Feykir - 11.10.2017, Qupperneq 5
Lítið um straumharðar ár
og skíðabrekkur á Skáni
Ingvi Aron Þorkelsson er 27
ára gamall Króksari sem býr í
Lundi í Svíþjóð og starfar sem
þróunar- og orkusölustjóri hjá
Landskrona Energi. Hann er
menntaður vélaverkfræð-
ingur, sonur Lydiu og Kela
(aðstoðarskólameistara FNV)
og því alinn upp í Grenihlíðinni
á Króknum. Kærastan hans
Ingva heitir Aneta Kianková
og er frá Tékklandi.
Lundur er í Scaniu-sýslu
skammt frá Malmö á Skáni í
Svíþjóð og ófáir Íslendingar
hafa stundað þar háskólanám í
gegnum tíðina. Borgin telur
um tæplega 90 þúsund íbúa ef
eitthvað er að marka hina
greinargóðu Wikipedíu en
talið er að stofnað hafi verið til
byggðar í Lundi á tímum
Haraldar blátannar Danakon-
ungs, eða um 990 eftir Krist, en
þá var Skánn partur af
Danaveldi. Þrátt fyrir hlutleysi
Svíþjóðar í Síðari heimsstyrj-
öldinni þá tókst einni breskri
sprengjuvél að bomba Lund
fyrir slysni.
Þá er gaman að geta þess að
fyrsti farsíminn var hannaður
hjá Ericsson í Lundi árið 1985
og þá segja sumar heim-
ildir að fyrsta
mjólkurfernan hafi verið
hönnuð hjá Tetra Pak á síðustu
öld en höfuðstöðvar þess ágæta
fyrirtækis eru einmitt í Lundi.
En snúum okkur að Ingva...
Hvenær og hvernig kom það til
að þú fórst til Svíþjóðar? -Eftir
tvö æðisleg ár í alþjóðlegum
framhaldsskóla, með nemend-
um frá 85 löndum, lengst úti í
stórfenglegri sveit í Noregi, var
kominn tími til að sækja um
háskólanám. Flestir skólafélag-
arnir fóru í nám til Banda-
ríkjanna, en mér fannst
Norðurlöndin meira spenn-
andi kostur. Það var svo í
Tækniháskólanum í Lundi sem
ég fann það nám sem ég leitaði
að á orkusviði vélaverkfræð-
innar. Ég flutti í framhaldinu til
Lundar haustið 2009.
Hvernig myndir þú lýsa
venjulegum degi hjá ykkur
Anetu? -Við förum á fætur kl:
6:00, borðum brauðsneið eða
jógúrtskál í morgumat og
röltum síðan yfir á lestarstöðina
sem er hinum megin við
götuna. Þaðan tek ég lestina til
Landskrona og Aneta til
Älmhult þar sem hún starfar í
höfustöðvum IKEA. Í vinn-
unni eru dagarnir oftast þétt
skipaðir fundum og marg-
breytilegum verkefnum sem ég
eða vinnufélagarnir þurfum að
ljúka. Í hádeginu reynum við
vinnufélagarnir að skella okkur
saman í ræktina og borðum
mat sem við tökum með okkur
að heiman. Um fimmleytið
hjóla ég á lestarstöðina í
Landskrona og tek lestina
heim. Þegar heim er komið
skipti ég oftast um föt til þess
að fara beint á Acro Yoga
æfingu með Anetu og öðrum
vinum eða spila frisbígolf. Eftir
æfingarnar er haldið heim, við
borðum kvöldmat og gerum
það sem gera þarf heima, eða
horfum bara á einhverja
þáttaröð.
Hver er hápunktur dagsins?
-Hápunktur dagsins er venju-
lega frístundirnar í góðra vina
hópi að loknum ánægjulegum
vinnudegi.
Hvað er best við að búa í þínu
nýja landi? -Mér finnst best við
Svíþjóð að þar býr gott fólk
sem lætur sig sjálfbærni og
framtíð plánetunnar varða.
Hér hugsar fólk til framtíðar í
stað þess að láta skammtíma
hagsmuni ráða ferðinni.
Hvað gerir þú helst í frístund-
um? -Oftast stundum við Acro
Yoga, frisbígolf, spilum eða
horfum á þáttaraðir. Þegar ég
hef tíma til að ferðast þá ræ ég
straumkajak eða fer á skíði en
það er lítið um straumharðar
ár og skíða-
( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) oli@feykir.is
Ingvi Aron Þorkelsson / þróunar- og orkusölustjóri / Króksari í Lundi í Svíþjóð
brekkur á Skáni.
Hvers saknar þú mest að
heiman? -Eins og það er gott að
búa hérna þá er margt sem
maður saknar að heiman.
Fjölskyldan og vinirnir heima
eru að sjálfsögðu það sem
maður saknar mest. Ég sakna
líka einfaldra hluta sem ykkur
þykja sjálfsagðir, eins og þess að
geta bankað fyrirvaralaust upp
á hjá nágrannanum og kíkt í
kaffi. Ofan á þetta allt, þá sakna
ég íslensku náttúrunnar alveg
rosalega og útivistarmöguleik-
anna þar!
Gætir þú deilt einhverri sniðugri
eða eftirminnilegri sögu frá dvöl
þinni erlendis? -Fyrir fjórum
árum síðan fór ég í fjögurra
mánaða ferðalag um Asíu.
Einn daginn var ég að róa
niður Ganges-fljótið í Indlandi
með breskum félaga mínum.
Þegar hungrið sagði til sín
fórum við í land í leit að mat.
Félagi minn bankaði upp á í
næsta húsi og bar upp erindið.
Þegar húsráðandinn frétti að í
för með félaga mínum væri
Íslendingur spurði hann að
bragði hvort hann héti Ingvi.
Félagi minn varð afar hissa á
þessari spurningu og svaraði
játandi. Í ljós kom að hús-
ráðandi þekkti annan breskan
vin minn sem hafði ætlað að
róa með mér tveimur vikum
fyrr en hann komst ekki vegna
meiðsla.
Já, það er óhætt að segja að
heimurinn er lítill. Það er
einnig skemmtilegt að hugsa til
þess hvernig ég hef kynnst
þeim fáu Íslendingum sem ég
hef hitt í Lundi. Þrátt fyrir að
Íslendingasamfélagið í Lundi sé
mjög stórt, þá hef ég bara hitt
landa mína í gegnum tékknesku
kærustuna mína, þar á meðal
Króksarann Ingva Hrannar
Ómarsson.
MYND: Ingvi Aron og
Aneta í léttri leik-
fimi í Noregi.
Hversu lengi ertu í kjör-
búðina frá heimili þínu?
Rétt um tvær mínútur.
Hvað færðu þér í
staðinn fyrir eina með
öllu? Kebabrúllu, sem er í
rauninni ekkert sérstaklega
sænsk.
Hvað kostar mjólkurlítr-
inn? Nákvæmlega 9
sænskar krókur sem er
u.þ.b. 120 íslenskar krónur.
Hver er skrítnasti mat-
urinn? Án efa surströmm-
ing. *
Hvert ferðu til að gera
vel við þig? Á sænsk/
tælenska veitingastaðinn
Ishiri.
* Surströmming er síld sem
er lát in gerj ast í viðartunn um í
nokkra mánuði og síðar komið
fyrir í niðursuðudós um þar
sem gerj un in held ur áfram.
Dósin bólgnar þá út, en þegar
hún er opnuð gýs upp fnyk ur
sem þykir minna á rot in egg.
5 á 15
sekúndum
38/2017 5