. Eftir að hafa notað Ginger, Turmeric & Bromelain í rúma viku fann ég greinilegan mun á mér og eftir mánuð var vandamálið horfið, ég gat dregið andann áreynslulaust, án hjálparefna í fyrsta skipti síðan á unglingsaldri. Ég hef notað Ginger, Turmeric & Bromelain að staðaldri síðan en gæði þessa náttúrulyfs eru ótvíræð.“ Bætir meltingu og minnkar bólgur Engifer er afar vinsælt í bæði asískri og indverskri matargerð ásamt því að vera notað þar í lækn- ingaskyni. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á engiferi1 enda talið hafa góð áhrif gegn ógleði, verkjum og bólgum. Engifer getur einnig haft vatnslosandi áhrif og jafnað blóðsykur. Það má neyta engifers á ýmsa vegu en við fáum sjaldnast nóg í matnum þrátt fyrir að það gefi gott bragð. Það má þó bæta það upp með inntöku á rótinni einni og sér. Engiferrót er góð rifin í vatn/te, sem nýpressað- ur safi eða tekið inn sem bætiefni. Þessi magnaða rót hefur þó enn fleiri kosti en hún er talin sérlega góð fyrir meltinguna þar sem hún dregur úr meltingarónotum og hefur jákvæð áhrif á ákveðnar tegundir meltingarensíma með því að auka eða bæta flæðið gegnum meltingarveginn. Engifer hitar okkur innan frá og því gott að fá sér t.d. te þegar við fáum kvef og svo bendir ýmislegt til þess að það hafi góð áhrif á vöðvaverki sem skýrist sennilega af bólgueyðandi áhrifum þess. Krónískar bólgur Turmeric (Curcuma longa) er eitt öflugasta andoxunarefnið á markaðnum og það er ekkert náttúrulegt efni sem hefur verið jafn mikið rannsakað. Það getur unnið vel gegn bólgum en eins og bráðar (skammtíma) bólgur í líkamanum eru nauðsynlegar eru langvarandi/krónískar bólgur að sama skapi mjög slæmar. Krón- ískar bólgur eru rótin að mörgum lífsstílssjúkdómum og hafa rann- sóknir2 sýnt að kúrkúmín geti dregið úr líkum á þessum bólgum. Bromelain fyrir ennis- og kinnholur Bromelain er ensím úr ananas- plöntunni en þetta ensím brýtur niður prótein og getur því nýst fólki með meltingarvandamál, rétt eins og meltingarensím. Fjöldi rannsókna hafa verið framkvæmdar og benda til margs ávinnings náttúrulega efnisins Bromelain m.a. að það geti haft jákvæð áhrif á nefslímubólgur í ennis- og kinnholum, getur hjálp- að fólki með liðverki og dregið úr almennum bólgum. Einnig hafa rannsóknir 3 bent til þess að efnið hafi góð áhrif á frjókornaofnæmi. Gott fyrir heilsuna Erfitt er í stuttu máli að telja upp kosti þeirra efna sem þetta bætiefni inniheldur. Kúrkúmín, sem er virka efnið í túrmerik, verndar liðina þar sem það eykur náttúrulega framleiðslu kortísóns sem getur haft bólgueyðandi áhrif. Rannsóknir4 benda til þess að engifer sé blóðþynnandi og eykur blóðflæði ásamt því að geta dregið úr bólgum, verið vatnslosandi, jafnað blóðsykur og minnkað ógleði. Einnig hafa báðar þessar rætur jákvæð áhrif á ónæmis- kerfið. Þriðja efnið í blöndunni er ensímið Bromelain sem er m.a. græðandi, hefur góð áhrif á meltinguna og virðist geta unnið á ýmsum bólguvandamálum í ennis- og kinnholum. Sölustaðir: Flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana. Mælt er með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barns- hafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki. Ekki ráðlagt fyrir ófrískar konur, eða konur með barn á brjósti, þá sem eru á blóðþynnandi lyfjum eða hafa fengið gallsteina. 1 Gingerols & shogaols: Important nutraceutical principles from ginger https://www.ncbi.nlm.nih.gov/ pubmed/26228533 2 Bólgu eyðandi eiginleikar Kúrkúmín https://www.ncbi.nlm.nih.gov/ pubmed/19594223 3 Verkun og þol bromelains á langvarandi nefslímubólgur https://www.ncbi.nlm.nih.gov/ pubmed/24273953 4 The amazing and mighty ginger https://www.ncbi.nlm.nih.gov/ books/NBK92775/?log$=activity Nefstíflur loksins horfnar! Í náttúrunni er að finna magnaðar jurtir og rætur sem geta bætt heilsu okkar á ýmsan máta. Engifer Turmeric & Bromelain blandan hefur reynst mörgum vel og er líka góð fyrir meltinguna. Þrymur Sveinsson hefur notað Ginger, Turmeric & Bromelain um þó nokkurt skeið með ótrúlegum árangri. Kannast þú við þetta vandamál? • Lítil eða slöpp þvagbuna • Tíð þvaglát • Næturþvaglát • Erfitt að hefja þvaglát • Þvaglegi eða erfitt að stöðva þvaglát • Þörf fyrir þvaglát skömmu eftir það síðasta • Sviði eða sársauki við þvaglát Getur veitt lausn gegn tíðum þvaglátum sem verða vegna góðkynja stækkunar frá blöðruhálskirtli. ™ Fæst í öllum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 7 . A P R Í L 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.