Feykir - 11.10.2017, Qupperneq 6
Upp í þessa lest stigum við
ferðafélagarnir af brautarpalli
4 í Moskvu seint að kvöldi 22.
ágúst hvar framundan voru
fjórir sólarhringar um borð þar
til komið væri til borgarinnar
Irkutsk við Baikalvatnið.
Gamalli dísilreið var beitt
fyrir 13 farþegavagna og einn
veitingavagn þar sem við
fengum pláss í þeim aftasta á
öðru farrými, klefa sem var á
að giska tveir metrar á annan
veginn en rúmlega einn og
hálfur á hinn. Þarna inni voru
fjögur svefnpláss og lítið borð
á milli neðri bekkjanna. Í
hverjum vagni eru tvær þernur
og eða þjónar sem skipast á
vöktum og sjá um að halda
uppi aga um borð, þeim þrifum
sem við verður komið og ekki
síst, sjá til þess að alltaf sé heitt
á kútnum „samóvarnum“, kola-
kyntum suðukatli með neyslu-
vatni í kaffi, te og matargerð
farþega.
Ákvörðun tekin
á korteri
Aðdragandi þessarar ferðar var
allnokkur og tilefnið verðandi
afmæli Gunnars á árinu, sem
upphaflega kvaddi með sér
Árna, vin og bekkjarbróður
Gunnarsson frá Flatatungu.
Guðrún Jónsdóttir frá Hólum,
nú búsett í Berlín, skólasystir
okkar úr Varmahlíðarskóla,
fregnaði svo af uppátækinu
fyrir tveimur og hálfu ári síðan
og munstraði sig á galeiðuna.
En fáum vikum fyrir brottför
forfallaðist Árni vegna gamalla
bakmeiðsla sem tóku sig upp.
Þá voru góð ráð dýr, búið að
skipuleggja og panta víðast hvar
miðað við þrjá.... Þegar þessar
fréttir komu var ekki annað
að gera en finna einhvern sem
tekið gæti ákvaraðanir í skyndi.
Gunnar tók upp símann og
hringdi í Arnór Gunnarsson
frá Glaumbæ sem staddur var
í Norrænu á leið til Færeyja,
bar upp erindið, hvort hann
væri tilbúinn í fjögurra
vikna ferðalag um Rússland,
Mongólíu og Kína ...með lest?
Hann kvaðst skyldi hugsa
málið. Og Arnór er ekki maður
málalenginga. Korteri seinna
FRÁSÖGN & MYNDIR
Gunnar Rögnvaldsson
Arnór Gunnarsson
Guðrún Jónsdóttir
hringdi síminn og á hinum
endanum heyrðist. „Ég kem
með.“
Ekki höfðu Arnór og
Guðrún hist fyrr en í Berlín
nokkrum dögum áður, þaðan
sem við flugum til Moskvu svo
eins gott var að samkomulagið
yrði þokkalegt, slíkt var ná-
býlið í „Gúlaginu“ eins og
Arnór kallaði klefann. Og
svo mjakaðist lestin af stað
út í náttmyrkrið. Er skímaði
með morgni gat að líta það
útsýni er síðan reyndist eins
og límt á gluggana meirihluta
fyrsta áfangans. Tré og aftur
tré á nánast mishæðalítilli
endaleysu. Meira að segja tókst
okkur að komast yfir Úralfjöllin,
sem í landafræðitímunum á
Þorbjargarstöðum var gríðar-
legur fjallgarður, án þess að
taka eftir honum!!
Vissulega fórum við hjá
fjölda þorpa og bæja sem
áttu það sameiginlegt að vera
heldur hrörleg og stundum var
erfitt að sjá hvað var yfirgefið
og hvað ekki. Við höfðum
birgt okkur upp af nesti, en í
veitingavagninum sem var eins
og leikmynd úr Agöthu Christie
mynd mátti líka fá ágætan
mat og eins biðu farandsalar á
brautarpöllunum með heima-
gerðar samlokur og fleira
þegar áð var. Átta aðrir klefar
voru í vagninum, eingöngu
skipaðir Rússum á öllum aldri
og voru sumir búnir að vera
rúma viku á leiðinni áður en
yfir lauk enda er Síberíulestin
samgöngutæki heimamanna.
Fæstir farþeganna gátu gert
sig skiljanlega á ensku en þá
var gripið til táknmáls og
Google translate. Helst voru
það börnin sem eru einlæg og
opin sem vildu gjarnan æfa sig í
ensku. Upphófst þá gagnkvæm
tungumálakennsla.
Lestin stoppaði allt frá
tveimur mínútum og upp í þrjú
korter í stærri borgunum en
aldrei það lengi að hægt væri að
fara neitt frá því ekki er beðið
eftir neinum, allt á mínútunni.
Skagfirskir ferðalangar á framandi slóðum
Arkað í austurveg
Leið lestarinnar. Kreml, fáninn blaktir á höll Putins.
Síberíulestin er nafn sem hljómar kunnuglega í eyrum margra síðan Gúlagið var og hét, en er samt sem áður
sveipuð þeirri dulúð sem fjarlægðin og sagan hafa ofið í áranna rás. Lagning brautarinnar sem hófst 1857 tók
um sextíu ár og kostaði ótölulegan fjölda mannslífa þar sem hún teygði sig austur um óbyggðir Síberíu og
tengdi að lokum saman Evrópuhluta Rússlands við Vladivostok á Kyrrahafsströndinni. Það var svo 1956 sem
möguleiki á lestarferðum á milli Peking og Moskvu opnaðist þegar síðasti hluti leiðarinnar um Mongólíu var
lagður og rúmlega 7600 km samgöngumannvirki sem teygði sig yfir fimm tímabelti var tilbúið.
Á Torgi hins himneska friðar. Forboðna borgin í baksýn. Frá vinstri: Gunnar, Guðrún og Arnór.
6 38/2017