Feykir - 08.02.2017, Qupperneq 8
Mæltist vel fyrir hjá
fulltrúum danskra
fyrirtækja
Fulltrúar Protis í föruneyti forsetans í Danmörku
Dagskráin sem þær Íris og
Laufey tóku þátt í fólst m.a. í
málstofu hjá Dansk Industri
sem bar heitið Innovatin,
Sustainability and Food Pro-
duction. Þar var lögð áhersla á
nýsköpun í íslenskum sjávar-
útvegi. Fulltrúar íslensku fyrir-
tækjanna Marel, Kerecis og
Codland voru einnig með í för.
„Kynningin á fyrirtækinu
mæltist vel fyrir hjá fulltrúum
danskra fyrirtækja sem sóttu
málstofuna hjá Dansk Industri
og vöktu vörurnar og vísindin
að baki þeim mikla athygli.
Hafa þónokkur fyrirtæki þegar
haft samband með frekara
samstarf í huga,“ segir Laufey.
Friðrik, krónprins Dana, og
Guðni forseti voru viðstaddir
málstofuna og hélt Guðni stutta
opnunartölu. Aðrir sem töluðu
á fundinum voru Karsten
Dybvad CEO hjá Dansk
Industri, Jón Ásbergsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsstofu, og
Jóhann Sigurjónsson frá Utan-
ríkisráðuneytinu. Fundurinn
var vel sóttur af fulltrúum
danskra fyrirtækja. Að sögn
Laufeyjar er mikill uppgangur
hjá sprotafyrirtækjum tengdum
íslenskum sjávarútvegi og þar
eru ótal tækifæri enn ónýtt.
„Með tengingu vísinda, ný-
sköpunar og líftækni við þessa
rótgrónu íslensku atvinnugrein,
sem hefur sterkar rætur á
landsbyggðinni, má auka verð-
mæti afurðanna, skapa atvinnu
fyrir menntað fólk og skapa
aukna þekkingu í byggðarlög-
unum. Þær vörur sem verða til
við slíkar aðstæður eru þekktar
fyrir hreinleika hafsins og
sjálfbærni.“
Í tengslum við dagskrána
sóttu þær Íris og Laufey einnig
kvöldboð forsetans á Nord-
atlantens brygge og boð sendi-
herrans, Benedikts Jóhannes-
sonar, í Svarta Demantinum,
þar sem þjóðargjöfin var afhent
Dönum. Um er að ræða sjö
hundruð eintök af nýrri útgáfu
Íslendingasagna og var Kaup-
félag Skagfirðinga eitt þeirra
fyrirtækja sem stóðu að gjöf-
inni. Þá tóku þær stöllur þátt í
hádegisverðarboði forsætisráð-
herra Dana í Christiansborgar-
kastala.
„Það var óneitanlega mikil
áskorun fyrir okkur sveita-
stelpurnar að vera allt í einu
komnar í þessar skrítnu að-
stæður, að vera í boðum með
konungbornu fólki og öðrum
fyrirmennum. Það sem gerði
þetta hins vegar auðveldara var
hvað skemmtilegt er að tala um
fyrirtækið okkar, vörurnar sem
við framleiðum og grunngildin
í starfseminni. Það vakti mikla
athygli að við kæmum úr svona
litlu samfélagi á norðanverðu
Íslandi þar sem aðeins um
4.000 manns búa. Til saman-
burðar var Marel einnig þarna
að kynna sína starfsemi en hjá
því fyrirtæki vinna um 4.700
manns,“ segir Laufey, aðspurð
um sína upplifun af heim-
sókninni.
Að lokum segir Laufey að
framtíðin hjá Protis sé mjög
björt. „Framkvæmdastjórinn
okkar, hún Hólmfríður Sveins-
dóttir, fékk, í sömu viku og
heimsóknin var, afhent Hvatn-
ingarverðlaun FKA, sem er
mikill heiður fyrir hana og
hennar starf. Vörurnar okkar
seljast mjög vel og viðtökurnar
hafa verið frábærar. Okkur
berast reglulega reynslusögur
víðsvegar af landinu þar sem
fólk dásamar heilsubætandi
áhrif þeirra. Það er í raun það
sem skiptir okkur mestu máli,
að þeir sem kaupa vörurnar
finni áhrif þeirra, að Amínó
fiskprótín vörurnar bæti heilsu
og hreyfanleika þeirra sem
nota þær. Við erum því bara
rétt að byrja.“
Guðni, Eliza, Laufey og Íris. Herramennirnir tveir lengst til vinstri óþekktir.
Íris í kynningarbás Protis.
Laufey og Íris ásamt Guðna og Guðnýju Káradóttur frá Íslandsstofu.
Skagfirska líftæknifyrirtækinu Protis var boðið að taka þátt í
fyrstu opinberu heimsókn Forseta Íslands, hr. Guðna Th.
Jóhannessonar, til Danmerkur á dögunum. Það voru þær
Laufey Skúladóttir, markaðs- og sölustjóri FISK Seafood, og
Íris Björk Marteinsdóttir, sölu- og gæðastjóri Protis, sem fóru
sem fulltrúar fyrirtækisins. Var þeim boðið að taka þátt í
dagskrá tengdri heimsókninni. „Það er mikill heiður fyrir
Protis að vera boðið að taka þátt í stórum viðburði af þessu
tagi og viðurkenning á starfinu sem unnið er hérna á
Sauðárkróki,“ sagði Laufey í samtalið við Feyki í vikunni.
SAMANTEKT
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Rúnar Kristjánsson yrkir um Frosta og Neista en þeir voru í 4. tölublaði Feykis
Ómetanleg sviðsmynd úr Hallárdal
Í dalnum þótti forðum fátt
til farsældar og kosta.
En síðar gat þar sviðið átt
samtal Neista og Frosta!
Og þótt það færi fráleitt hátt
með ferli vinarkosta,
þá vantaði ekki sæld og sátt
í samtal Neista og Frosta!
Því hlaut að örva hjartaslátt
og hlýju bestu kosta,
og senda báðum sinni kátt,
samtal Neista og Frosta!
Og saga dalsins sú fær þrátt
nú sannað mál til kosta.
Því þar gat sviðið sæla átt
samtal Neista og Frosta!
8 06/2017