Feykir - 08.02.2017, Page 10
Búið er að ráða Fríðu
Eyjólfsdóttur í stöðu
blaðamanns Feykis sem
auglýst var laus til
umsóknar fyrir skömmu.
Alls sóttu níu manns um
stöðuna, þrír karlmenn
og sex konur.
Fríða er grunnskóla-
kennari að mennt og
hefur starfað sem kennari
við Grunnskólann austan
Vatna á Hofsósi í mörg ár
en frá síðastliðnu hausti
hefur hún verið í leyfi frá
kennslu og unnið í
Sundlauginni á Hofsósi.
Fríða er búsett á Hofsósi,
Handgerðar jólagjafir
Oddný Árdal á Sauðárkróki gefur
lesendum innsýn í hannyrðir sínar að
þessu sinni. Hún segist vera meira í
hekli og útsaumi en er þó þessa
dagana að prjóna barnakápu eftir
uppskrift sem hún sá í Facebook-
hópnum Handóðir prjónarar.
Hverju ertu að vinna
að um þessar mundir?
Ég er nú ekki mikil
prjóna-kona þótt ég
kunni það alveg. Ég er
meira í hekli og
útsaum. Aldrei þessu
vant er ég nú samt með
prjónaverkefni sem ég
er nýbyrjuð á. Barna-
kápa fyrir litlu stelpuna
mína. Ég ákvað að gera
hana nógu stóra svo ég
hefði góðan tíma til að
gera hana því ég er
mjög dugleg við að byrja á prjóna-
verkefni og gefast svo bara upp . Ég vinn
bara eitt verkefni í einu því ef ég byrja á
fleiri en einu þá mun ég bara ekkert
komast yfir allt sem ég ætla mér. Svo ef
ég er byrjuð á einhverju og gefst ekki
upp þá held ég áfram með það verkefni
þar til það klárast og byrja svo á næsta.
Hvernig fékkstu hugmyndina? Hug-
myndin að kápugerðinni kom af
„Handóðir prjónarar“ grúppunni á
Facebook. Þar setti höfundur kápunnar
upplýsingar um hvar hægt væri að
kaupa uppskrift og ég kolféll fyrir
kápunni. Í uppskriftinni er kápan hvít
en ég ætla að hafa kápuna sem ég er að
prjóna dimmbláa svo það verður
spennandi að sjá hvernig hún kemur út.
Hvaða handverk sem þú hefur gert ert
þú ánægðust með? Ég á nokkur hand-
verk sem ég er ánægð með en það eru
tvö sem ég er ánægðust með. Þau eru
skírnarkjóll sem ég
heklaði þegar ég var
ólétt af eldra barninu
mínu og 12-14 manna
harðangurs- og klaust-
ursdúkur. Börnin mín
fengu t.d. handgerðar
jólagjafir frá okkur
foreldrunum í ár, ég
heklaði fyrir þau
fígúrur og þótti mér
mjög gaman að sjá
hvað þau voru ánægð
svo þau verk, er ég líka
mjög ánægð með þau.
Hve lengi hefur þú stundað hann-
yrðir? Mér hefur alltaf þótt gaman að
handavinnu og man ekki eftir mér
öðruvísi en að föndra eitthvað með
höndunum. Svo lærði ég enn meira
þegar ég stundaði nám í Hússtjórnar-
skóla Reykjavíkur á vorönn 2009. Þar
fengum við t.d. að prófa okkur áfram í
vefnaði og þótti mér það mjög
skemmtilegt. Svo fer ég svona að huga
að næstu jólagjöfum fyrir fjölskyldu og
vini sem verður handavinna þetta árið.
Ég vil að lokum þakka fyrir mig og
skora á Söndru Halldórsdóttur.
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) kristin@feykir.is
Oddný Árdal / á Sauðárkróki
Barnapeysur eftir Oddnýju.
Harðangurs- og klaustursdúkurinn.
Nýr blaðamaður Feykis
Fríða Eyjólfsdóttir tekur við af Kristínu
Hekluð brúða.
gift Árna Bjarkasyni og
eiga þau tvær dætur.
Fríða tekur við starf-
inu af Kristínu Sigurrós
Einarsdóttur sem starfað
hefur á Feyki frá 20. apríl
2013 en mun senn snúa
sér að öðrum hlutum.
Feykir býður Fríðu vel-
komna til starfa og
þakkar Kristínu fyrir
gott og farsælt samstarf
og óskar henni velfarn-
aðar á nýjum slóðum./PF
Stína og Fríða. MYND: PF
10 06/2017