Feykir - 16.08.2017, Blaðsíða 6
Hvernig nemandi varstu? Ég
held að ég hafi verið alveg ágætur
nemandi. Var mjög sjaldan
til vandræða og skilaði alltaf
verkefnum.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Eftirminni-
legast, ætli það hafi ekki
verið skaflarnir út um allan
Hvammstanga. Ég fermdist
snjóaveturinn mikla 1995, ég hef
sjaldan séð eins mikinn snjó á
Hvammstanga og það ár.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Ég vildi verða
flugfreyja en mamma sagði alltaf
við mig að ég ætti frekar að
stefna á að vera flugmaður eða
lögfræðingur.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki? Ég átti
rosalega erfitt með að gera upp á
milli alls þegar ég var lítil, en ætli
það hafi ekki verið einn bangsi
sem var í sérstöku uppáhaldi hjá
mér.
Besti ilmurinn? Rihanna Rebelle
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið (hver var uppá-
haldstónlistin þín þegar þú varst
u.þ.b. 17 ára)? Vá, það er svo langt
síðan. Örugglega Spacequeen með
10 Speed eða Vöðvastæltur með
Landi og sonum.
Hvaða lag er líklegast að þú
takir í Kareókí? Wannabe með
Spicegirls eða Holding out for a
hero með Bonnie Tyler
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)?
Ég horfi alveg afskaplega sjaldan á
sjónvarpið og er því blessunarlega
ekki bundin yfir því. En ég missi
aldrei af júróvisjón t.d.
Besta bíómyndin (af hverju)?
LOTR er í miklu uppáhaldi, elska
svona ævintýramyndir.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Mér finnst erfitt
að velja einhvern einn, við eigum
svo mikið af flottu og efnilegu
íþróttafólki í öllum íþróttagreinum.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Þar sem ég er ein
á mínu heimili þá geri ég allt best
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Ég er rosalega lélegur
kokkur, er betri í að njóta matarins
en að útbúa hann. En ég get
hins vegar alveg græjað grillaðar
kjúllabringur, sætar kartöflur,
grænmeti og piparostasósu. Það
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
ÁRGANGUR: 1981.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Einhleyp og barnlaus.
BÚSETA: Hvammstangi
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Péturs Jóh .frá
Ægissíðu og Þorbjargar Sigurbjartsd. frá Sólbakka í Víðidal.
Ég er uppalin á Hvammstanga.
STARF / NÁM: Ég starfa sem atvinnuráðgjafi hjá SSNV, er með
meistarapróf í alþjóðaviðskiptum frá HR ásamt því að vera
með einkaþjálfararéttindi frá ÍAK.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Næst á dagskrá hjá mér er vinkonuferð
til New York. Svo er haustið að detta inn með tilheyrandi
hauststörfum.
Sveinbjörg Péturs
klikkar aldrei.
Hættulegasta helgarnammið?
Ekkert eitt sem er kannski
hættulegra en annað, en ég elska
lakkrís.
Hvernig er eggið best? Sem
innihaldsefni í köku.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Hvað ég get verið
óstundvís.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Dómharka í garð
annarra.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Það sem þér viljið að
aðrir menn gjöri yður, það skuluð
þér og þeim gjöra. Fermingarversið
sem á svo einstaklega vel við alls
staðar.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Sennilega þegar ég datt á
hnéð þegar ég var cirka 5 ára og
fékk stærðarinnar gat sem að
sjálfsögðu var ekki saumað. Þannig
að eftir situr þetta myndarlega ör.
Hvaða teiknimyndapersóna höfð-
ar mest til þín? Stjáni blái, hann
borðar alltaf spínatið sitt og er
gríðarlega sterkur.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera (og af hverju)?
Æi mig langar bara ekki að vera
fræg. Frægt fólk á sér ekkert
einkalíf og mér þykir það afar
leiðinlegt þeirra vegna
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur (og af hverju)?
Ég er rosalega hrifin af bókunum
eftir Lars Kepler. Gríðarlega
spennandi sögur sem halda manni
á tánum allan tímann.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Akkúrat!
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu
mati? Mér finnst erfitt að nefna
einhverja eina. Það fer alveg eftir
því hvort verið sé að meina fyrir
heiminn eða bara mig persónulega.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu (og af
hverju)? Ég myndi fara til baka
til tímans þegar Sveinbjörg amma
mín var á lífi. Ég væri til í að eiga
meiri tíma með henni og fræðast
meira um uppvaxtarár hennar og
hennar líf.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Ferðalagið fram til nú.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í
flugvél og réðir hvert hún færi,
þá færirðu... til Thailands. Mig
dreymir um að koma þangað, læt
af því verða einn daginn.
Ef þú ættir að dvelja alein á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? Vatnsflösku, ketilbjöllu
og bók.
Króksmót Tindastóls og FISK Seafood fór fram nú um helgina
á Sauðárkróki. Þátttaka var með ágætum og óhætt að
fullyrða að veðrið hafi verið Króksurum og gestum þeirra
hliðhollt því varla er hægt að tala um að hreyft
hafi vind svo nokkru næmi frá því að gestir
tóku að streyma á Krókinn síðastliðinn
föstudag í logni og heiðskíru og þangað til
mótinu lauk – þá fór hinsvegar að rigna.
Mótið var sett snemma á laugardagsmorgni í
glampandi sól og brakandi blíðu en hitastigið
sleppti þó ekki fram af sér beislinu. Þegar
ljósmyndari Feykis kíkti á vellina voru ansi
margir með bros á vör en stöku skeifa sást á
þeim sem fóru halloka í boltanum en var nú
alla jafna fljót að snúast við.
Króksmót er ætlað strákum í 6. og 7. flokki
en ekki er annað að sjá en stúlkurnar fái að
fljóta með án vandkvæða ef svo ber undir. Þá
vekur hraðmót í 8. flokki mikla lukku en þar
eru ansi litlir fætur á ferð og ekki allir
þátttakendur jafn hrifnir af boltanum og athyglinni
sem þeir fá frá áhorfendum.
Mótinu var fram haldið í morgun og enn var
veðrið í góðu lagi, ský dró upp á himininn þegar á leið
en veðrið sem fyrr stillt og gott. Þegar nálagaðist
hádegi voru línur farnar að skýrast í riðlunum en
bæði í 6. og 7. flokki var keppt í fimm styrkleikariðlum.
Öllum leikjum var lokið fyrir klukkan þrjú og þá hófst
verðlaunaafhending og síðan héldu gestir heim á leið
eftir vel heppnað knattspyrnumót.
Ekki er annað að sjá á myndunum sem hér
fylgja en að svona mót séu gulls ígildi fyrir jafnt
þátttakendur, foreldra og alla aðra sem þau sækja
eða tengjast. Svona mót snýst nefnilega um svo
heilmargt annað gott en bara gamla góða
fótboltann. /ÓAB
Króksmót Tindastóls og Fisk Seafood
Fjör og frískir fætur á Króksmóti
6 30/2017