Feykir - 11.10.2017, Page 2
„Hver dregur Svarta-Pétur hjá Sjálfstæðismönnum
núna?“ heyrði ég einn kunningja minn spyrja annan.
„Ha, Svarta-Pétur?“ hváði hinn, „Já, hver verður látinn í
það verkefni að leggja fram áfengisfrumvarpið?“
Eins og allir vita hafa nýir þingmenn Sjálfstæðisflokksins
fengið að spreyta sig á því að koma áfengisfrumvarpinu á
dagskrá Alþingis með litlum árangri. Eða hvað? Árangurinn
er kannski bara fínn fyrir þingmennina sjálfa því fjölmiðlar
keppast um að segja frá þessum nýju köppum og fólkið í
landinu er óþreytandi við að segja sína skoðun á því hvort
áfengi skuli selt í vínbúðum eða „nýlenduvöruverslunum“
og nefna gjarna viðkomandi flutningsmann í leiðinni.
Útkoman verður sú að allir vita
hver þingmaðurinn er.
Ég er einn af „þessu fólki í
landinu“ sem hef skoðun á því
hvar áfengið skuli selt. Vandinn
er bara sá að ég hef svo oft skipt
um skoðun og er kominn vel á
fjórða hring í þeim efnum. Ef ég
tek afstöðu með þeim sem vilja
hafa vínið áfram í vínbúðunum
er það vegna þess að mér finnst
þjónustan góð og ekki hvað síst
vöruúrvalið. Ég óttast að úrvalið
muni minnka ef salan fari fram í
almennum verslunum og svo
skiptir þetta mig engu máli þar sem ríkið er í mínútu
göngufæri frá heimili mínu. Ég þarf bara að muna eftir því
að fara á opnunartíma.
Þegar þessi pistill er ritaður er undirritaður staddur í
helgarferð í Manchester í Bretaveldi ásamt fleira góðu fólki
af Króknum. Mér, líkt og flestum í hópnum, finnst bjór
góður og því tilvalið að kaupa þá neysluvöru til að eiga
„uppi á herbergi“.
Nýkominn í bæinn segir einn úr hópnum: „Hér er
nýlenduvöruverslun. Þar hlýtur að fást bjór.“ Auðvitað var
til bjór í þeirri ágætu verslun og við þurftum því ekki að
leita að Ríkinu í Manchester. Og hvaða bjór skyldi hafa
verið keyptur? Nú, bara sá sem var til!
Og þá kom spurningin í kollinn á mér: Af hverju ætti
ekki að selja áfengi í búðum á Íslandi, líkt og tíðkast erlendis,
þar sem langflestir Íslendingar eru mjög hrifnir af því að
geta kippt bjórnum með úr búðinni í útlandinu án
vandræða?
Margir hafa bent á að virkir og óvirkir alkóhólistar ættu
þá á hættu að falla eða leggjast í volæði ef aðgengið verði
gert greiðara en það nú er á Íslandi, svo ekki sé talað um
blessaða unglingana. Það getur vel verið en mér sýnist
ástandið á unglingunum mun betra í dag en á
bjórbannsárunum og þegar áfengisverslanir voru mun
færri. Svo má líka benda á það að þó áfengi geti verið böl
fyrir marga þá hafa ansi mörg hamingjurík sambönd orðið
til undir áhrifum þess.
Og svo snýst skoðunarkringlan í hausnum á mér enn og
aftur og ég hugsa að þetta sé bara fínt eins og það er „af því
ég er ágætlega settur“. Ég samsamaði mig bóndanum í
Hjaltadalnum sem var að spekulera í tillögum að
jarðgöngum milli Hjaltadals og Hörgárdals fyrir nokkrum
árum. Hann sá fyrir sér að þá myndi umferð bíla aukast til
muna um sveitina, honum og kannski fleirum til skaprauna.
Sagði hann eitthvað á þessa leið: „Þetta er án vafa
langskynsamasta leiðin. En ég er bara algerlega á móti
henni“.
Páll Friðriksson, ritstjóri.
LEIÐARI
Svarti-Pétur
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Hjartaaðgerðin gekk vel
Jökull Máni
Hinn ungi Skagfirðingur, Jökull Máni Nökkvason,
fór í hjartaaðgerðina sína á Barn- och
Ungdomssjukhuset í Lundi í Svíþjóð þann 4.
október sl. Að sögn Önnu Baldvinu Vagnsdóttur,
móður Jökuls Mána, tókst aðgerðin vel, en hefur
það eftir skurðlækninum að hjartað hefði verið
mjög þreytt og hefði verið það eina sem kom
honum á „óvart“.
Öllum götum á milli hjartahólfa var lokað og
hans eigin lokur notaðar til þess að búa til nýjar,
og minnka lekann. Á Facebookfærslu Önnu
Baldvinu segir að það sé aðeins leki á milli hólfa
ennþá en læknarnir séu mjög bjartsýnir á það að
hann sé ekki mikill og komi ekki til með að hrjá
hann.
Aðgerðin tók lengri tíma en áætlað var vegna
þess hversu hjartað var þreytt og þar af leiðandi
erfiðara að koma því aftur af stað eftir aðgerðina.
„Annars er allt jákvætt og gott að frétta af okkur
hér í Svíþjóð og erum við öll farin að anda mun
léttar! Loksins er allt farið að ganga í réttu áttina
og erum við svo glöð og stolt af litla gullmolanum
okkar,“ segir Anna Baldvina á FB.
Þegar Feykir hafði samband við Önnu
Baldvinu, skömmu eftir aðgerð, sagðist hún hafa
gleymt að setja það á Facebook að Jökull Máni
var nánast strax farinn að fá mjólk eftir aðgerðina
og þá í gegnum sondu og gekk það mjög vel.
Einnig vildi hún koma kæru þakklæti til allra
fyrir þann stuðning sem fjölskyldan hefur fengið
og allar fallegu kveðjurnar. /PF
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps komst áfram
Fornleifar í
Fljótum
Kórar Íslands
Evrópskir menningarminjadagar
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps komst áfram í
skemmtiþættinum Kórar Íslands sem sýndur var sl.
sunnudagskvöld á Stöð 2. Flutti hann lagið „Í
fjarlægð“ undir stjórn Skarphéðins Einarssonar.
„Við vonum það besta og skorum á
Norðlendinga alla að „splæsa“ á okkur atkvæði ef
að þeim líkar við atriðið okkar og koma okkur
áfram í næstu umferð,“ sagði Höskuldur B.
Erlingsson í síðasta Feyki. Engu er líkara en að
þjóðin hafi tekið kórstjórann á orðinu því kórinn
var kosinn áfram og keppir um hylli dómaranna. Í
lok þáttaraðarinnar mun svo einn kór standa uppi
sem sigurvegari og hljóta titilinn Kór Íslands 2017
ásamt því að hljóta vegleg verðlaun./PF
Jökull Máni sefur vært eftir eftir hjartaaðgerðina sem tókst vel.
MYND: ANNA BALDVINA.
Í tilefni af evrópsku menningarminjadögunum
mun Minjastofnun Íslands standa fyrir dagskrá
laugardaginn 14. október nk. á Gimbur gistiheimili
í Fljótum. Þema menningarminjadaganna að
þessu sinni er minjar og náttúra og munu af því
tilefni verða flutt þrjú stutt erindi sem endurspegla
áhrif náttúru á staðsetningu minja og mótun
menningarlandslags og varðveislu þess.
Guðmundur St. Sigurðarson minjavörður
Norðurlands vestra mun fjalla um
menningarminjar og loftlagsbreytingar. Guðný
Zoëga fornleifafræðingur hjá Byggðasafni
Skagfirðinga gerir grein fyrir fornleifa-
rannsóknum sumarsins í Fljótum og Hjalti
Pálsson ritstjóri Byggðasögu Skagafjarðar veltir
fyrir sér landnámi í Fljótum. Í framhaldinu
verður heimsóttur einn af þeim fjölmörgu
minjastöðum sem nýlega hefur fundist eða nýjar
upplýsingar fengist um.
Dagskrá hefst kl. 13:00, að erindum loknum
verður farið á einkabílum á minjastað í
nágrenninu, áætlað er að dagskrá ljúki eigi síðar
en kl. 16. Viðburðurinn er ókeypis og allir
velkomnir! /Fréttatilkynnig
2 38/2017