Fréttablaðið - 07.04.2020, Síða 21
Eftir að hafa notað
Ginger, Turmeric &
Bromelain í rúma viku
fann ég greinilegan mun
á mér og eftir mánuð var
vandamálið horfið.
Engifer- og túrmerikrætur hafa í árþúsundir verið notaðar í lækningaskyni. Þessar rætur
eru náskyldar og eru enn þann
dag í dag notaðar bæði í kín-
verskum og indverskum náttúru-
lækningum. Bromelain er ensím,
unnið úr ananasplöntunni, sem
hefur bæði góð áhrif á meltingu
og bólgur og vísbendingar eru um
mun víðtækari heilsufarsleg áhrif.
Þessi þrjú náttúrulegu efni eru
saman komin í Ginger, Turmeric &
Bromelain bætiefninu frá Natures
Aid og eru vinsældir þess sífellt að
aukast.
Fann mun eftir viku
Þrymur Sveinsson hefur notað
Ginger, Turmeric & Bromelain um
þó nokkurt skeið með ótrúlegum
árangri. Hann hafði þetta að segja:
„Fyrst þegar Ginger, Turmeric
& Bromelain fékk umfjöllun í
Fréttablaðinu fannst mér sam-
setningin í bætiefninu vera
áhugaverð. Ég las mér betur til
á netinu og þar sem þær greinar
sem ég fann um efnin gáfu sömu
niðurstöðu ákvað ég að kaupa
glas til reynslu. Ástæðan er sú
að allt frá unga aldri hafði ég átt
við vandamál í öndunarfærum
að stríða sem lýsti sér m.a. með
stíf luðu nefi. Engin lausn fannst
þrátt fyrir heimsóknir til lækna
og sérfræðinga sem skoðuðu
mig vandlega, þeir fundu enga
ástæðu. Vandamálið versnaði
stöðugt og ég var farinn að nota
nefúða allt að fjórum sinnum á
dag þegar ég var sem verstur. Eftir
að hafa notað Ginger, Turmeric
& Bromelain í rúma viku fann ég
greinilegan mun á mér og eftir
mánuð var vandamálið horfið, ég
gat dregið andann áreynslulaust,
án hjálparefna í fyrsta skipti síðan
á unglingsaldri. Ég hef notað
Ginger, Turmeric & Bromelain
að staðaldri síðan en gæði þessa
náttúrulyfs eru ótvíræð.“
Bætir meltingu og
minnkar bólgur
Engifer er afar vinsælt í bæði
asískri og indverskri matargerð
ásamt því að vera notað þar í lækn-
ingaskyni. Margar rannsóknir
hafa verið gerðar á engiferi1 enda
talið hafa góð áhrif gegn ógleði,
verkjum og bólgum. Engifer getur
einnig haft vatnslosandi áhrif og
jafnað blóðsykur. Það má neyta
engifers á ýmsa vegu en við fáum
sjaldnast nóg í matnum þrátt fyrir
að það gefi gott bragð. Það má
þó bæta það upp með inntöku á
rótinni einni og sér. Engiferrót er
góð rifin í vatn/te, sem nýpressað-
ur safi eða tekið inn sem bætiefni.
Þessi magnaða rót hefur þó enn
fleiri kosti en hún er talin sérlega
góð fyrir meltinguna þar sem hún
dregur úr meltingarónotum og
hefur jákvæð áhrif á ákveðnar
tegundir meltingarensíma með því
að auka eða bæta flæðið gegnum
meltingarveginn. Engifer hitar
okkur innan frá og því gott að fá
sér t.d. te þegar við fáum kvef og
svo bendir ýmislegt til þess að það
hafi góð áhrif á vöðvaverki sem
skýrist sennilega af bólgueyðandi
áhrifum þess.
Krónískar bólgur
Turmeric (Curcuma longa) er
eitt öflugasta andoxunarefnið
á markaðnum og það er ekkert
náttúrulegt efni sem hefur verið
jafn mikið rannsakað. Það getur
unnið vel gegn bólgum en eins
og bráðar (skammtíma) bólgur í
líkamanum eru nauðsynlegar eru
langvarandi/krónískar bólgur að
sama skapi mjög slæmar. Krón-
ískar bólgur eru rótin að mörgum
lífsstílssjúkdómum og hafa rann-
sóknir2 sýnt að kúrkúmín geti
dregið úr líkum á þessum bólgum.
Bromelain fyrir
ennis- og kinnholur
Bromelain er ensím úr ananas-
plöntunni en þetta ensím brýtur
niður prótein og getur því nýst
fólki með meltingarvandamál,
rétt eins og meltingarensím.
Fjöldi rannsókna hafa verið
framkvæmdar og benda til margs
ávinnings náttúrulega efnisins
Bromelain m.a. að það geti haft
jákvæð áhrif á nefslímubólgur í
ennis- og kinnholum, getur hjálp-
að fólki með liðverki og dregið úr
almennum bólgum. Einnig hafa
rannsóknir 3 bent til þess að efnið
hafi góð áhrif á frjókornaofnæmi.
Gott fyrir heilsuna
Erfitt er í stuttu máli að telja
upp kosti þeirra efna sem þetta
bætiefni inniheldur. Kúrkúmín,
sem er virka efnið í túrmerik,
verndar liðina þar sem það eykur
náttúrulega framleiðslu kortísóns
sem getur haft bólgueyðandi áhrif.
Rannsóknir4 benda til þess að
engifer sé blóðþynnandi og eykur
blóðflæði ásamt því að geta dregið
úr bólgum, verið vatnslosandi,
jafnað blóðsykur og minnkað
ógleði. Einnig hafa báðar þessar
rætur jákvæð áhrif á ónæmis-
kerfið. Þriðja efnið í blöndunni
er ensímið Bromelain sem er
m.a. græðandi, hefur góð áhrif á
meltinguna og virðist geta unnið
á ýmsum bólguvandamálum í
ennis- og kinnholum.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsu-
búðir og heilsuhillur verslana.
Mælt er með að neytendur leiti
álits læknis eða annars fagfólks
áður en þeir ákveða inntöku á
vítamínum eða fæðubótarefnum.
Sérstaklega á þetta við um barns-
hafandi konur, konur sem eru
með barn á brjósti, fólk sem er að
glíma við sjúkdóma og tekur lyf að
staðaldri eða hefur undirliggjandi
sjúkdóma á borð við flogaveiki,
ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.
Ekki ráðlagt fyrir ófrískar konur,
eða konur með barn á brjósti, þá
sem eru á blóðþynnandi lyfjum
eða hafa fengið gallsteina.
1 Gingerols & shogaols: Important
nutraceutical principles from
ginger
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/
pubmed/26228533
2 Bólgu eyðandi eiginleikar
Kúrkúmín
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/
pubmed/19594223
3 Verkun og þol bromelains á
langvarandi nefslímubólgur
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/
pubmed/24273953
4 The amazing and mighty ginger
https://www.ncbi.nlm.nih.gov/
books/NBK92775/?log$=activity
Nefstíflur loksins horfnar!
Í náttúrunni er að finna magnaðar jurtir og rætur sem geta bætt heilsu okkar á ýmsan máta.
Engifer Turmeric & Bromelain blandan hefur reynst mörgum vel og er líka góð fyrir meltinguna.
Þrymur Sveinsson hefur notað Ginger, Turmeric & Bromelain um þó nokkurt skeið með ótrúlegum árangri.
Kannast þú við þetta vandamál?
• Lítil eða slöpp þvagbuna
• Tíð þvaglát
• Næturþvaglát
• Erfitt að hefja þvaglát
• Þvaglegi eða erfitt að stöðva þvaglát
• Þörf fyrir þvaglát skömmu eftir það síðasta
• Sviði eða sársauki við þvaglát
Getur veitt lausn gegn tíðum þvaglátum
sem verða vegna góðkynja stækkunar frá
blöðruhálskirtli.
™
Fæst í öllum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 7 . A P R Í L 2 0 2 0