Feykir - 16.08.2017, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Syntu Drangeyjarsund Skagfirðingar prúðastir
Afrekskonur í kuldabaði Unglingalandsmót
Sjósundskonurnar Harpa
Hrund Berndsen og Sigrún
Þuríður Geirsdóttir syntu, sl.
sunnudag, um 7 km leið frá
Drangey að Reykjum án þess
að klæða kuldann af sér, en
hitastig sjávar var á bilinu 9,5
- 10,5 gráður.
Þær lögðu af stað frá
Drangey kl. 8:20 um morgun-
inn í þriggja stiga hita og þó
nokkrum öldum, umkringdar
hvölum sem sýndu listir sýnar.
Fljótlega lægði þó og hlýnaði
og gekk sundið mjög vel að
sögn Jóhannesar Jónssonar
sem fylgdist með þeim
stúlkum. Sigrún Þuríður og
Harpa Hrund eru ekki
ókunnar sjósundi en Sigrún
synti yfir Ermarsundið 2015
og báðar hafa þær synt
boðsund þar yfir.
Sigrún Þuríður er fimmta
konan til að synda Drang-
eyjarsund en sundtími hennar
var 3 klst. og 29 mín. og Harpa
Hrund er sú sjötta en tími
hennar var 4 klst. og 15 mín.
Björgunarsveitirnar á Sauðár-
króki og Hofsósi fylgdu þeim
yfir. /PF
Unglingalandsmót UMFÍ var
haldið um verslunarmanna-
helgina í blíðskaparveðri á
Egilsstöðum. Eins og lög gera
ráð fyrir mættu um eitt þúsund
ungmenni, með gleði í hjarta og
vott af keppnisskapi, til leiks í
fjölmörgum íþróttagreinum.
Mótið var vel heppnað og
mótshöldurum til mikils sóma.
Við hefðbundin mótsslit gengu
fulltrúar UÍA sem komið hafa
að Unglingalandsmótinu fram
á völlinn og þökkuðu mótsgestir
fyrir sig. Á heimasíðu UMFÍ
segir að mótið hafi tekist mjög
vel á allan hátt, keppendur og
mótsgestir hafi verið til
Skagfirðingunum gekk vel
HM íslenska hestsins
Heimsmeistaramóti íslenska
hestsins, sem fram fór í
Oirschot í Hollandi, lauk sl.
sunnudag. Þrír Skagfirðingar
voru meðal keppenda, þeir
Finnbogi Bjarnason, Þórarinn
Eymundsson og Jóhann R.
Skúlason og náðu þeir
afbragðs árangri.
Finnbogi var á sínu fyrsta
Heimsmeistaramóti og keppti
í tölti í ungmennaflokki á
Randalín frá Efri-Rauðalæk
og lönduðu þau 4. sætinu.
Þórarinn er margreyndur
knapi á stórmótum og náðu
þeir Narri frá Vestri-
Leirárgörðum silfurverð-
launum í fimmgangi með
7,26 í einkunn, þremur
kommum á eftir Frauke
Schenzel og Gusti vom
Kronshof sem sigruðu með
7,29. Jóhann, sem er
margfaldur heimsmeistari í
tölti, varð að sætta sig við
annað sætið að þessu sinni á
Finnboga frá Minni-Reykjum
(8,33). Þar var það Jakob
Svavar Sigurðsson á Gloríu
frá Skúfslæk sem hafði betur
og sigraði með einkunnina
8,94./PF
Sigrún Þuríður og Harpa Hrund eftir afrek sunnudagsins. Mynd: Jóhannes Jónsson. Thelma Knútsdóttir með Fyrirmyndarbikarinn. Mynd: PF.
Finnbogi Bjarnason og Eymundur Þórarinsson úr hestamannafélaginu Skagfirðingi.
Mynd af FB Skagfirðings.
Söfnun til styrktar Jökli Mána
Fæddist sjö vikum fyrir tímann
Þann 14. júlí sl. fæddist unga
parinu Nökkva Má Víðissyni
frá Kjarvalsstöðum í Hjaltadal
og Önnu Baldvinu Vagns-
dóttur frá Minni-Ökrum í
Blönduhlíð sonur. Við
fæðingu var dreng-
urinn aðeins 1688 grömm
eða tæplega sjö merkur,
enda fæddur sjö vikum fyrir
tímann.
Barnið var tekið með
bráðakeisaraskurði þar sem
hreyfingar þess höfðu minnkað
og það hætt að stækka auk þess
sem lítið legvatn var eftir. Að
fæðingunni lokinni tjáði
barnalæknir þeim að þar hefði
hver mínúta skipt máli og hefði
verið beðið mikið lengur hefðu
lífslíkur barnsins verið litlar.
Drengurinn, sem hefur hlotið
nafnið Jökull Máni, er með
Downs heilkenni en er auk þess
með hjartagalla og þarf hann
því að fara til Svíþjóðar í
hjartaaðgerð.
Tvær vinkonur þeirra
Nökkva Más og Önnu Bald-
vinu, þær Anna Guðrún
Guðjónsdóttir og Sonja Finns-
dóttir, hafa nú hrundið af stað
söfnun fyrir fjölskylduna auk
þess að stofna Facebooksíðuna
Styrktarsíða Jökuls Mána.
Reikningsnúmerið er 0115-05-
063111 og er á nafni Önnu
Baldvinu, kennitala 270198-
3179. Þá hefur Þreksport
Við óskum íbúum Á
NORÐURLANDI VESTRA
SKEMMTUNAR Á SVEITASÆLU
Borgarmýri 1, 550 Sauðárkróki - Sími 453 5433
Sími 480 0400 www.jotunn.is
Sauðárkróki Blönduósi Hvammstanga Sími 455 9200 www.tengillehf.is
Eyrarvegi 20, 550 Sauðárkróki Sími 455 4500 www.ks.is
Hesteyri 2, 550 Sauðárkróki Sími 455 4570 www.ks.is
Bifreiðaverkstæði
fyrirmyndar. Frábær stemning
var hjá öllum fjölskyldum á
tjaldstæðum og voru götur
bæjarins skínandi hreinar alla
mótahelgina. Fyrirmyndar-
bikarinn svokallaða fékk
Ungmennasamband Skaga-
fjarðar að þessu sinni. Bikarinn
hlýtur sá sambandsaðili sem
sýnt hefur góða umgengni á
keppnisstöðum og tjaldsvæði,
háttvísi og prúða framgöngu á
meðan Unglingalandsmóti
UMFÍ stendur. /PF
ákveðið að gefa 1.000 krónur af
hverju seldu líkamsræktarkorti
út ágústmánuð til styrktar þeim.
Á laugardaginn kemur, þann 19.
ágúst, ætlar svo Sigurlaug Rún
Brynleifsdóttir að hlaupa
styrktarhlaup, 10 km leið frá
Kálfsstöðum í Hjaltadal og fram
að Reykjum. Hún hvetur alla til
að vera með og leggja málefninu
lið. Hverjum og einum er frjálst
að velja þá vegalengd sem hann
hleypur og einnig þá upphæð
sem hann lætur af hendi rakna.
Nánari upplýsingar um hlaupið
má nálgast á Facebooksíðunni
Styrktarhlaup. /FE
30/2017 5