Feykir - 14.06.2017, Síða 8
Heilir og sælir lesendur góðir.
Minnir að það hafi veri hið magnaða skáld
í Kanada, Káinn, sem orti svo á sínum efri
árum.
Fækka sporin, kemur kvöld
kuldi sólarlagsins,
hefi ég borið hálfa öld
hita og þunga dagsins.
Lífsins hrekkja laumuspil
lamar frið í hjarta,
hefi ég ekki hingað til
haft þann sið að kvarta.
Minnir að það hafi verið í kringum 1977 sem
Kanadamaðurinn Björn Jónsson í Álftá, sem
var magnaður hagyrðingur þar vestra, stærði
sig af því að hafa ort þokkalega vísu um
skagfirska mánann. Mátti það til sannsvegar
færa því sjaldan sér maður aðra eins orðgnótt
í einni vísu.
Fælinn reikar flátt með styggð
fólin keikilegur,
föla kveikir silfursigð
seggur feikilegur.
Sigurður Baldursson í Lundarbrekku í
Bárðardal er einn af mörgum ágætum
hagyrðingum. Minnir að hann hafi um 1977
látið í ljósi álit sitt á atómkveðskaparruglinu
með eftirfarandi vísum:
Finnst þar ekki fögur list
fellur brátt úr minni.
Orð á stangli eru hrist
aldrei kæta sinni.
Engin ljóðsins styrk er stoð
stemmir ekki þetta,
að kalla svona klaufa hnoð
kveðskapinn þann rétta.
Í hann vantar andans lím
allt svo tilgang hafi,
eyðilegt þið eigið rím
og enga höfuðstafi.
Þegar vorið nálgast verður þessi vísa til hjá
Sigurði:
Sólin um gluggann gægist inn
gengur seint til náða.
Sunnanvindurinn vermir kinn
vekur menn til dáða.
Margir þeir sem eldri eru og hafa verið
unnendur vísnamála kannast eflaust við
hinn snjalla hagyrðing Karl Friðriksson,
vegaverkstjóra og brúarsmið. Eftir hann er
næsta vísa sem ég held að hafi verið ort vorið
1935.
Blíðkast haf og blána fjöll
byggir móinn lóa.
Inni í sál og út um völl
allt er að byrja að gróa.
Á fallegu sumarkvöldi mun Karl hafa ort
þessa:
Vísnaþáttur 690 Yrðu færri mannameinminna skuggans veldiværi sálin heið og hrein
sem himinn á svona kveldi.
Lengi hefur undirritaður verið hrifinn af
þessari mögnuðu hringhendu Karls:
Heims af yndi ýms um stig
æðsta blindast þráin.
Af því syndin á við mig
eins og lind við stráin.
Að lokum þessi ágæta hringhenda frá Karli:
Þegar aldan undir rær
ýfir kaldan strauminn,
góðra valda geislablær
gef mér hald í tauminn.
Eitt af góðum guðsgjöfum er þessi blessuð
vornæturbirta sem nú ríkir. Sigurður
Óskarsson, áður bóndi í Krossanesi í
Skagafirði, mat mikils þá sendingu til okkar
jarðarbarna er hann orti svo:
Ég sef ekki seinnipart nætur
ef sólin á himninum skín.
Guð ekki gleyma sér lætur
og gleðina sendir til mín.
Þekkt var hér áður fyrr af sveitungum
Sigga að hann hafði gaman af því að fara
á traktornum til að versla hinar ýmsu
nauðsynjar á þann verslunarstað sem
hann vildi alltaf láta kalla Varmahlíð.
Einhverju sinni í slíkri kaupstaðarferð voru
honum sögð mikil tíðindi vegna nýrra
íbúðarhúsabygginga á staðnum. Vel fannst
Sigga hægt að grínast við þá er þar stóðu
fyrir framkvæmdum og af því tilefni varð
eftirfarandi vísa til.
Hverfið byggt af köppum var
hver einn má því trúa.
Höfuðbólin helstu þar
Hunda- og Mánaþúfa.
Í tilefni af 70 ára afmæli hins virta
fræðimanns, Friðriks Margeirssonar á
Sauðárkróki, orti Siggi.
Leiti ég fróðleiks fanga
framtíðar bjartari sýn,
mun ég þá glaður ganga
götuna heim til þín.
Vini sínum Páli Sigurðssyni, sem bæði var
kenndur við Varmahlíð og Fornahvamm,
sendi Siggi þessar fallegu vísur er hann var
70 ára.
Þó hausti að og halli degi
horfin gleðimál,
þeystu enn um víða vegi
velríðandi – skál.
Heiðursmanninn hylla ber
höldar það um lesi.
Sína kveðju sendir þér
Siggi í Krossanesi.
Veriði þar með
sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is 30
ára
Úrtaka fyrir HM í hestaíþróttum
Finnbogi kominn í landsliðið
Skagfirðingurinn Finnbogi
Bjarnason tryggði sér sæti í
landsliðinu í hestaíþróttum
eftir úrtökumót landsliðs-
nefndar og Spretts um liðna
helgi. Fjórir aðrir tryggðu sig
inn í liðið á mótinu samkvæmt
sérstökum reglum eða lykli að
vali sem landsliðsnefnd LH
gefur út hverju sinni en fjórir
heimsmeistarar frá HM2015
munu fá að verja titil sinn. HM
fer fram í Oirschot í Hollandi í
ágúst.
Finnbogi og Randalín frá
Efri-Rauðalæk voru vel stemmd
á úrtökumótinu hjá Spretti og
stóðu efst í tölti T1 í ung-
mennaflokki í forkeppninni.
Stigahæsti töltari í úrtöku, að
meðaltali úr báðum umferðum
tryggir sér sæti í landsliðinu líkt
og Finnbogi og Randalín gerðu.
Aðspurður segist Finnbogi
ekki hafa átt von á því að kom-
ast í landsliðið þar sem mikil
samkeppni er um landsliðssæti.
„En auðvitað var stefnan alltaf
sett á það og þess vegna fór
maður af stað í þessa úrtöku. Ég
hef verið að undirbúa mig fyrir
þetta síðastliðið ár með tvo
hesta í huga annars vegar Dyn
frá Dalsmynni og hins vegar
Randalín frá Efri - Rauðalæk
sem á endanum reyndist sterk-
ari,“ segir Finnbogi. Randalín
er 11 vetra gömul og reynd
keppnishryssa með einstaka
getu á tölti og æðislegt geðslag.
Finnbogi segir hennar helsta
kost vera þann að hún sé alltaf
tilbúin að vinna með manni og
hægt sé að treysta fyrir hverjum
sem er.
Að sögn Finnboga var
keppnin mjög mikil, margir
góðir hestar og knapar sem
komu fram og litlu mátti muna
og þá sérstaklega í fyrri um-
ferðinni en það eru tvær
umferðir sem telja.
En hvað gerði útslagið?
„Það voru gerðar vissar áherslu-
breytingar fyrir seinni umferð
sem gerðu gæfumuninn þar
sem einkunnin í fyrri umferð
var 7,00 og í seinni umferð
7,33.“ /PF
Finnbogi og Randalín á úrtökumóti fyrir HM. MYND: UNNUR ÓLÖF
Gott ástand afrétta
Upprekstur
hafinn
Fjallskilanefnd Víðdælinga
fór ásamt ráðunaut að
kanna ástand gróðurs
Víðidalstunguheiði þann
6. júní sl.
Ákveðið var að leyfa
upprekstur sauðfjár í löndin
milli girðinga að austan, í
Krók og á Tungur frá og
með þeim degi. Upprekstur
sauðfjár á Austurheiði var
leyfður frá og með 12. júní.
Upprekstur hrossa er leyf-
ður frá og með 24. júní nk.
fram á Víðidalstunguheiði.
Gróður er einnig kominn
vel af stað á afrétt Mið-
firðinga og var upprekstur
leyfður frá og með 7. júní.
Þá er upprekstur hrossa
leyfður frá og með 1. júlí
2017. /PF
Feyki-
flottur
8 23/2017